Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 98

Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 98
3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r50 m e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð „Bein voru auðvitað óspart nöguð áður fyrr og Skugga-Sveinn var sakað- ur um stórfelldan sauðaþjófnað. Kalli hefur líka mikið verið að sjóða bein heima undanfarið og hér er spilað á bein og leikið með bein,“ segir Ágústa Skúladóttir brosandi þegar hún sýnir Fréttablaðsfólki leikmynd söngleiks- ins Í skugga Sveins sem verður frum- sýndur í Gaflaraleikhúsinu í Hafnar- firði á morgun, sunnudag, klukkan 13. Ágústa er leikstjóri hins nýja söng- leiks sem Karl Ágúst er höfundur að en byggir á leikritinu Skugga-Sveini eftir Matthías Jochumsson sem frum- sýnt var 1862. Kalli er baksviðs að setja upp sögumannshárkollu fyrir mynda- tökuna og Ágústa hefur orðið áfram: „Það er tríó sem fer með öll hlut- verkin. Tónlistarmaðurinn Eyvindur Karlsson sem samdi lögin og spilar á hátt í tuttugu hljóðfæri, leikur einn- ig Skugga-Svein, hann á bækistöð í hellinum hér baka til. Svo bregða þau Kristjana Skúladóttir og Kalli sér í fjölmörg hlutverk og syngja ein fimm- tán lög sem Eyvindur hefur samið við nýju textana hans Kalla. Leikararnir eru inni á sviðinu allan tímann en bregða sér út á kant og skipta þar um gervi fyrir framan áhorfendur,“ segir Ágústa og kynnir þrjár persónur söngleiksins með hárkollum þeirra. „Hér höfum við Lárentínus sýslu- mann, mikið montprik. Hér kemur Grasa-Gudda og líka Ketill skrækur sem er með Slash-grímu. Það er Vala Halldórsdóttir sem býr til þessi gervi, Guðrún Öyahals sér um leikmyndina og Skúli Rúnar Hilmarsson lýsinguna. Allt mikið hæfileikafólk og leikararnir verða í stöðugri aksjón meðan á sýn- ingu stendur.“ Nú er Karl kominn og lýsir efni söngleiksins og tildrögum þess að hann er á leið á svið. „Þetta verk fjallar um utangarðsmanninn sem hefur verið hrakinn úr mannlegu samfélagi og gagnkvæma andúð hans á því. Mér finnst þessi saga sem Matthías skap- aði ekki mega gleymast, hún er partur af menningararfinum okkar.“ Karl segir þjóðtrúna blandast inn í verkið eins og á dögum Matthíasar, trú fólks á yfirnáttúrulegar vættir og útilegumenn. „Almenningur trúði því að það væru stór samfélög útilegu- manna uppi á hálendinu, lifandi á illa fengnu sauðakjöti. Sýningin okkar litast af því að það sé eitt og annað á sveimi í kringum okkur. Samt er hún fyrst og fremst góð skemmtun, spenn- andi saga og skemmtilegar persónur. Eitt af því sem Matthías gaf okkur með sínu verki var sterkar persónur sem hafa lifað af þannig að jafnvel fólk sem aldrei hefur séð Skugga- Svein leikinn veit hver Grasa-Gudda er, Ketill skrækur og auðvitað Skugga- Sveinn sjálfur. Það er merki þess að leikritið sé vel heppnað hjá Matthíasi. Hann var skólapiltur á þeim tíma sem hann skrifaði það og var ábyggilega undir áhrifum frá evrópskum verkum sem hann hafði séð eða lesið. Við höfum leyft þeim áhrifum að lifa í okkar verki.“ Þótt texti söngleiksins sé frumsam- inn kveðst Karl leyfa einu og einu til- svari úr gamla leikritinu að detta inn til að minna á hvaðan efnið kemur og skemmta þeim sem hugsanlega kannast við það. „Upphafslagið okkar í sýningunni heitir Margt býr í þokunni. Það er lína sem er tekin úr einum af söngtextum Matthíasar úr Skugga-Sveini.“ Í skugga Sveins verður á fjölum Gaflaraleikhússins klukkan 13 á sunnudögum. „Við vonumst til að sjá sem flestar fjölskyldur hér í leikhús- inu,“ segir Kalli og miðum við að fólk frá sjö ára aldri og upp úr geti notið verksins.“ Matthías skapaði sterkar persónur sem hafa lifað af Karl Ágúst Úlfsson sótti persónur í leikrit Matthíasar Joch- umssonar Skugga-Svein er hann samdi söngleikinn Í skugga Sveins sem frumsýndur verður í Gaflaraleikhúsinu á morgun. Karl Ágúst í gervi sögumannsins, hann grípur bein og spilar hina ólíkustu tóna á þau. Fréttablaðið/Vilhelm Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is TónliSTarMaður- inn Eyvindur KarlSSon SEM SaMdi löGin oG Spilar Á hÁTT Í TuTTuGu hlJóðfæri, lEiKur EinniG SKuGGa-SvEin. 2018 Háskólabíó í kvöld! Í beinni og í opinni dagskrá HATARI HERRA HNETUSMJÖR BIRGIR DIMMA ALBATROSS JÓIPÉxKRÓLI ÁSA LÉTTÖL 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 1 2 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 4 -8 8 D 8 1 E E 4 -8 7 9 C 1 E E 4 -8 6 6 0 1 E E 4 -8 5 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.