Fréttablaðið - 03.02.2018, Side 36

Fréttablaðið - 03.02.2018, Side 36
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Yesmine ætlar að flyja inn heila Michael Jackson sýningu frá New York. MYND/MUMMI LÚ Yesmine í hlutverki Michaels Jackson með verðlaunin fyrir sigur í hæfileika- keppninni. Hún segir að poppstjarnan hafi haft mikil áhrif á líf sitt. Yesmine Olsson er vön að láta verkin tala. Þegar hún áttaði sig á að uppáhaldstónlistarmaðurinn hennar, Michael Jackson, hefði átt stórafmæli í ár ákvað hún að heiðra minningu hans með eftirminnilegum hætti. „Ef ég fæ hugmynd sem ég hef trú á verð ég að hrinda henni í framkvæmd. Ég fór af stað að leita að einhverjum til að leika Michael Jackson og eftir mikla leit fann ég frábæra listamenn í heimsklassa sem hafa sett upp Michael Jackson sýningu í New York. Ég sá einn þeirra syngja og dansa í spjallþættinum hjá Ellen og vissi þá að þetta væri málið. Aðaldanshöfundurinn vann mikið með Michael Jackson sjálfum. Síðustu mánuðina hef ég verið í viðræðum við framleiðendur sýningarinnar og samningar voru undirritaðir í vikunni,“ segir Yesmine spennt og nú er því ljóst að hugmyndin verður að veru­ leika. Átján manna hópur kemur frá New York og verður Michael Jackson í aðalhlutverki í Hörpu þann 8. september. Dansaði í gervi Michaels Jackson á Strikinu „Ég er ekki bara hrifin af Michael Jackson sem tónlistarmanni heldur hafði hann mikil áhrif á líf mitt. Þegar ég var að alast upp í Svíþjóð var ekki margt dökkt fólk í kringum mig en svo kom Michael Flytur inn Michael Jackson sýningu frá New York Jackson fram á sjónarsviðið með Billie Jean og þá vissi ég hvað ég ætlaði að gera í lífinu. Ég vildi verða dansari og danshöfundur og eftir það varð ekki aftur snúið,“ segir Yesmine hlæjandi. Yesmine var á kafi í fótbolta og stundaði æfingar á trampólíni og var að eigin sögn mikil stráka­ stelpa. „Eftir að ég sá Jackson tók dansinn yfir en ég æfði dansana hans í laumi inni í herberginu mínu því mér fannst dansskól­ arnir ekki nógu töff. Vikulega var tón listarþáttur í sjónvarpinu og ég missti ekki af neinum þeirra til að sjá nýjustu danssporin með honum,“ segir Yesmine en hún var fljót að ná rétta taktinum í dansinum og ekki leið á löngu þar til hún fékk áhuga á að taka þátt í hæfileikakeppni. „Foreldrar mínir voru ekki hrifnir af því en ég fékk það í gegn. Þeir höfðu ekki hugmynd um að ég kynni að dansa og vissu ekkert hvað ég ætlaði að sýna en þeim til mikillar undrunar bar ég sigur úr býtum með því að sýna Michael Jackson dans,“ rifjar Yesmine upp. Með sigrinum öðlaðist hún rétt til að taka þátt í aðalhæfileika­ keppni Svíþjóðar og vann hana líka. „Sumarvinnan mín það árið var að dansa í gervi Michaels Jackson á Strikinu í Kaupmanna­ höfn og þannig byrjaði ferill minn í dansheiminum,“ segir Yesmine en síðan þá hefur líf hennar meira og minna snúist um dans. Fékk Zöru Larsson til Íslands Þetta er í annað sinn sem hún kemur að stóru verkefni á borð við þetta. „Ég sit í stjórn sænsk­ íslenska verslunarráðsins. Fyrir rúmum tveimur árum skipu­ lögðum við sænska daga og þá datt mér í hug að fá Zöru Larsson til landsins en hún er lítt þekkt utan Svíþjóðar. Ég hafði samband við umboðsmanninn hennar og boltinn byrjaði að rúlla. Svo sló hún í gegn og ég áttaði mig strax á því að best væri að fá reyndara fólk að borðinu og Sena Live kom inn í samstarfið sem heppnaðist vel.“ Yesmine segir Jackson hafa áhrif á fjölda manns um heim allan. „Ég leitaði að réttu Michael Jackson týpunni í marga mánuði og var því mjög ánægð þegar ég fann þá réttu. Það eru tveir sem deila með sér hlutverkinu í þessari sýningu, enda enginn eins og hinn eini sanni Michael Jackson. Annar dansar eins og Jackson og hinn syngur eins og hann. Þetta er alvörusýning,“ segir Yesmine. Yesmine Olsson mun heiðra minningu Michaels Jackson með stórsýningu í Hörpu þann 8. september nk. Átján söngvarar og dansarar koma fram og tveir skipta með sér hlutverki Jack- sons. Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi Tilboð gildir til sunnudags 20% ALLAR VÖRUR 70% ÚTSALA 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . F e B R ÚA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 4 -E B 9 8 1 E E 4 -E A 5 C 1 E E 4 -E 9 2 0 1 E E 4 -E 7 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.