Fréttatíminn - 11.03.2017, Side 48

Fréttatíminn - 11.03.2017, Side 48
12 LAUGARDAGUR 11. MARS 2017LAUNAJAFNRÉTTI „Í anda jafnréttis rekum við fyrirtækið“ Hýsing vöruhótel sérhæfir sig í öllu sem kemur að lagerhaldi, afgreiðslu og vörumerkingum á fatnaði og annarri smávöru. Unnið í samstarfi við Hýsingu vöruhótel Vöruhótelið er til húsa að Skútuvogi 9 og hefur einstaklega stóran og glæsilegan lager sem er um 11 þúsund fermetrar að stærð að meðtöldum hæðunum sem eru í húsinu. Ekkert annað vöruhótel á Íslandi líkist Hýsingu þar sem 8 km af hillum og um 10 km af fataslám eru notaðar til að geyma fatnað og aðra smávöru. Í raun má segja að um stærsta fataskáp landsins sé að ræða. Hýsing er einnig eitt af örfáum fyrirtækjum á Íslandi sem gefa sig út fyrir að sjá um innihalds- merkingar á vörum fyrir önnur fyrirtæki og hefur eftirspurn eftir þeirri þjónustu aukist mjög á síðustu árum. Hjá Hýsingu starfa 32 starfs- menn af 6 þjóðernum með fjöl- breyttan uppruna og mjög ólíkan bakgrunn en flestir koma frá Ís- landi eða Póllandi. Hlutfall kvenna á vinnustaðnum er mjög hátt en þær eru um 72% af starfsfólkinu. Þórdís Arnardóttir er rekstrar- stjóri hjá Hýsingu vöruhóteli. Hvers vegna ákváðuð þið að taka upp jafnlaunavottun? „Til að byrja með var það VR sem átti frumkvæðið að því að fyrir- tæki fóru af stað með þessa vinnu í samvinnu við BSI á Íslandi. Það má í raun og veru segja að við höfum unnið í þessum anda allt frá stofnun fyrirtækisins. Þegar okkur bauðst að fá vott- un samkvæmt jafnlaunavottunar- staðalinn ÍST 85:2012 þá reyndist það okkur mjög auðvelt. Okkur finnst skrýtið að fólk setji það fyrir sig að leggjast í þessa vinnu, árið er 2017 og ekkert eðlilegra en kynin fái sömu laun fyrir sömu vinnu,“ segir Þórdís. Var þetta mikil vinna fyrir fyrirtækið að fara í gegnum? „Nei, ég get ekki sagt það, auðvitað þurfti að fara í gegnum ýmis konar pappírsvinnu til að uppfylla skilyrði staðalsins, en þar sem þetta voru engar gagn- gerar breytingar á því hvernig fyr- irtækið var rekið þá hefur þessi vinna bara í raun auðveldað okkur hlutina. Eitt af því mikilvægasta var að skilgreina hvert og eitt starf eftir mikilvægi, ábyrgð og menntunarkröfum. Þegar það var komið þá var orðinn til skýr rammi sem við gátum unnið eftir. Við horfum ekki á störfin eftir kynjum og það skiptir okkur ekki máli hvort það er kona eða karl sem vinnur þau því fyrir ákveðið starf er bara ákveðið greitt, sama hvort kynið á í hlut. Þetta hjálpar okkur ekki síst þegar við erum að ráða inn nýtt starfsfólk, þá höfum við þennan skýra starfaramma og þannig getum við verið samkvæm sjálfum okkur,“ segir Þórdís. Þannig að þetta hefur nýst ykkur sem gott tæki? „Já, ekki spurning, þetta hefur gert okkur kleift að starfa í þeim anda sem við viljum vinna. Allar fréttir segja að það halli frekar á konur, þessu er frekar öfugt farið hjá okkur því þegar við fórum í gegnum síðustu úttekt var útskýrður kynbundinn launa- munur 2,7% konum í hag,“ segir Þórdís. En er tilfinning Þórdísar fyrir því að jafnlaunavottunin sé öflugt vopn í jafnréttisbaráttunni? „Já, tvímælalaust. Þetta finnst mér mjög öflugt vopn. Ég get ekki séð að hlutur kvenna á vinnu- markaði leiðréttist af sjálfu sér. Það þarf einhverjar róttækar að- gerðir,“ segir Þórdís Talið berst að kvenna- og karlastörfum og Þórdís segir: „Ég get alveg sagt þér að þegar ég tók við starfinu mínu hér hjá Hýsingu, sem rekstrarstjóri, að margir litu á það sem algjört karlastarf að stýra lager. Við erum ekki margar konurnar í þessum bransa en þeim fer fjölgandi, sem betur fer. Það skemmtilega er að hér hjá Hýsingu hafa bara verið konur í rekstrarstjórahlutverk- inu. Það er mjög sterk fyrirtækja- menning hjá okkur og í anda jafnréttis rekum við fyrirtækið og við höfum alltaf unnið í þess- um anda. Hér hjá okkur eru allir jafnir, hér sérðu konur keyra um á lyfturum og þar fram eftir götun- um. Umræðan um kvenna- og karlastörf á því ekki við hjá okkur þó að víða í samfélaginu megi vekja fólk betur til umhugsunar um þessi mál.“ Þegar ég tók við starfinu mínu hér hjá Hýsingu, sem rekstrarstjóri, litu margir á það sem algjört karlastarf að stýra lager, segir Þórdís Arnardóttir. Myndir | Hari Hjá Hýsingu starfa 32 starfsmenn af 6 þjóðernum með fjölbreyttan uppruna og mjög ólíkan bakgrunn en flestir koma frá Íslandi eða Póllandi. Hlutfall kvenna á vinnustaðnum er mjög hátt.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.