Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 10
EINELTI
VANDAMÁL
SAMFÉLAGSINS
10 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
Breytti öllu þegar unnið
var með gerendum
Selma Björk hefur samanburð úr tveimur grunn-
skólum þar sem tekið var á einelti með ólíkum hætti.
Selma Björk Hermannsdóttir er tvítug, en hún upp-
lifði fyrst einelti þegar hún var á leikskóla í Danmörku
þar sem hún var skilin útundan vegna þess að hún leit
öðruvísi út, en hún fæddist með skarð í vör. Eineltið
fylgdi henni í grunnskólann í Danmörku og svo til Ís-
lands, allt upp í menntaskóla. Þetta voru mismunandi
gerendur, en á hverjum stað var hópur einstaklinga
sem lét hana ekki í friði.
Á fyrsta ári í menntaskóla var henni hins vegar nóg
boðið og ákvað hún að tjá sig opinberlega um reynslu
sína af einelti í grein sem birtist á bleikt.is. Grein-
in vakti mikla athygli og í kjölfarið sagði Selma sögu
sína víðar. Það þróaðist svo út í að hún fór að halda
fyrirlestra um einelti í skólum ásamt föður sínum.
Það að ræða opinberlega um reynsluna hafði því mjög
jákvæð áhrif á líf Selmu og varð meðal annars til þess
að eineltið hætti.
Selma hefur samanburð á því úr tveimur grunn-
skólum hvernig tekið var á eineltinu með ólíkum
hætti. „Þó að ég hafi verið ung í þeim fyrri þá man ég
eftir að hafa hugsað að mér þótti aðferðin ekki vera
að virka. Það var þessi klassíska aðferð, sem ég held
að sé því miður allt of oft notuð, þar sem gerandi og
þolandi eru teknir inn á skrifstofu, látnir horfast í
augu, takast í hendur og biðjast afsökunar. Svo er það
bara búið en gerandinn heldur áfram í næstu frímín-
útum.“
Selma skipti síðan yfir í einkarekinn grunnskóla
þar sem voru töluvert færri krakkar og hún upplifði
það þannig að skólinn hefði efni á að beita persónu-
legri aðferðum til að uppræta eineltið. „Þá var talað
við mig í einrúmi og gerendur í einrúmi og foreldra
okkar. Svo vorum við öll látin hittast. Það fór mikill
tími í að sjá til þess að öllum liði vel. Þau hættu ekki
fyrr en þetta var komið. Þannig að báðir aðilar gátu
hvor í sínu lagi sagt að þeim liði betur og þeim þætti
vandamálið ekki lengur til staðar. En eineltið hætti
aldrei alveg. Ég hef aldrei verið í skóla þar sem ég
er ekki lögð í einelti, en mér leið tíu sinnum betur í
einkaskólanum, af því að í hvert skipti sem eitthvað
kom fyrir þá var tekið á því. Það breytti svo miklu að
finna að skólayfirvöld nenntu þessu. Í gamla skólan-
um þá var ég bara skömmuð fyrir að vera alltaf að
koma inn á skrifstofu. Það vantaði allan metnað.“
Selma segir mikilvægt að komast að rót vandans og
telur að það sé ekki hægt með sífelldum skömmum
eða predikunum. „Það er svo algengt að talað sé við
nemendur og sagt að þetta og hitt líðist ekki, en ef þú
ert gerandi og þér líður það illa að þú leggur aðra í
einelti, þá er ólíklegt að þú takir það til þín. Í einskól-
anum var talað meira við einstaklingana og það skipti
öllu máli. Þar var minna verið að segja einstaklingum
að hætta að gera eitthvað og meira verið að spyrja af
hverju. Þegar þú kemst að ástæðunni, þá ertu komin
að rót vandans og getur gert eitthvað í málunum.“
Það hafði mjög jákvæð áhrif á líf Selmu að tjá sig opinber-
lega um eineltið.
Madeira er stundum nefnd „skrúðgarðurinn í Atlantshafinu“ enda með fádæmum gróðursæl
og býr yfir einstökum náttúrutöfrum. Á eyjunni ríkir afar
þægilegt loftslag allan ársins hring. Innan um tilkomumikil
fjöll, vínekrur, ávaxtagarða og fagran hitabeltisgróðurinn
hafa eyjarskeggjar skapað hina fullkomnu aðstöðu
ferðamannsins.
Léttganga á Madeira er skemmtilegur valkostur sem
sameinar góða útivist í hressandi göngutúrum svo og
tíma til að njóta lífsins eins og hver og einn óskar eftir.
Göngurnar eru fjölbreyttar og ýmist gengið meðfram
rennandi lækjum, um gróðursæla dali og tignarleg fjöll.
Farið verður í 6 stuttar en áhugaverðar gönguferðir um
eyjuna og svo eru 4 frjálsir dagar að hætti hvers og eins,
þá er einnig innifalin kvöldferð og kynnisferð um Funchal.
Gönguferðir á Madeira eru gjarnan meðfram gömlum
árveituskurðum sem heimamenn nefna „Levadas“ en
hluti af þessum árveituskurðum eru allt frá 16. öld. Þeir
voru notaðir til að flytja regnvatn frá fjöllunum í norðri til
suðurhlutans sem er mun sólríkari og þurrari en sá nyðri.
Miðað er við að göngurnar séu á bilinu 3-4 klst og um það
bil 4-6 km. Gengið er á þægilegum stígum og umhverfið
er stórkostlegt umvafið laufskógum og litríkur gróðurinn
og blómaangan setur sterkan svip sinn á leiðina. Gist
verður á góðu 3* hóteli í Funchal. Léttganga á Madeira er
sannarlega spennandi valkostur á þessari fallegu eyju.
Frá kr.
209.900
m/morgunmat
& gönguferðum
15.000 kr.
bókunarafsláttur
á mann
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
80
72
9
Léttganga á
MADEIRA
23. apríl í 11 nætur
Frá kr. 209.900 m/morgunmat, gönguferðum o.fl.
Netverð á mann frá kr. 209.900 m.v. 2 í herbergi.
Fararstjóri: Niels Rask Vendelbjerg
– fáðu meira út úr fríinu
Upplifun Daníels Þórs var sú að
skólinn skýldi sér á bak við and-
leg veikinda geranda
Daníel Þór Marteinsson fór að
verða skotmark skólafélaganna í
fjórða eða fimmta bekk, en hann
er 29 ára í dag. Í fyrstu beindist
áreitið helst að því að hann væri
með gleraugu. Félagslega út-
skúfunin fylgdi fljótlega í kjölfar-
ið. Hann fékk ekki að vera með í
leikjum og var ekki boðið í afmæli.
„Þetta stigmagnaðist svo bara, en
inni á milli voru einhverjir sem
reyndu að vera almennilegir við
mig. Það entist þó aldrei. Á endan-
um náðu skemmdu eplin að smita
út frá sér.“
Í áttunda bekk fór hann svo í
annan skóla og þar voru krakk-
arnir voru farnir að fikta við að
reykja og drekka. Daníel var ekki
spenntur fyrir því. „Ég var var
bara tölvulúði og hafði gaman af
tölvuleikjum, útiveru og venjuleg-
um hlutum. Ég fór alveg inn í skel
og var mjög mikið einn með sjálf-
um mér. Ég held að ég hafi átt einn
vin. Ég var farinn að skrópa í skól-
anum og þykjast vera veikur.“
Það var einn gerandi sem var
mest áberandi í hópnum en hinir
fylgdu honum. Aðrir þóttust ekk-
ert sjá. „Lausnin hjá foreldrum
mínum var að tala við kennarana
en þeir voru hálf ráðþrota. Ger-
andinn fékk tiltal og þá kannski
róaðist allt í viku, en byrjaði svo
aftur. Mér fannst skólayfirvöld
skýla sér svolítið á bak við það að
hann ætti við geðræn vandamál að
stríða en þá hefði hann auðvitað
átt að fá viðeigandi hjálp. Það voru
bara engin slík úrræði í boði þá.“
Í tíunda bekk var Daníel kom-
inn á mjög slæman stað andlega
og hugsaði um að láta sig hverfa.
Svipta sig lífi. En hann fékk sig þó
ekki til þess.
Eineltið fylgdi honum út grunn-
skólann og því linnti ekki fyrr en
hann byrjaði í framhaldsskóla. Á
öðru ári sínu þar fór hann eignast
vini og komst í inn í vinahóp sem
hann átti eftir að vera hluti af um
tíma. Þó að Daníel sé ekki í miklu
sambandi við hópinn í dag á hann
sína vini og telur sig vera á góðum
stað.
Daníel segir gerendur reglulega hafa
fengið tiltal, en það dugði skammt.
Mynd | HariHugsaði um að svipta sig lífi