Fréttablaðið - 03.02.2018, Síða 86

Fréttablaðið - 03.02.2018, Síða 86
Enski rithöfundurinn H.G. Wells var kunnastur fyrir vísindaskáldsögur sínar, svo sem Innrásina frá Mars. Hann var þó einn-ig afkastamikill höfundur alþýðlegra sagnfræðirita. Í einu slíku, frá árinu 1921, varpaði Wells fram til- gátu um mestu hamfarir í sögu mann- kyns. Kenning hans var sú að landbrú hefði verið á milli Afríku og Evrópu allt til loka síðustu ísaldar fyrir um tíu til þrjátíu þúsund árum. Mið- jarðarhaf hafi því verið lokað innhaf og sjávarstaða þess miklu lægri en Atlantshafsins. Gíbraltarsund hafi svo opnast og vatn streymt inn í Mið- jarðarhafið með gríðarlegum flóðum og hörmungum fyrir mannfólk það sem áður hafði búið á svæðinu. Er auðvelt að gera sér í hugarlund að slíkar hamfarir hefðu getað orðið kveikja að goðsögnum á borð við þá af Nóaflóðinu. Aðrir höfundar hafa freistast til að láta þessa atburði gerast ennþá nær okkur í tíma og skýra með því sagnirnar um horfnu borgina Atlantis. Skemmst er frá því að segja að til- gáta Wells var röng. Sjór var farinn að streyma úr Atlantshafi í Mið- jarðarhaf um Gíbraltarsund löngu áður en Homo sapiens kom fram á sjónarsviðið. Atburðarás á borð við þá sem hann lýsti hafði hins vegar átt sér stað miklu fyrr, eða fyrir meira en fimm milljónum ára. Þá hafði Mið- jarðarhafið lokast í tugi eða hundruð þúsunda ára en opnast á ný með gríðarlegum flóðum. Eru miklar salt- námur í Evrópu og Afríku ein helsta vísbendingin um þessa jarðfræðilegu þróun. Það voru einmitt rannsóknir nátt- úruvísindamanna sem urðu Wells innblástur í kenningasmíðinni. Með því að reikna út uppgufun Miðjarðar- hafsins samanborið við það vatn sem í það bærist, var ljóst að ef ekki kæmi til sjór úr Atlantshafi myndi þetta sögufræga haf skreppa skjótt saman. Slíkar breytingar mátti svo nota til að skýra eitt og annað í náttúrusögu svæðisins. Skrif jarðfræðinga um forna sjávar- stöðu Miðjarðarhafsins urðu H.G. Wells uppspretta vangaveltna um fortíðina, en fyrir þýska arkitektinn Herman Sörgel urðu þau kveikjan að framtíðarsýn. Tæknin tryggir friðinn Sörgel fæddist í Bæjaralandi árið 1885 og nam byggingarlist við Tækniháskólann í München. Hann tileinkaði sér hugmyndafræði Bau- haus-hreyfingarinnar, sem var alls- ráðandi í þýskum arkitektúr á þriðja áratugnum. Forsprakkar Bauhaus boðuðu samruna fagurfræði bygg- ingarlistar og tæknilegrar verkkunn- áttu. Að þeirra mati ætti hönnun fyrst og fremst að vera hagnýt og þannig gæti hún breytt samfélaginu og bætt það. Sörgel þótti slyngur arkitekt, en það voru þó ekki einstakar bygg- ingar sem héldu nafni hans á lofti, heldur stórkarlalegar skipulagshug- myndir. Líkt og svo margir evrópskir menntamenn óttaðist hann að ný heimsstyrjöld væri yfirvofandi. Þýska þjóðin sleikti sárin eftir stríðið og hætt var við að öfgaöfl sem krefðust landvinninga og „lífsrýmis“ næðu eyrum almennings. Jafnframt þótti mörgum sem Evrópa mætti muna sinn fífil fegri. Heimsálfan væri snauð af náttúruauðlindum en í Ameríku og Asíu væru rísandi stórveldi sem væru hægt og bítandi að ræna Evrópubúa forystuhlutverki þeirra. Niðurstaða Sörgels var sú að ríki Evrópu yrðu að hætta að bítast sín á milli um takmarkaðar auðlindir, heldur sækja á ný mið og fá útrás fyrir orku sína og metnað með því að vinna að sameiginlegu markmiði í stað hernaðarbrölts. Það markmið væri sameining Evrópu og Afríku! Sörgel vildi reisa stærstu stíflu í heimi um Gíbraltarsund. Í henni yrði jafnframt vatnsaflsvirkjun upp á 50.000 megavött eða sem samsvarar átta Kárahnjúkavirkjunum. Annað eins afl yrði framleitt í risavirkjunum í Afríku og við stíflur í Hellusundi og milli Ítalíu, Sikileyjar og Túnis. Þar með yrði orkuþörf Evrópu fullnægt til frambúðar, auk þess sem stríð yrðu úr sögunni þar sem stjórn virkjan- anna væri falin alþjóðlegri stofnun sem myndi einfaldlega skrúfa fyrir rafmagnið til þeirra ríkja sem brytu gegn alþjóðalögum. Með þessu móti myndi yfirborð Miðjarðarhafsins lækka um allt að 200 metra og til verða landsvæði á stærð við Frakkland. Ekki vildi Sörgel láta þar staðar numið, heldur sá hann fyrir sér að veita Kongófljót- inu í norðurátt og skapa þannig tvö risavaxin stöðuvötn í miðri Afríku. Úr þeim yrði vatninu svo veitt um Sahara-eyðimörkina til að græða hana upp. Auk þess að skapa mikið ræktar- land, áttu breytingarnar að gjörbylta samgöngum. Með landbrú milli Ítalíu og Afríku yrði hægt að leggja járn- brautarteina frá Jóhannesarborg til Berlínar. Iðnaður Evrópubúa myndi blómstra með auðveldu aðgengi að gjöfulum og ódýrum náttúruauð- lindum Afríku. Evrópsk yfirráð Óhætt er að segja að framtíðarsýn Sörgels hafi verið Evrópumiðuð og einkennst af ótrúlegum hroka í garð Afríkubúa, sem áttu einvörðungu að leggja herraþjóðunum í norðri til hráefni. Ekkert var hugsað út í afleiðingarnar fyrir íbúa álfunnar, en stöðuvötnin í Kongófljóti hefðu sökkt heilu löndunum. Raunar taldi Sörgel það sérstök rök fyrir því að þjóðir Evrópu slíðruðu sverðin að með því mætti framlengja nýlendu- stefnuna í Afríku. Skeytingarleysið var svipað varð- andi umhverfisáhrif þessara trölls- legu áætlana. Virtist arkitektinn engar áhyggjur hafa af lífríki í þessu sambandi. Að svo miklu leyti sem Sörgel leiddi hugann að slíkum þáttum, taldi hann að afleiðingarnar yrðu að mestu leyti jákvæðar. Þann- ig myndu breytingar á hafstraumum líklega valda því að veðurfar yrði betra í Norður-Evrópu og hagsmunir íbúa þeirra svæða skiptu jú mestu máli. Á sama hátt kærði Sörgel sig koll- óttan um afdrif þeirra hafnarborga við Miðjarðarhafið sem snögglega yrðu komnar inn í mitt land. Undan- tekning á þessu voru þó Feneyjar, en til að varðveita þá sögufrægu borg sá Þjóðverjinn fyrir sér að útbúið yrði manngert sjávarlón við borgina sem tengt yrði til hafs með miklum skipa- skurði. Mannvirkjagerð sú, sem áformin gerðu ráð fyrir, hefði orðið sú umfangsmesta í sögunni og voru skiptar skoðanir um hvort unnt væri að framleiða allt það sement sem stíflugarðurinn við Gíbraltar hefði kallað á. Engu að síður hreyfði hugmyndin við mörgum og til varð félagsskapur fólks sem barðist fyrir verkefninu. Áhugalausir nasistar Við valdatöku nasista í Þýskalandi freistaði Sörgel þess að vekja áhuga hinna nýju valdhafa á málinu. Nas- istar kærðu sig hins vegar lítið um að vinna ný lönd til suðurs, heldur var hugur þeirra bundinn við Austur- Evrópu, þar sem skapa skyldi aríska kynstofninum lífsrými. Árin fram að seinni heimsstyrjöldinni fór því lítið fyrir tillögum Sörgels, enda forystu- ríki Evrópu fremur í stríðshug en að stefna á víðtæka samvinnu. Áhugaleysi Þriðja ríkisins um stíflun Miðjarðarhafsins kom sér vel að stríði loknu. Í stað þess að hug- myndinni væri varpað á ruslahauga sögunnar líkt og hverri annarri sturl- aðri nasistahugmynd var hægt að dusta rykið af tillögunum og kynna sem leið til endurreisnar Evrópu og framlag til friðsamlegrar framtíðar í álfunni. Næstu árin var Sörgel óþreytandi að ferðast um heiminn að kynna framtíðarsýn sína og tókst að vinna ýmsa á sitt band. Á leið til fyrirlestrar um hugðarefni sitt við München- háskóla síðla árs 1952 gekk hann í veg fyrir bifreið sem kom aðvífandi og lést af sárum sínum fáeinum dögum síðar. Hann varð 67 ára gamall. Án æðstaprests síns átti söfnuður Sörgels ekki langra lífdaga auðið. Eftir því sem leið á sjötta áratuginn fækk- aði sífellt þeim sem létu sig dreyma um risastíflurnar umhverfis Miðjarð- arhafið. Þar spiluðu margir þættir inn í. Tök Evrópuríkja á gömlum nýlend- um sínum í Afríku fóru minnkandi og flestum mátti ljóst vera að ekki yrði unnt að ráðskast með þær til fram- tíðar líkt og verið hafði. Það voru þó tækninýjungar og þá sérstaklega óraunhæfar væntingar til kjarnorkutækninnar sem endan- lega gerðu út af við drauminn um samruna Evrópu og Afríku. Hug- myndin um að leysa raforkuþörf Evrópu með risavirkjununum hafði verið það atriði í hugmyndum Sör- gels sem helst hafði náð eyrum fólks. Með kjarnorkuverum töldu margir að orkuvandi heimsins væri úr sögunni. Raforkuframleiðsla með kjarnorku- verum var talin vandkvæðalaus tækni sem hlyti að verða sífellt auð- veldari og ódýrari í framkvæmd. And- spænis slíkri framtíðarsýn virtust hugmyndir um risastíflur til að virkja sjávarföllin úreltar og alltof flóknar. Minna þær vangaveltur óneitanlega á íslensk skrif í upphafi sjöunda ára- tugarins þess efnis að síðustu forvöð væru fyrir landsmenn að virkja jökul- árnar áður en nútímakjarnorkutækni kippti endanlega fótunum undan vatnsaflsvirkjunum. Risastíflan og stækkun Evrópu Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um stóra drauma. einkenndiSt af ótrú- legum hroka í garð afríkubúa. KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A 3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r38 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 4 -B A 3 8 1 E E 4 -B 8 F C 1 E E 4 -B 7 C 0 1 E E 4 -B 6 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.