Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.02.2018, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 03.02.2018, Qupperneq 30
Dag einn fékk ég sím-tal og hef aldrei áður verið svona mála-liði ef svo má segja. Friðrik Erlingsson á handritið og fór með það til Gunnars Karlssonar teiknara og Hilmars Sigurðssonar fram- leiðanda en þeir gerðu saman Þór á sínum tíma. Gunni og Hilmar voru þá nýbúnir að stofna fyrirtækið Gunhill sem var til húsa í kjallaranum heima hjá Gunna, þannig að þetta byrjar smátt en draumarnir eru stórir,“ segir Árni Ólafur Ásgeirsson, kvikmynda- leikstjóri og leikstjóri teiknimyndar- innar Lói – þú flýgur aldrei einn sem var frumsýnd nú í lok vikunnar. Árni Ólafur segir að hann hafi fengið þetta símtal fyrir einum fimm árum. „Ég hitti þá á fundi og þeir buðu mér að taka að mér að leikstýra verk- efninu. Ég horfði á þá í dálitla stund og spurði þá svo bara hvort það væri ekki allt í lagi með þá. Ég hef aldrei komið nálægt vinnu við teiknimynd og að auki get ég ekki einu sinni teiknað egg til þess að bjarga líf mínu. En auðvitað varð ég spenntur svo ég fékk að lesa handritið og þá féll ég kylliflatur fyrir þessari sögu því hún er falleg.“ Fyrst útvarpsleikrit Árni Ólafur er lærður kvikmynda- leikstjóri frá virtum skóla í Póllandi en þar var ekki hugað að því sérstak- lega hvernig maður leikstýrir teikni- myndum. En hvernig leikstýrir maður teiknimynd? „Ég áttaði mig fljótlega á því að þetta er ekkert svo ólíkt því að leik- stýra hverri annarri kvikmynd. Ef þú ímyndar þér senu og í henni eru tvær manneskjur sem sitja við borð og eru að tala saman eins og við núna, þá þarf myndavélin að vera einhvers staðar. Síðan þarf á ákveðnum tíma- punkti að ákveða hvenær við klippum úr víða skotinu og yfir í nærmyndina og hina nærmyndina og svo framveg- is. Það þarf að útfæra þessa senu list- rænt og það er hlutverk leikstjórans. En auðvitað eru þetta mjög mörg þrep. Við handteiknum hvern ein- asta ramma áður en við förum með þetta í tölvurnar en áður en að því kemur tökum við upp allar radd- irnar og gerum bara útvarpsleikrit. Við gerðum það fyrir tveimur árum úti í London með breskum leikurum vegna þess að frumútgáfan er á ensku. Þetta er gert svona vegna þess að talið og hreyfingarnar á munnunum, eða öllu heldur goggunum í þessu tilviki, þurfa að passa saman. Hreyfast í takt við orðin. Tvær sekúndur á dag Þannig að mjög stór hluti af minni Geimskipið sem opnar fyrir sköpunarkraftinn Árni Ólafur segir að það sé svona gottvont að láta frá sér þessa mynd eftir svona langa meðgöngu. FréTTablaðið/Ernir lói lendir í ýmsum ævintýrum sem fylgir bæði dramatík og syngjandi gleði. Teiknimyndin Lói – þú flýgur aldrei einn, var frumsýnd í vik- unni, en Árni Ólafur Ásgeirsson leikstjóri segist vonast til þess að myndin eigi eftir að bera hróður ís- lenskrar kvikmynda- gerðar víða um lönd. teiknimynd og það er búið að selja hana til 55 landa í kvikmyndahús og það áður en hún kemur út. Hún verð- ur sýnd í bíó í öllum þessum löndum en kaupendurnir hafa ekki einu sinni séð hana, eftirspurnin er svo gríðar- leg. Í kjölfar frumsýningar hérna heima sýnum við hana fullkláraða í Berlín eftir mánuð og hver veit hvað gerist þá? En þetta segir okkur hversu stórt tækifæri er í þessum bransa.“ blóð, sviti og milljarður Árni Ólafur segir að sagan sem Frið- rik hafi skrifað sé tímalaust ævin- týri sem geti líka farið auðveldlega á milli ólíkra menningarheima. „Við myndfærum það á nútímalegan hátt en hann er samt að vinna með þessi klassísku minni. Þetta er mynd um vináttu, ástina, það að missa trúna á sjálfum sér og öðlast hana aftur – allt svona klassísk falleg þemu sem eiga alltaf erindi og þá sérstaklega við svona ungar sálir. Þetta er alþjóðlegt. En síðan gerist það að myndin er talsett á 55 tungumál og þannig að hún er óháð tungumálinu. Ef þú nærð þessu, að vera með góða sögu sem er ekki gísl tungumálsins, þá opnast ein- hverjar dyr, einhver markaður sem ég hef aldrei kynnst áður. Það var meiri- háttar mál að selja mínar fyrri myndir eins og Brim eða Blóðbönd í sjónvarp í útlöndum en þetta er eitthvað allt annað. Eitthvað sem er alveg meira en þess virði að rækta.“ Þegar Árni Ólafur byrjaði að vinna að þessu verkefni kom honum á óvart hversu margir Íslendingar hafa lært teiknimyndagerð og búa yfir mikilli þekkingu á því sviði. „Þarna er reyndar mjög mikil sér- hæfing og við erum kannski ekki með nægilega þekkingu til þess að fylla upp í allar stöður og ekki með fjármagn til að klára svona stór verk- efni enda erum við að framleiða þessa mynd fyrir fjármagn frá Belgíu að miklu leyti. Þeir eiga alveg fullt í þessari mynd enda kostar milljarð að búa hana til að ógleymdu því að hún kostar blóð svita og tár sem er ekki síður mikils virði. En fyrst og fremst er þetta íslensk mynd, íslensk saga um íslenska lóu í íslensku umhverfi og þess vegna ber hún vonandi hróður íslenskrar kvik- myndagerðar víða um heim.“ Eðlisfræði og geimskip En hvernig er að koma svona barni í heiminn eftir margra ára meðgöngu? „Já, það er nú svona gottvont,“ segir Árni Ólafur og glottir. „Það er að sjálfsögðu rosalegur léttir en það er kannski vond samlíking en þetta er samt dálítið eins og að vakna á sunnudegi eftir gott djamm og hugsa með sér: Ég ætla aldrei, aldrei aftur að fá mér í glas. En svo kemur fimmtu- dagur,“ segir Árni Ólafur og skellihlær. „Ætli það verði ekki svoleiðis með næstu mynd.“ Sérðu þá fyrir þér að halda áfram að leikstýra teiknimyndum? „Ég vona að í framtíðinni haldi ég áfram að gera leikið efni en það þýðir ekki að ég vilji ekki gera teiknimyndir, langt frá því. Það er eitt við það að gera teiknimyndir sem er þau lögmál sem þær myndir lúta. Geimskipið og allt verður að vera þannig í bíómyndum að þú verður að trúa því að það geti flogið en í teiknimyndum á það ekk- ert við. Að því leyti er þetta dálítið eins og að vera í leikhúsi þar sem má allt, alveg sama hversu abstrakt það er. Öll þessi lögmál eðlisfræðinnar eiga ekki við í teiknimyndum og það opnar fyrir skapandi kanala sem maður nánast vissi ekki að væru til. Þess vegna finnst mér þetta spennandi vettvangur. Hin stóra áskorunin er svo að finna barnið í sér. Setja sig í spor þess. Þessi mynd er skemmtileg og dramatísk og Lói lendir í alls konar ævintýrum og við vildum ekki gefa krökk- unum einhvern afslátt af dramanu heldur treysta þeim og bera virðingu fyrir þeim. Hvernig það á svo eftir að ganga verður bara að koma í ljós en ég hef engar áhyggjur,“ segir Árni Óli og brosir. Gríðarleg tækifæri Þó að hér sé unnið með erlendum framleiðendum þá er þetta gríðarlega stórt verkefni hvernig sem á það er litið. En skyldi Árni Ólafur hallast að því að það felist tækifæri í alþjóðlega teiknimyndageiranum fyrir íslenska kvikmyndagerð? „Málið er að þetta er fyrst og fremst fjölskylduskemmtun. Myndin sem slík er fyrst og fremst fyrir börn en vonandi geta foreldr- arnir komið með og skemmt sér ágætlega. En ef við hugsum aðeins um hvað það eru mörg börn í heiminum sem eru bara að bíða eftir næstu teiknimynd hvort sem hún er í sjónvarpi eða kvikmyndahúsi, þá kemur í ljós að það er í raun ekki búið að rækta þennan markað ýkja mikið og að þarna er fullt af tæki- færum. Það sýnir sig vel á því að þetta er í fyrsta skipti sem ég geri vinnu fór fram á fyrstu stigum vinnslunnar. Að leggja alla myndina og taka ákvarðanir sem átti síðan eftir að teikna. Þegar þetta er komið í tölvuna sit ég með kvikurunum, eins og animators eru kallaðir á íslensku, og við setjum tilfinningarnar í and- litsdrættina og hreyfingarnar og í raun tala ég við kvikarana eins og ég sé að tala við leikara. Þessir teiknarar eru ótrúlega hæfileikaríkir og magnað að sjá hvernig þeir ná að fanga tilfinn- ingar. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir því hvað það er mikil vinna á bak við þetta vegna þess að með full- komnasta tölvubúnaði og bestu for- ritum sem er hægt að fá, svona eins og við erum að vinna þetta í, þá er góður kvikari að skila af sér tveimur sekúndum á dag. Góð vika er 10 sekúndur og við vorum að gera 90 mínútna mynd,“ segir Árni Ólafur og getur ekki annað en hlegið við tilhugsunina áður en hann bætir við: „Þess vegna fær maður bara eitt tækifæri og enga aðra töku og verður að sjá þetta fyrir sér og það ferli felur í sér heilmikla listræna ákvörðun. Þannig að maður verður bara að rækta búdda munkinn í sér.“ Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r30 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 4 -A 1 8 8 1 E E 4 -A 0 4 C 1 E E 4 -9 F 1 0 1 E E 4 -9 D D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.