Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 44

Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 44
8 LAUGARDAGUR 11. MARS 2017LAUNAJAFNRÉTTI Unnið í samstarfi við Landsbankann. Baldur G. Jónsson, mannauðsstjóri Lands-bankans, segir að ákveðið hafi verið að undirgangast úttekt- ina haustið 2014 til að greina stöðuna almennilega og fag- lega. „Við réðumst í þessa vinnu vegna þess að við höfðum ekki mikið af tækjum eða tólum til þess að skoða málið almennilega sjálf. Við höfðum gert kannanir á launamun kynjanna frá árinu 2012 sem gáfu okkur ákveðna mynd af stöðunni. Okkur fannst samt mikilvægt - í raun miklu sterkara að - fá utanaðkomandi aðila til að framkvæma grein- inguna og fá þannig staðfestingu á því að við værum að greiða konum og körlum jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Út- tektin leiddi líka í ljós einstaka atriði sem þörfnuðust úrbóta og við réðumst strax í það,“ segir Baldur. Landsbankinn er stærsta fyr- irtækið á Íslandi sem hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektarinn- ar en um 1000 manns starfa hjá bankanum. Kynjahlutfallið innan bankans er þannig að þar starfa 66% konur en 33% karlar. Að- spurður hvort jafnlaunaúttektin hafi skipt bankann miklu máli seg- ir Baldur engan vafa leika á því. „Landsbankinn er með skýra jafnréttisstefnu. Í þeirri stefnu er kveðið á um að konur og karl- ar skuli hafa jafna möguleika til starfsframa og njóta sömu réttinda í starfi. Einnig kemur fram að Landsbankinn stefni að jöfnu hlutfalli kynja meðal starfs- manna, að hjá bankanum skuli störf ekki flokkast sem karla- eða kvennastörf og að konum og körl- um skuli greidd sömu laun fyrir jafnverðmæt störf. Við erum stolt af því að það er jafnt kynjahlutfall í framkvæmdarstjórn okkar. Mikil áhersla hefur verið lögð á jafnrétti og jafnréttismál innan bankans og jafnlaunavottunin var liður í því að fá staðfestingu á að við værum á réttri leið. Við vildum sýna að árangur í jafnrétti eru ekki orðin tóm hjá Landsbankanum,“segir Baldur. Er mikil vinna að fá jafnlauna- úttektina? „Þetta var talsverð vinna í fyrsta skiptið. Það er segin saga að þegar maður tekur upp nýtt verkfæri, þá tekur við ákveðið lærdómsferli sem þarf að komast í gegnum. Við þurftum að gera ákveðna tiltekt í kerfunum hjá okkur. Í seinna skiptið sem út- tektin var framkvæmd gekk allt saman miklu betur. Það leikur enginn vafi á að sú vinna sem lögð var í jafnlaunaúttektina hefur margborgað sig og skilað sér margfalt til baka. Þessi vinna var að mínu mati á engan hátt íþyngjandi fyrir rekstur Lands- bankans,“ segir Baldur. Er jafnlaunaúttekt öflugt vopn í jafnréttisbaráttunni? „Já, ég tel að svona jafnlaunaút- tekt sé mjög jákvæð aðgerð sem gerir hverju fyrirtæki kleift að skoða, meta og jafna laun kynj- anna. Því fleiri fyrirtæki sem geta með þessum hætti sýnt fram á að hafa hlutina á hreinu, því meiri ætti jöfnuðurinn að verða í sam- félaginu almennt. Það er búið að eyða allt of miklum tíma í að spjalla og spekúlera og bíða eftir að eitthvað breytist. En þó svo að okkur sýnist staða jafnréttismála vera að batna, eru framfarirnar að mínu mati allt of hægar. Það þarf að ýta á eftir hlutun- um þannig að þetta fari að ganga miklu hraðar fyrir sig, konum, körlum og samfélaginu öllu til hagsbóta. Það gerist ekkert af sjálfu sér. Þess vegna tel ég að aðgerðir á borð við jafnlaunaút- tektina séu nauðsynlegar, rétt eins og þegar kynjakvótar voru teknir upp í stjórnum. Sú krafa kom hreyfingu á hlutina og hafði jákvæð áhrif. Við lítum svo á að þessi viðurkenning sé mikilvæg staðfesting á stöðu jafnréttismála í bankanum og hún er jafnframt hvatning til að viðhalda þeirri stöðu til framtíðar,“ segir Baldur. Klara Steinarsdóttir og Kristín Berta Sigurðardóttir starfsmenn mannauðsdeildar Landsbankans. Mannauður upplýsir starfsmenn regluglega um stöðu jafnréttismála á vinnustaðnum. Landsbankinn hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC undanfarin tvö ár. Landsbankinn er með skýra jafnréttisstefnu. Í þeirri stefnu er kveðið á um að konur og karlar skuli hafa jafna möguleika til starfsframa og njóta sömu réttinda í starfi. Jafnlaunaúttektin mikilvæg staðfesting á stöðu jafnréttismála í Landsbankanum Árið 2015 hlaut Landsbankinn gullmerki jafnlaunaúttektar PwC, fyrstur banka á Íslandi. Landsbankinn hlaut viðurkenninguna aftur á síðasta ári. Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC veitist fyrirtækjum þar sem launamunur kynjanna er innan við 3,5%.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.