Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 38

Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 38
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Nýjasta vara húsgagnahönn-unar- og framleiðslufyrir-tækisins AGUSTAV er fal- legur trébekkur úr gegnheilum viði með svörtum stálfótum. Gústav Jóhannsson, annar helmingur fyrirtækisins, segir að hugmyndin að honum hafa verið lengi að mótast hjá þeim. „Við sýndum hug- myndina að honum fyrst á sýningu síðasta sumar en náðum svo loks að klára útfærsluna og bjóða upp á hana sem part af vöruúrvalinu okkar um miðjan október. Við höfum prófað okkur áfram með ýmsar viðartýpur og bjóðum nú upp á bekkinn í eik, hnotu og mahóní. Engar skrúfur eða naglar eru í bekknum heldur stendur hann á spennunni einni saman.“ Hinn helmingur fyrirtækisins, Ágústa Magnúsdóttir, segir bekk- inn tilvalinn á ganginn, við enda rúmsins, við borðstofuborðið eða hvar sem vantar bekk á heimilið. „Undirstuðningurinn nýtist svo einnig vel sem hilla fyrir skó, box, körfur eða annað. Viðtökurnar á bekknum hafa verið framar öllum vonum og það er gaman að sjá hvað fólki dettur í hug að nota hann á marga mismunandi vegu.“ Ágústa og Gústav eru hjón og hafa rekið fyrirtækið saman frá árinu 2011 en þau fluttu heim árið 2014 eftir margra ára dvöl í Dan- mörku og á Ítalíu. Mikilvægur vettvangur Það styttist í HönnunarMars sem þau segja að hafi alltaf verið mikilvægur vettvangur til að vekja athygli á sér. „Það er gulls ígildi að eiga nokkra daga á ári þar sem stór hluti íbúa landsins og erlendir gestir flykkjast um bæinn með það að markmiði að kynna sér hvað er í boði.“ Í ár munu þau standa fyrir sýningu í nýju sýningarrými þeirra og Kjartans Óskarssonar á Funa- höfða 3. „Þar ætlum við að kynna bæði sýningarrýmið og verkstæðið og kynna um leið hugmynda- fræðina sem við vinnum út frá. Að sjálfsögðu munum við einn- ig kynna nýjar vörur, m.a. nýjan stól sem við erum mjög spennt fyrir. Þessi þróunartími er einhver skemmtilegasti tími ársins og við viljum alltaf koma með fleiri vörur en færri en við sjáum hvernig þetta þróast hjá okkur í ár.“ Ný hugmynd Fyrir utan nýjar vörur hyggjast þau einnig kynna nýja hugmynd sem leiðir af sér hálfgerða vöru- línu. „Við höfum alltaf verið mjög upptekin af því að passa upp á umhverfið í framleiðslunni okkar og m.a. gróðursett tré fyrir hverja selda vöru. Nú viljum við taka þetta skrefinu lengra. Við höfum reynt að minnka affall frá okkur eins og við getum og nýtt allt efni eins vel og hægt er. Við köllum nýju hugmyndina okkar AFGANGAR og gengur hún út á að þaulnýta alla afganga sem falla til á verkstæðinu til framleiðslu á nýjum vörum.“ Ganga skrefinu lengra Fallegur trébekkur úr gegnheilum viði með svörtum stálfótum er nýjasta afurð AGUSTAV. Á Hönn- unarmars munu þau Gústav og Ágústa sýna gestum nýtt sýningarrými og kynna nýjar vörur. Hjónin Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson eru eigendur húsgagna- hönnunar- og framleiðslufyrirtækisins AGUSTAV. MYND/ANTON BRINK Nýi trébekkurinn er úr gegnheilum viði með svörtum stálfótum. Hann er hægt að nota víða innan veggja heimilisins. MYND/ANTON BRINK Engar skrúfur eða naglar eru í bekknum heldur stendur hann á spennunni einni saman. MYND/ ANTON BRINK Þau eru nú þegar komin með nokkrar litlar heimilis- og lífsstíls- vörur, allar unnar úr afgöngum, sem þau ætla að kynna og bjóða til sölu á HönnunarMars. „Með þessu móti minnkum við rusl og nýtum afurðir til fulls og getum um leið framleitt smærri vörur á hagstæðu verði. Allir græða!“ Nánar má kynna sér hönnun þeirra á www.AGUSTAV.is og á Facebook (AGUSTAVfurniture). Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N TU N .IS @OptiBac www.facebook.com/optibaciceland Bestu meltingargerlar sem ég hef prófað ” “ Víðir Þór Þrastarsson, íþrótta- og heilsufræðingur frá Háskóla Íslands. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . F E B R úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 1 2 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 4 -F F 5 8 1 E E 4 -F E 1 C 1 E E 4 -F C E 0 1 E E 4 -F B A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.