Fréttablaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 96
Friðbjörg bætir við að í raun
vanti upp á það að fræðimenn geti
miðlað þessum skrifum betur til
almennings. „Ég held að kerfið þyrfti
að vera meira hvetjandi gagnvart
skrifum fyrir almenning. Oft eru
þetta ákveðnar grunnrannsóknir og
eitthvað sem varðar okkur öll sem er
svo mikilvægt að við almenningur
fáum að fylgjast með. Efni sem er
búið að greina og vinna vel en það
þarf að ná betur til almennings í
landinu.“
Friðbjörg leggur áherslu á að sam-
bandið á milli háskólans og sam-
félagsins þyrfti að vera mun virkara.
„Segjum bara að lestri sé ábótavant,
svo dæmi sé tekið, en þá getur vel
verið að það sé skrifað meira um
það í erlendu samhengi en jafnvel
til almennings. Þá vantar okkur
ákveðnar línur eða ramma um það
hvað á að ræða um og af hverju.
Háskólinn á að styðja við almenna
umræðu í landinu og þá sérstaklega
gagnrýna umræðu, ekki endilega
niðurrífandi, heldur gagnrýna, þar
sem er verið að rökræða. Lýðræðið
þarf alltaf á nýjum bókum og rökum
að halda.“
En finnið þið hjá Hagþenki fyrir
því að þessar tilnefningar og verð-
laun hjálpi þessum ritum sem þó
koma út til þess að ná til almenn-
ings? „Já, ég held að það geri það.
Athyglin er alltaf að aukast jafnt og
þétt og svo er verðlaunaféð líka það
veglegt, ein milljón og tvö hundruð
og fimmtíu þúsund, ívið hærra en
Íslensku bókmenntaverðlaunin,“
segir Friðbjörg kankvís. „En mér
finnst að eftir að við fórum að til-
nefna tíu bækur á lista þá hafi það
gert meira fyrir fleiri. Þetta vekur
athygli á þessum bókum af því að
sumar þessara bóka eru alla jafna
ekki mikið í umræðunni þó svo
aðrar séu það vissulega. Það er heil-
mikill heiður fólginn í þessu og
þetta spyrst víða.“
Hagþenkir er félag höfunda fræðirita og kennslugagna en félagið sækir nafn sitt til rits sem Jón Ólafsson frá
Grunnavík skrifaði 1737. Það fjallar
um „almennt stand á Íslandi“, lær-
dóm og bókiðnir. Eftir þessu hand-
riti, sem gefið var út 1996, nefna
höfundar fræðirita og kennslugagna
félag sitt.
Allt frá 1987 hefur félagið veitt
höfundum viðurkenningar fyrir efni
er hefur þótt skara fram úr og síðast-
liðin tíu ár hafa 10 bækur verið til-
nefndar rétt eins og núna og mikið
er lagt upp úr fjölbreytni, segir Frið-
björg Ingimarsdóttir, framkvæmda-
stýra Hagþenkis. „Við viljum að
þessi listi endurspegli ólík fræðirit
og kennslugögn og að auki er hann
hugsaður meira fyrir almenning en
háskólasamfélagið eins og skipu-
lagsskrá verðlaunanna kveður á um,
en það er sérstakt viðurkenningar-
ráð skipað fimm félagsmönnum
sem alfarið velur á listann, eftir að
hafa hist vikulega í tvo mánuði og
borið saman bækur, þannig að við
– Hagþenkir – leitumst við að miðla
ákveðnum bókum sem viðurkenn-
ingarráðið metur að séu framúr-
skarandi fyrir almenning.“
Aðspurð hvort það sé nægur hvati
til staðar í fræðasamfélaginu til þess
að skrifa fyrir almenning segir Frið-
björg að svo sé því miður ekki og oft
Þurfum alltaf á nýjum bókum og rökum að halda
Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis fyrir fræðirit eða námsgögn voru kynntar í vikunni.
Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra segir markmiðið að fræðin nái betur til almennings.
Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra segir Hagþenki hvetja fræðasamfélagið til þess að miðla fræðslu til almennings. FréttablaðIð/SteFán
Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis
Inngangur að skipulagsrétti –
lagarammi og réttarframkvæmd
Höf. Aðalheiður Jóhannsdóttir.
Útg. Háskólaútgáfan.
Heildstætt rit um flókinn heim
skipulagsréttar. Handbók sem
gagnast bæði lærðum og leikum.
Íslenska lopapeysan – uppruni,
saga og hönnun
Höf. Ásdís Jóelsdóttir.
Útg. Háskólaútgáfan.
Margþætt rannsókn í textílfræði
sem lýsir samspili handverks,
hönnunar og sögu prjónaiðnaðar í
fallegri útgáfu.
Saga borgarness I og II. – byggðin
við brákarpoll og bærinn við
brúna
Höf. Egill Ólafsson og Heiðar Lind
Hansson.
Útg. Borgarbyggð og Opna.
Áhugaverð saga sem á sér skýran
samhljóm í þróun Íslandsbyggðar
almennt, studd ríkulegu og fjöl-
breyttu myndefni.
borgin – heimkynni okkar
Höf. Hjálmar Sveinsson og Hrund
Skarphéðinsdóttir.
Útg. Mál og menning.
Fróðleg hugvekja og framlag til
þjóðfélagsumræðu um skipulag,
lífshætti og umhverfismál í borgar-
samfélagi.
Jarðhiti og jarðarauðlindir
Höf. Stefán Arnórsson.
Útg. Hið íslenska bókmenntafélag.
Einstaklega ítarlegt rit um auð-
lindir í jörðu og brýn áminning um
að huga að sjálfbærni við nýtingu
náttúruauðæfa.
Ójöfnuður á Íslandi – skipting
tekna og eigna í fjölþjóðlegu sam-
hengi
Höf. Stefán Ólafsson og Arnaldur
Sölvi Kristjánsson.
Útg. Háskólaútgáfan.
Skýr og aðgengileg greining á
þróun eigna og tekna á Íslandi og
misskiptingu auðs í alþjóðlegum
samanburði.
leitin að klaustrunum – klaustur-
hald á Íslandi í fimm aldir
Höf. Steinunn Kristjánsdóttir.
Útg. Sögufélag og Þjóðminjasafn
Íslands.
Umfangsmikil og vel útfærð
rannsókn sem varpar nýju ljósi á
sögu klausturhalds á Íslandi. Frá-
sagnarstíll höfundar gefur verkinu
aukið gildi.
Undur Mývatns – um fugla, flugur,
fiska og fólk
Höf. Unnur Jökulsdóttir.
Útg. Mál og menning.
Óvenju hrífandi frásagnir af rann-
sóknum við Mývatn og sambandi
manns og náttúru.
Frelsi, menning, framför – um
bréf og greinar Jóns Halldórs-
sonar
Höf. Úlfar Bragason.
Útg. Háskólaútgáfan.
Næm lýsing á sjálfsmynd, vænt-
ingum og viðhorfum vesturfara
við aðlögun þeirra að samfélagi og
menningu Norður-Ameríku.
Sjálfstætt fólk – vistarband og
íslenskt samfélag á 19. öld
Höf. Vilhelm Vilhelmsson.
Útg. Sögufélag.
Aðgengilegt og vel skrifað rit
sem sýnir hvernig vinnufólk fyrri
tíma gat haft áhrif á bága stöðu
sína með hversdagslegu andófi og
óhlýðni.
kostnaður fyrir höfundana. „Nei, og
að auki þá held ég að það hafi dregið
úr þessari hvatningu vegna þess að
háskólakennararnir virðast fá fleiri
stig fyrir að skrifa fræðigreinar í
fræðirit, oftast á ensku, tilvitnanir
skipta mestu máli og því velja þeir
að fara þá leið. Ég veit til dæmis til
þess að það hafi verið skrifuð mögn-
uð bók um búsáhaldabyltinguna
en hún er til sem fræðirit á ensku
og þá einmitt skrifuð inn í alþjóð-
legu fræðiumræðuna fremur en til
almennings.“
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r48 m e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð
menning
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
4
-8
D
C
8
1
E
E
4
-8
C
8
C
1
E
E
4
-8
B
5
0
1
E
E
4
-8
A
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K