Ljósið - 15.05.1917, Qupperneq 50

Ljósið - 15.05.1917, Qupperneq 50
48 LJÓSIÐ virt minna en lygi og refaslægð launaðra valdhafa nú- tímans? Heiðruðu vinir mínir, góðtemplarar! Mér finst ykkur bera fult frelsi til þess að finna að því við löggæzluna, að hún ekki verndi lög lands vors, en gætið þess, að þótt slikt sé siðvenja, tizka, að láta atkvæðafjöldann ráða, þá er slíkt heiðindómur og gyðingdómur, því að með slíku afli sigruðu Gyðingar og heiðingjar, þá er kristindómshöfundurinn Jesús var ráðinn af dögum; það er það, sem yfirleitt viðgengst í veröldinni. Hið stóra vald höfðingjanna er kúgari fjöldans alls staðar í hinum þekta heimi. Guðsbarnafrelsið er fjötrað af illa sjáandi, veraldlega sinnuðum mönnum, er hugsa meira um sitt eigið gagn en jafnaðarfrelsi alþýðunnar. Ég get ekki skilið það, að sá góði hirðir hafi verið ónógur fræðari og frelsari allra þjóða. Að leitað sé frétta af framliðnum á þann hátt, sem vitringarnir nú gera, Einar Kvaran og Haraldur Níelsson, er og verður aldrei annað en vantrúaralda, er rís hátt og brotnar á bjargi kristindómsins. Þessir tveir herrar kunna ekki og þora ekki að rita á móti mér í fjöllesin blöð. Þá vantar brynju, hjálm og skjöld. Mál hafa þeir báðir, mentun, laun og álit fjöldans. Heiðruðu vinir mínir! Nú eru striðstímar, óstjórn í hinum kristna heimi. Hér á voru kæra Fróni er hálært höfðingjavald, sem alþýðan kann ekki að varast. Yfirleitt verður hún að dansa nauðug, þar eð högg- orma og refa slægð er hjá flestum valdhöfum nú meira og minna. Lög drottins vors og herra eru brotin í Iandi hér af þeim herrum, er lært hafa að falsa mál og fela sannleika og frelsi drottins undir friðargæru. Höggormur, úlfur og asni eru undir gyltum hjúpi, en innra er sin- girni, dramb og valdþorsti — allar ódygðir, sem valdi oft fylgja. Það eru milli 20 og 30 ár, síðan ég fékk kristilega köllun frá minum fræðara og frelsara, Jesú Kristi. Ég hefi þvi siðan barist ótrauður og óttalaust fyrir þvi, að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.