Fréttablaðið - 03.02.2018, Side 89
Miroslav Manojlovic
varð bráðkvaddur í London 24. janúar.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 12. febrúar kl. 15.00.
Aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför móður okkar,
Svövu Pálsdóttur
Hrafnkelsstöðum,
Hrunamannahreppi, Árnessýslu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Ljósheima,
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fyrir umhyggju og
hlýhug árin öll.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir
Brynhildur Þorgeirsdóttir
Aðalsteinn Þorgeirsson
Elsku yndislegi sonur okkar,
bróðir, mágur og frændi,
Tryggvi Ómarsson
lést miðvikudaginn 24. janúar
á gjörgæsludeild Landspítalans.
Útför fer fram þriðjudaginn 6. febrúar
kl. 15.00 í Bústaðakirkju.
Hrefna Gróa Snæhólm
Ómar Bruno Ólafsson
Sunneva Jónsdóttir Snæhólm Stefán Halldór Fannbergsson
Guðmundur Ómarsson
Óttarr Þór Ómarsson Snæhólm
og frændsystkini.
Elsku mamma, tengdamamma,
amma og langamma okkar,
Gyða Sigurðardóttir
Stykkishólmi,
lést á Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi þann 13. janúar.
Útför fór fram frá Stykkishólmskirkju
þann 20 janúar.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug .
Viljum einnig koma á framfæri sérstöku þakklæti til
starfsfólks dvalarheimilisins fyrir góða umönnun og
umhyggju við aðstandendur.
Agnes Agnarsdóttir Þórður Þorsteinsson
Hrönn Bernharðsdóttir Gunnar Leví Haraldsson
Ingveldur Jóhannesdóttir Hrannar Erlingsson
Valborg Jóhannesdóttir Gunnar Pétur Róbertsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorlákur Ásgeirsson
húsasmíðameistari,
lést þriðjudaginn 30. janúar á
dvalarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn
7. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarfélög.
Ása Guðbjörnsdóttir
Kristín Dagný Þorláksdóttir
Ásgeir Þorláksson Eva Hildur Kristjánsdóttir
Vilhjálmur Þorláksson Sigrún Guðmundsdóttir
Þorgeir Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Hjartardóttir
Köldukinn, Dalasýslu,
Hraunbæ 90, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans
þriðjudaginn 30. janúar. Jarðarförin fer
fram í Árbæjarkirkju föstudaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Árni Sigurðsson Selma Magnúsdóttir
Hjörtur E. Sigurðsson
Ingunn Sigurðardóttir Jón Axel Brynleifsson
Jón Óli Sigurðsson Kristín Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Valgerður Helgadóttir
Vallarbraut 10, Njarðvík,
lést á Landspítalanum,
mánudaginn 29. janúar.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 6. febrúar kl. 13.00.
Elín Björk Einarsdóttir Ómar Kristjánsson
Laufey Einarsdóttir Magnús G. Jónsson
Ólöf Einarsdóttir Guðjón Skúlason
Helga Sigrún Helgadóttir
og barnabörn.
Móðir mín,
Guðjónína Jóhannesdóttir
Nönnugötu 1,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, 26. desember
síðastliðinn. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir til
þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við fráfall hennar.
Jóhannes Rúnar Sveinsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Karl H. Cooper
Grundartjörn 1, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu
Fossheimum föstudaginn 26. janúar.
Útför fer fram frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 6. febrúar kl. 13.30. Innilegar þakkir
fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Þökkum starfsfólki
Fossheima sérstaklega fyrir góða umönnun og umhyggju
við aðstandendur.
Auðbjörg Lilja Lindberg
Elín Bára Cooper Sigtryggur H. Dagbjartsson
Kristbjörg Linda Cooper Örn Ottósson
Ragnar Heiðar Karlsson María Maronsdóttir
Dúna Rut Karlsdóttir Árni Hjaltason
Erlingur Þór Cooper Líney Rut Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Tuttugu og sex sjómenn af tveimur breskum togurum og einum íslenskum vélbáti týndu lífi þann 5. febrúar árið 1968. Af því tilefni verð
ur haldin athöfn á morgun, mánudag,
klukkan 16, um borð í varðskipinu Óðni
þar sem það liggur við festar við Sjó
minjasafnið á Grandagarði. Jafnframt
verður þess minnst að áhöfnin á Óðni
vann hetjudáð er hún bjargaði 18 manns
við erfiðar aðstæður í sama fárviðri.
Aðalathöfnin verður í þyrluskýlinu svo
verður kaffi og dagskrá í messa Óðins.
Auk minningarorða séra Hjálmars
Jónssonar og ávarps Michaels Nevin,
sendiherra Breta á Íslandi, mun Gylfi
Geirsson, formaður öldungaráðs Land
helgisgæslunnar og fyrrverandi starfs
maður hennar, rekja atburðina fyrir 50
árum í stuttu máli. Hann kveðst byrja á
að minnast á togarann St. Romanus sem
sökk norðarlega í Norðursjó í janúar
1968. „Bretar telja hann alltaf með í því
sem þeir kalla „triple trawler tragedy“,
líka togarann Kingston Peridot sem
fórst í sama mánuði á Mánárbreka út af
Tjörnesi. Svo er komið að 5. febrúar. Þá
hvolfdi Ross Cleveland í mynni Skutuls
fjarðar þar sem 19 fórust en einn komst
lífs af við illan leik, og báturinn Heiðrún
II frá Bolungarvík fórst sama kvöld með
sex manns.
Svo fjalla ég um togarann Notts
County sem strandaði á sama tíma við
Snæfjallaströnd og skipverjana 18 sem
varðskipsmenn á Óðni björguðu daginn
eftir við erfiðar aðstæður en einn maður
var látinn úr kulda og vosbúð. Síðan kem
ég svolítið inn á eftirmálana og tæknina
í sambandi við björgun, fjarskipti og
siglingar á þessum tíma, reyni að draga
upp mynd af þeim erfiðleikum sem gátu
skapast á sjó.“
Gylfi ætlar og að rekja lítillega það
sem gerðist í framhaldinu, vitna í
skeytasendingar þáverandi forsætis
ráðherra Íslands og Bretlands, Bjarna
Benediktssonar og Harolds Wilson. „Ég
les líka hluta úr svari ráðherra í breska
þinginu við fyrirspurn þingmanns úr sal
um þessa atburði á Íslandsmiðum, þar
sem 58 Bretar höfðu farist á fáum vikum.
Auðvitað höfðu þeir atburðir mikil áhrif
og í kjölfar þeirra voru öryggiskröfur
hertar.“
Þó atburðirnir séu stórir kveðst
Gylfi ekki verða langorður. „Ég fer
ekki í smáatriði, heldur reyni að halda
mig við stóru myndina,“ segir hann og
kveðst aðspurður muna þessa atburði
sjálfur. „Ég var samt ekki byrjaður hjá
Landhelgisgæslunni þá en ég var kom
inn á sjó sem loftskeytamaður hjá Eim
skip.“
gun@frettabladid.is
Örlagaatburða minnst
Minningarathöfn verður um borð í varðskipinu Óðni á morgun þegar 50 ár eru frá
mannskæðum sjóslysum í Ísafjarðardjúpi og björgunarafrek áhafnar Óðins rifjað upp.
Gylfi er öllum hnútum kunnugur í loftskeytasal varðskipsins Óðins. Fréttablaðið/EyþÓr Árnason
T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð 41L a U G a R D a G U R 3 . F e B R ú a R 2 0 1 8
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
4
-C
D
F
8
1
E
E
4
-C
C
B
C
1
E
E
4
-C
B
8
0
1
E
E
4
-C
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K