Ljósið - 15.05.1917, Page 54

Ljósið - 15.05.1917, Page 54
52 LJÖSIÐ sem brjóta kjarna boðorða drottins vors, er vill, að menn, sínir frelsingjar, noti bæði mat og drykk. Brauð og vín var blessað af honum, sem færði oss kjarna boð- orðanna frá Sínaífjalli. Kjarni tiu boðorðanna er, að vér, vinir hins sanna manns, elskum guðdóminn á himnum yfir alla hluti fram og náungann eins og sjálfa oss. Það er almenningi kunnugt orðið, að menn, sem eru nafn- kristnir, æðstu valdhafar þjóðanna, brjóta boðorð sanna mannsins frá Nazaret og hafa ekki nokkura guðlega né kristilega heimild til að þröngva og kúga almenning til að halda sín lagaboð, er þeir brjóta sjálfir fyrir vitun- um á almenningi. Það er ljóst og sannanlegt, að hér í borginni, Reykjavik, eru vínbannslögin brotin af sum- um alþingismönnum vorum, líka af sumum heiðruðum starfsmönnum opinberra stofnana. Þessum lærðu lög- brotamönnum er hlíft. Þeir eru ekki sektaðir eða settir í járn og dregnir af launuðum lögreglumönnum í fanga- klefa. Ég veit, að sumir lögregluþjónar hafa drukkið á- fengi svo, að fleiri vita en ég, einnig háttvirtir reglu- boðar. Þessu er ekki bót mælandi. Það er svívirðing fyrir löggjafarvaldið i heild sinni, að þetta er satt. Það er ekki rétt, að lærisveinar drottins neiti því, að Jesús Kristur sé guð, faðir og herra kristinna manna. — Barnarétturinn er vor, en ekki þræla hins heiðna lög- gjafa Gyðinga, er leiddi þá á graslausa eyðimörk, þar sem fólkið dó kvalafulliim dauða. Góður hirðir var ekki morðinginn Móses! Hann braut sína löggjöf, og bróðir hans, Aron prestur, lét þrælana ginna sig til að gera gullkálfinn úr því gulli, er lygarinn Móse laug út úr rika fólkinu, sem léði gull- og silfurker til veizluhalds- ins, er landráðamaðurinn, töfravitringurinn Móses, ógn- aði Faraó konungi með. Mósesar andi var rammheiðinn. Messiasar andi rétt kristinn. Oss, frelsingjum drottins, ber að elska þann góða anda, en hata hinn. Það er min kenning. Það er mergur guðspjalla vorra, að rétt kendur gleði- boðskapur drottins, vors heilsugjafara, — hann eigi að út- skúfa heiðindómi og gyðingdómi. Ný saga á að mynd-

x

Ljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.