Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 6
6 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!
Gullni þríhyrningurinn
+ strandir GOA
339 000
kr.
INDVERSKT
SUMAR UM HAUST
11 nætur
14.-25. nóvember
ÆVINTÝRALJÓMI
TRANSILVANÍU
8 nætur
19. - 26. maí
161 700
kr.
Rúmenía -
í fótspor Drakúla greifa
Moskva-Pétursborg
298 000
kr.
SIGLING
KEISARALEIÐIN
30. júlí - 09. ágúst
10 nætur
Paulo Macchiarini
kærður fyrir dýraníð
Heilbrigðismál Eitt stærsta
hneykslismál evrópskra og ís-
lenskra læknavísinda, plastbarka-
málið, vindur enn upp á sig.
Sænsku dýraverndarsamtök-
in Djurens rätt hafa kært ítalska
skurðlækninn Paulo Macchiarini
fyrir dýraníð. Frá þessu er sagt
í sænska blaðinu Dagens Nyhet-
er. Macchiarini framkvæmdi
umdeildar skurðaðgerðir á
þremur einstaklingum á Karol-
inska-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
á árunum 2011 til 2013, meðal
annars á Andemariam Beyene
sem búsettur var á Íslandi. Ekki
var búið að reyna aðgerðarformið
á dýrum áður en það var prófað
á mönnum og virkuðu plast-
barkarnir sem settir voru í þessa
einstaklinga ekki og dóu tveir
þeirra, meðal annars Andem-
ariam. Aðgerðaformið var hins
vegar prófað á rottum eftir á og
snýst kæra samtakanna um að
rotturnar hafi verið sveltar áður
en þær voru notaðar sem til-
raunadýr; þær misstu 45 prósent
af líkamsþyngd sinni en mega
samkvæmt reglum aðeins missa
10 prósent. Aðgerðatæknin virk-
aði ekki heldur á rottur og dóu
þær líka. | ifv
Víkingur Gunnarsson,
framkvæmdastjóri
Arnarlax, sést hér
með eldislax frá
fyrirtækinu.
Skurðlækn-
irinn Paulo
Macchiarini
hefur verið
kærður fyr-
ir dýraníð
vegna til-
rauna sinna
á rottum.
Stjórnmál Í eigendastefnu ríkisins
um fjármálafyrirtæki er þeim
grundvallarspurningum ekki
svarað af hverju ríkið eigi ekki
að eiga banka og af hverju ríkið
eigi að selja eignarhluti sína í
fjármálafyrirtækjum. Benedikt
Jóhannesson fjármálaráðherra
segir að eignarhald ríkisvaldsins
geti grafið undan samkeppni og
ríkið vanti fé til að greiða niður
skuldir. Íslenska ríkið heldur
samt eftir stórum hlut í einum
banka til að tryggja stöðugleika í
bankakerfinu.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Benedikt Jóhannesson fjármála-
ráðherra segist telja að það sé
„beinlínis óæskilegt“ og óþarft
að ríkisvaldið eigi fyrirtæki eins
og banka sem standi í samkeppni
við einkarekin fyrirtæki. Bene-
dikt segir að þetta sé óæskilegt
bæði vegna samkeppnissjónar-
miða og ríkisaðstoðarreglna sem
haldið er á lofti af stjórnvöldum
og á Evrópska efnahagssvæðinu.
Þess vegna sé vænlegra að ríkið
selji bróðurpartinn af eignarhlut-
um sínum í fjármálafyrirtækjum.
Benedikt segir að þetta eigi við í
samfélagi eins og á Íslandi í dag
þar sem ekki eru „markaðsbrestir“
en með því á hann meðal annars
væntanlega við aðstæður eins og
sköpuðust á Íslandi í hruninu um
haustið 2008 þar sem íslenska
ríkið tók stóru viðskiptabankana
þrjá yfir.
Þetta kemur fram í svari frá
Benedikt við fyrirspurn Fréttatím-
ans um af hverju hann telji að ís-
lenska ríkið eigi að selja hlutabréf
sín í Íslandsbanka og Arion og eins
meirihluta þess hlutafjár sem ríkið
á í Landsbankanum, þó halda eigi
eftir rúmlega þriðjungshlut eða
meira í þeim banka.
Í drögum að eigendastefnu rík-
isins fyrir fjármálafyrirtæki, sem
kynnt var í febrúar, er þeirri lyk-
ilspurningu ekki svarað af hverju
ríkið ætli sér að selja þessi hluta-
bréf sem það á í þremur stærstu
viðskiptabönkum landsins. Í
eigendastefnunni stendur meðal
annars: „Ríkið stefnir ekki að því
að eiga meiri hluta í fjármálafyr-
irtækjum á almennum markaði til
lengri tíma.“ Þessi niðurstaða er
hins vegar ekki útskýrð í skjalinu
þar sem eigendastefnunni er lýst.
Þá er heldur ekki útskýrt af
hverju íslenska ríkið ætli sér að
selja alla eignarhluti sína í Arion
banka og Íslandsbanka. Um seinni
bankann stendur aðeins: „Stefnt
er að því að selja allan eignarhlut
ríkisins í Íslandsbanka þegar hag-
felld og æskileg skilyrði eru fyrir
hendi.“
Hins vegar eru gefnar forsend-
ur fyrir því af hverju ríkið ætti að
halda eftir hlutabréfum í Lands-
bankanum og er vísað til mikil-
vægis þess að tryggja stöðugleika í
bankakerfinu: „Stefnt er að því að
ríkið eigi verulegan eignarhlut, 34-
40%, í bankanum til langframa til
að stuðla að stöðugleika í fjármála-
kerfinu og tryggja nauðsynlega
innviði þess.“
Af þessum sökum óskaði Frétta-
tíminn eftir útskýringum Bene-
dikts á forsendum bankasölunnar
þar sem ástæður hennar koma
ekki nægjanlega vel fram í um-
fjöllun eigendastefnunnar. Ljóst er
að Benedikt og ríkisstjórnin telja
að ríkisvaldið hafi það hlutverk
að tryggja stöðugleika í fjármála-
kerfinu með því að selja ekki öll
hlutabréf sín í öllum bönkum og
ætlar því að halda eftir kjölfestu-
hlut í Landsbankanum. Miðað við
svar Benedikts og eigendastefnuna
er þetta ekki „óæskilegt“ en það
væri „óæskilegt“ ef ríkið ætti stóra
eignarhluti í öllum bönkunum.
Ríkisstjórnin er því ekki fráhverf
því í sjálfu sér að ríkisvaldið eigi
stóra eignarhluti í að minnsta kosti
einum banka.
Þá segir Benedikt einnig í svari
sínu að eignarhlutir ríkisins í
bönkunum séu eignir sem auðvelt
sé að selja og þar með grynnka á
skuldum ríkissjóðs: „Vaxtagjöld
ríkissjóðs eru 70 milljarðar króna
á ári og þriðji stærsti útgjaldalið-
ur ríkisins. Lækkun skulda skapar
rými fyrir útgjöld, fjárfestingar og
skattatilslakanir. Bankarnir eru
stærstu seljanlegu eigirnar á hendi
ríkisins nú.“ Ein af forsendum
bankasölunnar er því líka mikil-
vægi þess að greiða niður skuldir
ríkisins.
„Óæskilegt“ ef ríkið er í sam
keppni við einkarekna banka
Benedikt Jóhannesson segir að ekki sé æskilegt að ríkið standi í samkeppni við
einkaðila í fyrirtækjarekstri, meðal annars á fjármálamarkaði, og er þetta ein
helsta forsendan fyrir því af hverju hann telur að selja eigi hlutabréf ríkisins í
bönkunum.
Laxeldi Ný norsk skýrsla sýnir
fram á dauða 19 prósent alls
eldislax meðan hann er í ræktun.
Talan er talsvert lægri á Íslandi.
Um fimm prósent eldislaxa sem
ræktaðir eru við Íslandsstrend-
ur drepast árlega í laxeldinu sem
stundað er á Íslandi. Þetta segir
Höskuldur Steinarsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldisstöðva. Í nýrri skýrslu
Dýralæknasamtaka Noregs kem-
ur fram að 53 milljónir eldislaxa
hafi drepist í laxeldinu þar í landi
í fyrra eða samtals um 19 prósent
af framleiðslunni. Laxalús er ein
aðalástæðan fyrir þessum miklu
afföllum í Noregi. Höskuldur segir
að þetta sé vegna umfangs eldisins
í Noregi en árlega framleiðsla þar
er um 1,3 milljónir tonna á meðan
framleiðslan er á milli 10 og 20
þúsund tonn á Íslandi. | ifv
Meiri laxadauði í Noregi
en á Íslandi út af lúsinni Sakamál Lögreglan í Vestmanna-eyjum segist þurfa að ná tali af 45
ára konu sem varð fyrir alvarlegri
ofbeldisárás í september til að
hægt sé að ljúka rannsókninni.
Maðurinn sem lögreglan hefur
grunaðan í málinu hefur neitað
sök en framburður vitna og önnur
sönnunargögn benda sterklega til
sektar hans. Konan dvelur á Spáni
og hefur ekki fengist til að snúa
heim. Hún átti erfitt með að dvelja
í sama þorpi og maðurinn og fór
því burt. „Ég hef skilning á því að
fórnarlömbum svona ofbeldis líði
illa að vita af ofbeldismanninum
í næsta nágrenni,“ segir Tryggvi
Heiðar Páll
Halldórsson,
vinur konunnar,
sagði við Frétta-
tímann í gær að
það væri skítt
að fórnarlambið
þyrfti að flýja af
vettvangi eftir
glæpinn.
Lögregla þarf frekari vitnisburð konunnar
Ólafsson, lögreglumaður í Eyjum.
„Það er hinsvegar ekkert sem
lögreglan getur gert. Ekki nema
hann taki upp á því að áreita fórn-
arlambið, þá er hægt að fara fram
á nálgunarbann. Hann segir að
rannsóknin hafi dregist á langinn
þar sem konan dvelur erlendis.
Hann vill þó ekki gefa upp hvað
standi út af borðinu. Ef konan fæst
ekki til að koma til landsins verður
málið samt sent ríkissaksóknara
sem ákveður hvort ákært verði.
Tryggvi sagðist ekki treysta sér til
þess að segja hversu mikilvægur
þessi vitnisburður konunnar væri
fyrir málatilbúnað lögreglu. | þká