Ljósið - 15.05.1917, Blaðsíða 33

Ljósið - 15.05.1917, Blaðsíða 33
L J Ó SIÐ 31 kristna þjóðina, sem ekki veit nú, hverju trúa á. Þjóðin og fulltrúar hennar eru sundurþykkir. Hvorki kirkjan né rikið þekkja sannleikann fremur en Gyðingar og heiðingjar, sem ekki þektu sinn vitjunartíma. Guðfræð- ingar Gyðinga héldu sig gera guði þægt verk, er þeir lugu dauðasök upp á spámanninn frá Nazaret. Guðfræðingar þessa lands halda sig gera rétt að stein- þegja við dagsönnum orðum mínum, hvort sem ég hrópa til þeirra í ljóði eða lesmáli. Gömul hjátrú og vantrú á almætti drottins er svo rótgróin í sálum þjóð- klerka vorra, að þeir halda fast í ljóta, óholla fræði frá heiðingjum og Gyðingum. Gleðiboðskapurinn, sem Jesús færði öllum heimi, er ekki skurn, heldur kjarni, — sálu- hjálparmeðal handa öllum, sem læknast þurfa. Gömul lygi og hjátrú læknar aldrei heiminn, er við lifum i. Prófessor í guðfræoi Haraldur og séra Friðrik eru báðir ónýtir þjónar drottins vors og herra. Báðir eru þeir slíkir óvitar að byggja frelsi guðsbarna á dauðri bókfræði frá fornheimi og miðaldamönnum. Séra Har- aldur er »yfirspentur spíritisti«, fullyrðir, að englar hafi sungið og talað við fæðing spámannsins frá Nazaret. Dauðir eiga að rísa upp úr gröfum sínum og tala við lifandi mennv Blessaður prófessorinn hyggur sig geta stækkað söfnúð sinn með »spíritista«-glamri sínu. »Seint lýllist sál presta vorra«, sumra hverra; við vax- andi laun vex aura- og metorðagirndin. Enn sækjast drottins þjónar i voru landi eftir hækkandi launum, metorðum og háum sætum. Það vantar ekki, að mentaðir guðfræðingar vorir pré- diki um kærleika guðs í kirkju sinni. En sjúga þessir menn ekki út hús ekkna og föðurlausra barna fyrir óholla, gamla guðfræði, er þeir ekki geta varið með viti og þroskaðri skynsemi? Þessir tveir prestar svari fyrir sig. Séra Friðrik, barnafræðarinn góði, — hann er betur að mínu skapi, þótt blindtrúaður sé. Eg tel það rangt að fela sannleikann í umbúðum. Orð drottins á eigi að vera undir mælikeri. Frelsari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.