Ljósið - 15.05.1917, Page 53
LJÖSIÐ
51
Það er ekki mögulegt að kristna neina þjóð, hvorki
smáa né stóra, með argasta gyðingdómi, sem var verri
en heiðindómur á þeim tíma, er réttkristni píslarvottur-
inn Messías færði öllum heimi friðarboðskap síns kær-
leiksríka alföður, er veröldin og hennar elskendur ekki
vilja þekkja. Reynslan sýnir það, að bókmentir og ver-
aldleg vísindi kristna eklci heiminn.
Bókleg mentun, veraldarvísindi, eru nú á hæsta stigi
í þýzka ríkinu og brezka ríkinu. Og þó eru þau 10 boð-
orð Mósesar brotin öll af hans valdaþyrstu, mentuðu,
dýrkuðu lærisveinum. Mentaði heimurinn vill, að börn
verði réttkristin með því að þjóna bæði lyginnar höf-
undi og höfundi sannleikans. Heiðindómsandinn er djöf-
ull og morðingi frá upphafi, en andi kristna mannsins
er drottinn vor. Þó er hann smáður og lítils metinn, ef
um veraldlega hagsmuni er að ræða.
Eg væri hræsnari, ef ég segði, að æðstu völd rikis og
kirkju í þessu landi væru nægilega vel kristin. Guði sé
lof, að ég þori að segja satt. Yfirvöld vor eru gyðingleg,
fordildarfull og óheilbrigð í skoðunum. Menningin getur
ekki þrifist með slíkri eftirstæling stórþjóðanna, eins og
hér á sér stað. Ríkissjóðui'inn er í höndum valdhafa
svo margra og misvandaðra, að vandræði hafa leitt af.
Sama er um bankana. Skriffinskan vex og lögbrotum
fjölgar árlega; engum má trúa, því að hver hilmir yfir
annars bresti. Flestir vilja maka krókinn og lifa óþörfu
nautnalifi. Sannir verkamenn borga oft mest þeim, er
drotna ranglega yfir fénu og gera sér vini af ranglega
fengnum mammoni.
Það er kristileg skylda kennimanna drottins að virða
sannleikann, frelsara þjóða og einstaklinga. Þeir eiga
því að brjóta til mergjar hið þunga bibliumál og færa
börnunum hreinan kjarna.
Að vorri frjálsu þjóð er hér bannað að kaupa og
neyta víns — það er þrælahaft, sett á oss, frelsingja
drottins, og enginn stafur fyrir slíku lagaboði í nýja-
testamenti voru; óþörf mannaboð eru kúguð upp á
frjálsa þjóð vora af illa kristnum fulltrúum þjóðarinnar,
'i