Fréttablaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 86
Enski rithöfundurinn H.G. Wells var kunnastur fyrir vísindaskáldsögur sínar, svo sem Innrásina frá Mars. Hann var þó einn-ig afkastamikill höfundur
alþýðlegra sagnfræðirita. Í einu slíku,
frá árinu 1921, varpaði Wells fram til-
gátu um mestu hamfarir í sögu mann-
kyns.
Kenning hans var sú að landbrú
hefði verið á milli Afríku og Evrópu
allt til loka síðustu ísaldar fyrir um
tíu til þrjátíu þúsund árum. Mið-
jarðarhaf hafi því verið lokað innhaf
og sjávarstaða þess miklu lægri en
Atlantshafsins. Gíbraltarsund hafi
svo opnast og vatn streymt inn í Mið-
jarðarhafið með gríðarlegum flóðum
og hörmungum fyrir mannfólk það
sem áður hafði búið á svæðinu. Er
auðvelt að gera sér í hugarlund að
slíkar hamfarir hefðu getað orðið
kveikja að goðsögnum á borð við
þá af Nóaflóðinu. Aðrir höfundar
hafa freistast til að láta þessa atburði
gerast ennþá nær okkur í tíma og
skýra með því sagnirnar um horfnu
borgina Atlantis.
Skemmst er frá því að segja að til-
gáta Wells var röng. Sjór var farinn
að streyma úr Atlantshafi í Mið-
jarðarhaf um Gíbraltarsund löngu
áður en Homo sapiens kom fram á
sjónarsviðið. Atburðarás á borð við
þá sem hann lýsti hafði hins vegar átt
sér stað miklu fyrr, eða fyrir meira en
fimm milljónum ára. Þá hafði Mið-
jarðarhafið lokast í tugi eða hundruð
þúsunda ára en opnast á ný með
gríðarlegum flóðum. Eru miklar salt-
námur í Evrópu og Afríku ein helsta
vísbendingin um þessa jarðfræðilegu
þróun.
Það voru einmitt rannsóknir nátt-
úruvísindamanna sem urðu Wells
innblástur í kenningasmíðinni. Með
því að reikna út uppgufun Miðjarðar-
hafsins samanborið við það vatn sem
í það bærist, var ljóst að ef ekki kæmi
til sjór úr Atlantshafi myndi þetta
sögufræga haf skreppa skjótt saman.
Slíkar breytingar mátti svo nota til
að skýra eitt og annað í náttúrusögu
svæðisins.
Skrif jarðfræðinga um forna sjávar-
stöðu Miðjarðarhafsins urðu H.G.
Wells uppspretta vangaveltna um
fortíðina, en fyrir þýska arkitektinn
Herman Sörgel urðu þau kveikjan að
framtíðarsýn.
Tæknin tryggir friðinn
Sörgel fæddist í Bæjaralandi árið
1885 og nam byggingarlist við
Tækniháskólann í München. Hann
tileinkaði sér hugmyndafræði Bau-
haus-hreyfingarinnar, sem var alls-
ráðandi í þýskum arkitektúr á þriðja
áratugnum. Forsprakkar Bauhaus
boðuðu samruna fagurfræði bygg-
ingarlistar og tæknilegrar verkkunn-
áttu. Að þeirra mati ætti hönnun fyrst
og fremst að vera hagnýt og þannig
gæti hún breytt samfélaginu og bætt
það.
Sörgel þótti slyngur arkitekt, en
það voru þó ekki einstakar bygg-
ingar sem héldu nafni hans á lofti,
heldur stórkarlalegar skipulagshug-
myndir. Líkt og svo margir evrópskir
menntamenn óttaðist hann að ný
heimsstyrjöld væri yfirvofandi. Þýska
þjóðin sleikti sárin eftir stríðið og
hætt var við að öfgaöfl sem krefðust
landvinninga og „lífsrýmis“ næðu
eyrum almennings. Jafnframt þótti
mörgum sem Evrópa mætti muna
sinn fífil fegri. Heimsálfan væri snauð
af náttúruauðlindum en í Ameríku og
Asíu væru rísandi stórveldi sem væru
hægt og bítandi að ræna Evrópubúa
forystuhlutverki þeirra.
Niðurstaða Sörgels var sú að ríki
Evrópu yrðu að hætta að bítast sín
á milli um takmarkaðar auðlindir,
heldur sækja á ný mið og fá útrás
fyrir orku sína og metnað með því
að vinna að sameiginlegu markmiði
í stað hernaðarbrölts. Það markmið
væri sameining Evrópu og Afríku!
Sörgel vildi reisa stærstu stíflu í
heimi um Gíbraltarsund. Í henni
yrði jafnframt vatnsaflsvirkjun upp
á 50.000 megavött eða sem samsvarar
átta Kárahnjúkavirkjunum. Annað
eins afl yrði framleitt í risavirkjunum
í Afríku og við stíflur í Hellusundi og
milli Ítalíu, Sikileyjar og Túnis. Þar
með yrði orkuþörf Evrópu fullnægt
til frambúðar, auk þess sem stríð yrðu
úr sögunni þar sem stjórn virkjan-
anna væri falin alþjóðlegri stofnun
sem myndi einfaldlega skrúfa fyrir
rafmagnið til þeirra ríkja sem brytu
gegn alþjóðalögum.
Með þessu móti myndi yfirborð
Miðjarðarhafsins lækka um allt að
200 metra og til verða landsvæði
á stærð við Frakkland. Ekki vildi
Sörgel láta þar staðar numið, heldur
sá hann fyrir sér að veita Kongófljót-
inu í norðurátt og skapa þannig tvö
risavaxin stöðuvötn í miðri Afríku.
Úr þeim yrði vatninu svo veitt um
Sahara-eyðimörkina til að græða
hana upp.
Auk þess að skapa mikið ræktar-
land, áttu breytingarnar að gjörbylta
samgöngum. Með landbrú milli Ítalíu
og Afríku yrði hægt að leggja járn-
brautarteina frá Jóhannesarborg til
Berlínar. Iðnaður Evrópubúa myndi
blómstra með auðveldu aðgengi að
gjöfulum og ódýrum náttúruauð-
lindum Afríku.
Evrópsk yfirráð
Óhætt er að segja að framtíðarsýn
Sörgels hafi verið Evrópumiðuð og
einkennst af ótrúlegum hroka í garð
Afríkubúa, sem áttu einvörðungu
að leggja herraþjóðunum í norðri
til hráefni. Ekkert var hugsað út í
afleiðingarnar fyrir íbúa álfunnar,
en stöðuvötnin í Kongófljóti hefðu
sökkt heilu löndunum. Raunar taldi
Sörgel það sérstök rök fyrir því að
þjóðir Evrópu slíðruðu sverðin að
með því mætti framlengja nýlendu-
stefnuna í Afríku.
Skeytingarleysið var svipað varð-
andi umhverfisáhrif þessara trölls-
legu áætlana. Virtist arkitektinn
engar áhyggjur hafa af lífríki í þessu
sambandi. Að svo miklu leyti sem
Sörgel leiddi hugann að slíkum
þáttum, taldi hann að afleiðingarnar
yrðu að mestu leyti jákvæðar. Þann-
ig myndu breytingar á hafstraumum
líklega valda því að veðurfar yrði
betra í Norður-Evrópu og hagsmunir
íbúa þeirra svæða skiptu jú mestu
máli.
Á sama hátt kærði Sörgel sig koll-
óttan um afdrif þeirra hafnarborga
við Miðjarðarhafið sem snögglega
yrðu komnar inn í mitt land. Undan-
tekning á þessu voru þó Feneyjar, en
til að varðveita þá sögufrægu borg sá
Þjóðverjinn fyrir sér að útbúið yrði
manngert sjávarlón við borgina sem
tengt yrði til hafs með miklum skipa-
skurði.
Mannvirkjagerð sú, sem áformin
gerðu ráð fyrir, hefði orðið sú
umfangsmesta í sögunni og voru
skiptar skoðanir um hvort unnt
væri að framleiða allt það sement
sem stíflugarðurinn við Gíbraltar
hefði kallað á. Engu að síður hreyfði
hugmyndin við mörgum og til varð
félagsskapur fólks sem barðist fyrir
verkefninu.
Áhugalausir nasistar
Við valdatöku nasista í Þýskalandi
freistaði Sörgel þess að vekja áhuga
hinna nýju valdhafa á málinu. Nas-
istar kærðu sig hins vegar lítið um að
vinna ný lönd til suðurs, heldur var
hugur þeirra bundinn við Austur-
Evrópu, þar sem skapa skyldi aríska
kynstofninum lífsrými. Árin fram að
seinni heimsstyrjöldinni fór því lítið
fyrir tillögum Sörgels, enda forystu-
ríki Evrópu fremur í stríðshug en að
stefna á víðtæka samvinnu.
Áhugaleysi Þriðja ríkisins um
stíflun Miðjarðarhafsins kom sér vel
að stríði loknu. Í stað þess að hug-
myndinni væri varpað á ruslahauga
sögunnar líkt og hverri annarri sturl-
aðri nasistahugmynd var hægt að
dusta rykið af tillögunum og kynna
sem leið til endurreisnar Evrópu og
framlag til friðsamlegrar framtíðar í
álfunni.
Næstu árin var Sörgel óþreytandi
að ferðast um heiminn að kynna
framtíðarsýn sína og tókst að vinna
ýmsa á sitt band. Á leið til fyrirlestrar
um hugðarefni sitt við München-
háskóla síðla árs 1952 gekk hann í veg
fyrir bifreið sem kom aðvífandi og
lést af sárum sínum fáeinum dögum
síðar. Hann varð 67 ára gamall.
Án æðstaprests síns átti söfnuður
Sörgels ekki langra lífdaga auðið. Eftir
því sem leið á sjötta áratuginn fækk-
aði sífellt þeim sem létu sig dreyma
um risastíflurnar umhverfis Miðjarð-
arhafið. Þar spiluðu margir þættir inn
í. Tök Evrópuríkja á gömlum nýlend-
um sínum í Afríku fóru minnkandi og
flestum mátti ljóst vera að ekki yrði
unnt að ráðskast með þær til fram-
tíðar líkt og verið hafði.
Það voru þó tækninýjungar og þá
sérstaklega óraunhæfar væntingar
til kjarnorkutækninnar sem endan-
lega gerðu út af við drauminn um
samruna Evrópu og Afríku. Hug-
myndin um að leysa raforkuþörf
Evrópu með risavirkjununum hafði
verið það atriði í hugmyndum Sör-
gels sem helst hafði náð eyrum fólks.
Með kjarnorkuverum töldu margir að
orkuvandi heimsins væri úr sögunni.
Raforkuframleiðsla með kjarnorku-
verum var talin vandkvæðalaus
tækni sem hlyti að verða sífellt auð-
veldari og ódýrari í framkvæmd. And-
spænis slíkri framtíðarsýn virtust
hugmyndir um risastíflur til að virkja
sjávarföllin úreltar og alltof flóknar.
Minna þær vangaveltur óneitanlega
á íslensk skrif í upphafi sjöunda ára-
tugarins þess efnis að síðustu forvöð
væru fyrir landsmenn að virkja jökul-
árnar áður en nútímakjarnorkutækni
kippti endanlega fótunum undan
vatnsaflsvirkjunum.
Risastíflan og
stækkun Evrópu
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um stóra
drauma.
einkenndiSt af ótrú-
legum hroka í garð
afríkubúa.
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
4
-B
A
3
8
1
E
E
4
-B
8
F
C
1
E
E
4
-B
7
C
0
1
E
E
4
-B
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K