Fréttatíminn - 11.03.2017, Blaðsíða 36
Út að hlaupa
Það er mjög góð hreyfing að fara út
að hlaupa. Það kostar ekkert og því
fylgir lítil fyrirhöfn. Hér eru nokk-
ur góð ráð áður en þú reimar á þig
hlaupaskóna og hleypur af stað.
• Farðu rólega af stað ef þú ert
byrjandi.
• Ef þú ert tímabundin/n, farðu þá
stuttan hring frekar en að sleppa
því.
• Settu þér markmið og haltu dag-
bók utan um hlaupin þín.
• Talaðu við vin og fáðu hann með
þér, það er skemmtilegra að
hlaupa í félagsskap.
• Teygðu vel eftir hlaupin, það
kemur í veg fyrir harðsperrur og
minnkar líkur á meiðslum.
• Hlustaðu á taktfasta og góða tón-
list hún hjálpar þér við hlaupin.
• Hugsaðu vel um næringuna,
ekki fara svangur út að hlaupa
og passaðu þig að drekka nóg af
vatni.
Göngutúr
Það er bæði gott fyrir líkama og sál
að fara í göngutúr. Í kringum Reykja-
vík eru ótal spennandi kostir fyrir
göngugarpa. Þá er bara að reima á
sig gönguskóna og arka af stað.
Öskjuhlíðin er fallegur og
skemmtilegur staður að heimsækja
og fá sér hressandi göngutúr.
Nóg er að merktum gönguleiðum
og fyrir áhugafólk um stríðsminjar
er Öskjuhlíðin sannkölluð gullkista.
Gaman er að skoða braggana og
gaman getur verið að rölta niður að
Nauthólsvík og anda að sér fersku
sjávarloftinu.
Yst á Seltjarnarnesinu er Gróttu-
viti. Það er góður göngustígur sem
hægt er að rölta með kringum allt
Seltjarnarnesið. Gönguferð úti í
Gróttuvita er einstaklega skemmti-
leg og eins gönguferð í fjörunni sem
umleikur nesið. Ýmislegt ber þó að
varast þegar gengið er út í vitann
og fólk þarf að huga vel að flóði og
fjöru.
Í Elliðaárdal er að finna einstak-
lega mikið af fallegum og skemmti-
lega gönguleiðum. Svæðið er eitt
stærsta græna svæðið innan borgar-
marka Reykjavíkur. Elliðaáin rennur
í gegnum dalinn og eftir þeim dreg-
ur dalurinn nafn sitt. Að sumri til
er tilvalið að taka með sér nesti og
skella sér í góða lautarferð. Nóg er af
bekkjum til þess að tylla sér og hvíla
lúin bein.
Í Laugardal er fjöldinn allur af
gönguleiðum og afþreyingu að
finna. Grasagarðurinn er einstak-
ur og þar er hægt að gleyma sér
tímunum saman, hvort sem það er
að labba um garðinn eða lesa sér
til um allan þann fjölda platna sem
þar er að finna. Fyrir þá sem eru
áhugasamir um sögu Reykjavíkur er
gaman er að skoða gömlu þvotta-
laugarnar í Laugardalnum. Ferð í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn er
eitthvað sem hittir í mark hjá allri
fjölskyldunni.
Heiðmörk er sannkölluð útivistar-
paradís við jaðar borgarmarkanna.
Þar er hægt að finna ótal skemmti-
legar gönguleiðir. Skógrækarfélag
Reykavíkur hefur unnið ótrúlega
mikið og gott starf í Heiðmörk. Þá er
gönguferð í kringum Elliðavatn góð
og skemmtilega ganga. Eins getur
verið spennandi að skoða Maríu-
hella.
Hjól
Að fara út að hjóla er einstaklega
holl og góð hreyfing. Hvort sem að
fólk notar hjólið til afþreyingar eða
sem farartæki til þess að komast til
og frá vinnu. Mikið hjólaæði hefur
gripið um sig meðal landsmanna og
hjólreiðarstígar eru komnir víða um
borgina sem auðvelda fólki að fara
leiðar sinnar á hjóli.
Með aukinni umhverfisvitund eru
æ fleiri farnir að gera sér grein fyrir
kostum þess að nota hjól í staðinn
fyrir einkabíl. Þú slærð margar flug-
ur í einu höggi, færð góða hreyfingu
og sparar peninga og ert umhverfis-
vænni í leiðinni.
Allir af stað!
Með hækkandi sól eru margir sem skríða út úr
hýðinu og þrá ekkert heitara en að komast út
að hreyfa sig í guðsgrænni náttúrunni.
Gaman er að hjóla eða ganga út að
Gróttu á Seltjarnarnesi.
Nýjar vörur frá H-Berg
H-Berg ehf | Grandatröð 12 | 220 Hafnarfjörður | hberg@hberg.is | sími 565 6500 | hberg.is
100 % NÁTTÚRULEG VARA
án viðbætts sykurs
Pipar Döðlur
Íslensk
menning
Þann 7. apríl
Gauti Skúlason | gauti@frettatiminn.is
Guðbjarni Traustason | gt@frettatiminn.is
4 LAUGARDAGUR 11. MARS 2017HEILSA