Fréttablaðið - 03.02.2018, Síða 38
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Nýjasta vara húsgagnahönn-unar- og framleiðslufyrir-tækisins AGUSTAV er fal-
legur trébekkur úr gegnheilum viði
með svörtum stálfótum. Gústav
Jóhannsson, annar helmingur
fyrirtækisins, segir að hugmyndin
að honum hafa verið lengi að
mótast hjá þeim. „Við sýndum hug-
myndina að honum fyrst á sýningu
síðasta sumar en náðum svo loks
að klára útfærsluna og bjóða upp
á hana sem part af vöruúrvalinu
okkar um miðjan október. Við
höfum prófað okkur áfram með
ýmsar viðartýpur og bjóðum nú
upp á bekkinn í eik, hnotu og
mahóní. Engar skrúfur eða naglar
eru í bekknum heldur stendur
hann á spennunni einni saman.“
Hinn helmingur fyrirtækisins,
Ágústa Magnúsdóttir, segir bekk-
inn tilvalinn á ganginn, við enda
rúmsins, við borðstofuborðið eða
hvar sem vantar bekk á heimilið.
„Undirstuðningurinn nýtist svo
einnig vel sem hilla fyrir skó, box,
körfur eða annað. Viðtökurnar á
bekknum hafa verið framar öllum
vonum og það er gaman að sjá
hvað fólki dettur í hug að nota
hann á marga mismunandi vegu.“
Ágústa og Gústav eru hjón og
hafa rekið fyrirtækið saman frá
árinu 2011 en þau fluttu heim árið
2014 eftir margra ára dvöl í Dan-
mörku og á Ítalíu.
Mikilvægur vettvangur
Það styttist í HönnunarMars
sem þau segja að hafi alltaf verið
mikilvægur vettvangur til að vekja
athygli á sér. „Það er gulls ígildi
að eiga nokkra daga á ári þar sem
stór hluti íbúa landsins og erlendir
gestir flykkjast um bæinn með það
að markmiði að kynna sér hvað er
í boði.“
Í ár munu þau standa fyrir
sýningu í nýju sýningarrými þeirra
og Kjartans Óskarssonar á Funa-
höfða 3. „Þar ætlum við að kynna
bæði sýningarrýmið og verkstæðið
og kynna um leið hugmynda-
fræðina sem við vinnum út frá.
Að sjálfsögðu munum við einn-
ig kynna nýjar vörur, m.a. nýjan
stól sem við erum mjög spennt
fyrir. Þessi þróunartími er einhver
skemmtilegasti tími ársins og við
viljum alltaf koma með fleiri vörur
en færri en við sjáum hvernig þetta
þróast hjá okkur í ár.“
Ný hugmynd
Fyrir utan nýjar vörur hyggjast
þau einnig kynna nýja hugmynd
sem leiðir af sér hálfgerða vöru-
línu. „Við höfum alltaf verið mjög
upptekin af því að passa upp á
umhverfið í framleiðslunni okkar
og m.a. gróðursett tré fyrir hverja
selda vöru. Nú viljum við taka
þetta skrefinu lengra. Við höfum
reynt að minnka affall frá okkur
eins og við getum og nýtt allt efni
eins vel og hægt er. Við köllum nýju
hugmyndina okkar AFGANGAR og
gengur hún út á að þaulnýta alla
afganga sem falla til á verkstæðinu
til framleiðslu á nýjum vörum.“
Ganga skrefinu lengra
Fallegur trébekkur úr gegnheilum viði með svörtum stálfótum er nýjasta afurð AGUSTAV. Á Hönn-
unarmars munu þau Gústav og Ágústa sýna gestum nýtt sýningarrými og kynna nýjar vörur.
Hjónin Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson eru eigendur húsgagna-
hönnunar- og framleiðslufyrirtækisins AGUSTAV. MYND/ANTON BRINK
Nýi trébekkurinn er úr gegnheilum viði með svörtum stálfótum. Hann er hægt að nota víða innan veggja heimilisins. MYND/ANTON BRINK
Engar skrúfur
eða naglar eru í
bekknum heldur
stendur hann á
spennunni einni
saman. MYND/
ANTON BRINK
Þau eru nú þegar komin með
nokkrar litlar heimilis- og lífsstíls-
vörur, allar unnar úr afgöngum,
sem þau ætla að kynna og bjóða til
sölu á HönnunarMars. „Með þessu
móti minnkum við rusl og nýtum
afurðir til fulls og getum um leið
framleitt smærri vörur á hagstæðu
verði. Allir græða!“
Nánar má kynna sér hönnun þeirra
á www.AGUSTAV.is og á Facebook
(AGUSTAVfurniture).
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
TU
N
.IS
@OptiBac
www.facebook.com/optibaciceland
Bestu meltingargerlar
sem ég hef prófað
”
“
Víðir Þór Þrastarsson,
íþrótta- og heilsufræðingur
frá Háskóla Íslands.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . F E B R úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
4
-F
F
5
8
1
E
E
4
-F
E
1
C
1
E
E
4
-F
C
E
0
1
E
E
4
-F
B
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K