Fréttablaðið - 03.02.2018, Side 76

Fréttablaðið - 03.02.2018, Side 76
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Jim Davies, prófessor við Carle- ton-háskólann í Ottawa í Kanada, rannsakar hugsun og vitsmuni manna. Hann skrifaði bókina „Riveted: The Science of Why Jokes Make Us Laugh, Movies Make Us Cry, and Religion Makes Us Feel One with the Universe“ þar sem hann reynir meðal annars að svara því hvers vegna mannfólkið er svona hrifið af því að stunda og horfa á íþróttir. Íþróttir undirbúa okkar líkamlega Leikgleði er forn hegðun og ekki eitthvað sem fylgir bara mann- fólki. Fuglar og spendýr leika sér og leikur virðist þjóna því hlutverki að undirbúa okkur fyrir hasar fullorðinsáranna. Rándýr leika sér með því að gera árásir hvert á annað, elta hvert annað og glíma og dýr sem eru bráð annarra dýra leika sér með því að flýja hvert annað og æfa sig í að hlaupa og stökkva. Við mannfólkið æfum okkur líka í því sem við þurfum, eða þurftum að minnsta kosti, til að lifa af þegar við leikum okkur. Þess vegna snýst svo mikið af íþróttum okkar um að hlaupa, kasta, miða og vinna saman. Þetta er hæfni sem kemur sér vel fyrir veiðimann. Þeir sem stóðu sig vel í veiðum gátu skaffað nógan mat og unnu sér þannig aðdáun annarra. Það gæti verið hluti af skýringunni á aðdáun okkar á afreksíþrótta- mönnum. Íþróttir örva réttu stöðvarnar Ástæðan fyrir því að okkur finnst svo áhugavert að fylgjast með öðrum stunda íþróttir er að það örvar sömu stöðvar í heilanum og ef maður stundar þær sjálfur. Hlut- ar heilans sem stjórna hreyfingum örvast og það er til dæmis þess vegna sem börn fá svo sterka hvöt til að herma eftir hreyfingum sem þau sjá í íþróttum. Okkur finnst gaman að horfa á íþróttir af sömu ástæðu og okkur finnst gaman að stunda þær. Við erum gefin fyrir átök Keppnisíþróttir endurspegla átök og þess vegna eru vinsælar íþróttir yfirleitt frekar átakamiklar. Íþróttir Af hverju elskum við íþróttir? Milljónir manna horfa reglulega á alls kyns íþróttaviðburði og um helgina ætla margir að bæta glápi á Super Bowl við hefðbundna dagskrá. En hvað heillar fólk svona mikið við íþróttir? Íslenskir fótboltaáhugamenn styðja landsliðið af krafti. MYND/VILHELM Margir ætla að fylgjast með Super Bowl leiknum milli New England Patriots og Philadelphia Eagles um helgina. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY Fólk um allan heim fylgist með íþróttum af mikilli ástríðu. MYND/NORDICP- HOTOS/GETTY FERMINGARBLAÐIÐ Veglegt sérblað Fréttablaðsins um fermingar kemur út 27. febrúar nk. Allt sem viðkemur fermingunni og miklu miklu meira. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is eru að mörgu leyti táknrænar fyrir átök milli fólks og jafnvel þau sem verða innra með okkur. Íþróttir auka líka samkennd á milli fólks sem styður sama liðið og okkur líður eins og við séum hluti af ein- hverju sem er stærra en við. Íþróttirnar vekja líka með okkur tilfinningu fyrir tryggð, sem er grundvallaratriði í sið- ferðisvitund okkar. Fólk skipar sér í fylkingar með ólíkum liðum eða íþróttamönnum og í gegnum þau upplifum við sigurtilfinningu, tap og aðrar sterkar tilfinningar. Karl- menn fá líka aukið testósterónflæði þegar þeir sjá uppáhaldsliðið sitt vinna. Þess vegna heldur fólk yfir- leitt tryggð við heimaliðið sitt. Við kunnum að meta að einhver skari fram úr Við erum heilluð af afburðahæfni, hvort sem það er í íþróttum, listum eða öðru. En það er ekki vitað nákvæmlega af hverju. Þar sem heili okkar bregst við á svipaðan hátt þegar við horfum á eitthvert atferli eins og þegar við stundum það gæti verið að við lærum að einhverju leyti að gera hluti þegar við horfum á aðra gera þá. Þetta gæti um leið útskýrt af hverju myndbönd af fólki að mis- heppnast að gera ýmislegt njóta svo mikilla vinsælda á netinu. Við viljum læra hvernig á ekki að gera hlutina. Íþróttir geta verið fallegar Margir eru hrifnir af íþróttum af fagurfræðilegum ástæðum. Það er sérstaklega augljóst í íþróttum sem eru dæmdar eftir útlitinu, eins og í listdansi á skautum eða fim- leikum. En þetta á líka við um aðrar íþróttir, eins og fótbolta, þar sem fólk nýtur þess að sjá „fallegt spil“ eða „stórglæsilegt mark“. Í bardaga- íþróttum er mikil áhersla á rétta beitingu tækni og fólki finnst rétt tækni yfirleitt „falleg“ á að horfa. Okkur finnst gaman að sjá eitthvað framkvæmt rétt eða rosalega vel og það tengist aftur þessari aðdáun sem við höfum á afburðahæfni. Það er ekkert eitt svar við spurn- ingunni: „Af hverju elskum við íþróttir?“ Það eru nokkrar ólíkar ástæður fyrir því, sem virðast í mörgum tilvikum tengjast forsögu- legri fortíð okkar og þeirri hæfni sem við þurftum að rækta hjá okkur til að lifa af sem veiðimenn og safnarar, sem og sálfræðinni á bak við samfélög og samvinnu manna. Það er því skiljanlegt að íþróttir hafi fylgt okkur í gegnum árþúsundin og við missum líklega seint ástríðuna fyrir þeim. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . F E B R úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 1 2 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 4 -F A 6 8 1 E E 4 -F 9 2 C 1 E E 4 -F 7 F 0 1 E E 4 -F 6 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.