Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 36

Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 36
Út að hlaupa Það er mjög góð hreyfing að fara út að hlaupa. Það kostar ekkert og því fylgir lítil fyrirhöfn. Hér eru nokk- ur góð ráð áður en þú reimar á þig hlaupaskóna og hleypur af stað. • Farðu rólega af stað ef þú ert byrjandi. • Ef þú ert tímabundin/n, farðu þá stuttan hring frekar en að sleppa því. • Settu þér markmið og haltu dag- bók utan um hlaupin þín. • Talaðu við vin og fáðu hann með þér, það er skemmtilegra að hlaupa í félagsskap. • Teygðu vel eftir hlaupin, það kemur í veg fyrir harðsperrur og minnkar líkur á meiðslum. • Hlustaðu á taktfasta og góða tón- list hún hjálpar þér við hlaupin. • Hugsaðu vel um næringuna, ekki fara svangur út að hlaupa og passaðu þig að drekka nóg af vatni. Göngutúr Það er bæði gott fyrir líkama og sál að fara í göngutúr. Í kringum Reykja- vík eru ótal spennandi kostir fyrir göngugarpa. Þá er bara að reima á sig gönguskóna og arka af stað. Öskjuhlíðin er fallegur og skemmtilegur staður að heimsækja og fá sér hressandi göngutúr. Nóg er að merktum gönguleiðum og fyrir áhugafólk um stríðsminjar er Öskjuhlíðin sannkölluð gullkista. Gaman er að skoða braggana og gaman getur verið að rölta niður að Nauthólsvík og anda að sér fersku sjávarloftinu. Yst á Seltjarnarnesinu er Gróttu- viti. Það er góður göngustígur sem hægt er að rölta með kringum allt Seltjarnarnesið. Gönguferð úti í Gróttuvita er einstaklega skemmti- leg og eins gönguferð í fjörunni sem umleikur nesið. Ýmislegt ber þó að varast þegar gengið er út í vitann og fólk þarf að huga vel að flóði og fjöru. Í Elliðaárdal er að finna einstak- lega mikið af fallegum og skemmti- lega gönguleiðum. Svæðið er eitt stærsta græna svæðið innan borgar- marka Reykjavíkur. Elliðaáin rennur í gegnum dalinn og eftir þeim dreg- ur dalurinn nafn sitt. Að sumri til er tilvalið að taka með sér nesti og skella sér í góða lautarferð. Nóg er af bekkjum til þess að tylla sér og hvíla lúin bein. Í Laugardal er fjöldinn allur af gönguleiðum og afþreyingu að finna. Grasagarðurinn er einstak- ur og þar er hægt að gleyma sér tímunum saman, hvort sem það er að labba um garðinn eða lesa sér til um allan þann fjölda platna sem þar er að finna. Fyrir þá sem eru áhugasamir um sögu Reykjavíkur er gaman er að skoða gömlu þvotta- laugarnar í Laugardalnum. Ferð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn er eitthvað sem hittir í mark hjá allri fjölskyldunni. Heiðmörk er sannkölluð útivistar- paradís við jaðar borgarmarkanna. Þar er hægt að finna ótal skemmti- legar gönguleiðir. Skógrækarfélag Reykavíkur hefur unnið ótrúlega mikið og gott starf í Heiðmörk. Þá er gönguferð í kringum Elliðavatn góð og skemmtilega ganga. Eins getur verið spennandi að skoða Maríu- hella. Hjól Að fara út að hjóla er einstaklega holl og góð hreyfing. Hvort sem að fólk notar hjólið til afþreyingar eða sem farartæki til þess að komast til og frá vinnu. Mikið hjólaæði hefur gripið um sig meðal landsmanna og hjólreiðarstígar eru komnir víða um borgina sem auðvelda fólki að fara leiðar sinnar á hjóli. Með aukinni umhverfisvitund eru æ fleiri farnir að gera sér grein fyrir kostum þess að nota hjól í staðinn fyrir einkabíl. Þú slærð margar flug- ur í einu höggi, færð góða hreyfingu og sparar peninga og ert umhverfis- vænni í leiðinni. Allir af stað! Með hækkandi sól eru margir sem skríða út úr hýðinu og þrá ekkert heitara en að komast út að hreyfa sig í guðsgrænni náttúrunni. Gaman er að hjóla eða ganga út að Gróttu á Seltjarnarnesi. Nýjar vörur frá H-Berg H-Berg ehf | Grandatröð 12 | 220 Hafnarfjörður | hberg@hberg.is | sími 565 6500 | hberg.is 100 % NÁTTÚRULEG VARA án viðbætts sykurs Pipar Döðlur Íslensk menning Þann 7. apríl Gauti Skúlason | gauti@frettatiminn.is Guðbjarni Traustason | gt@frettatiminn.is 4 LAUGARDAGUR 11. MARS 2017HEILSA

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.