Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2018, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 28.03.2018, Qupperneq 8
BNA kúgi bandamenn sína til að reka Rússa á dyr Rússar eru óhressir með að rúmlega hundrað erind- rekar þurfi að snúa aftur til síns heima. Lavrov segir Bandaríkjamenn hafa þvingað bandamenn sína til þess að vísa Rússum úr landi en þessir sömu banda- menn séu hins vegar að biðja Rússa afsökunar í laumi. Fjölmiðlar Rússa taka undir með yfirvöldum. Sergei Skrípal í dómsal í Moskvu árið 2006. NordicphotoS/AFp Rússland Umfangsmestu brott- vísanir rússneskra erindreka í sög- unni hafa ekki farið vel í yfirvöld í Rússlandi. Alls var tilkynnt um að rúmlega hundrað erindrekum, sem margir hverjir eru taldir njósn- arar, yrði vísað úr rúmlega tuttugu ríkjum. Voru þær ákvarðanir teknar vegna árásarinnar á fyrrverandi gagnnjósnarann Sergei Skrípal og dóttur hans Júlíu í Salisbury á Bret- landi fyrr í mars. Bretar og bandamenn þeirra halda því fram að Rússar beri ábyrgð á árásinni en Skrípal var dæmdur í fangelsi í heimalandinu árið 2006 fyrir njósnir. Þessu hafa Rússar þó neitað staðfastlega. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, sagði í gær að Bandaríkin hefðu kúgað bandamenn sína til þess að taka þátt í brottvísununum. Fá sjálfstæð ríki væru eftir í Evrópu. „Þegar ríki vísar einum eða tveim- ur erindrekum úr landi, og biður okkur afsökunar í laumi á meðan, vitum við fyrir víst að ákvörðunin var tekin vegna gríðarlegs þrýstings, gríðarlegrar kúgunar. Það eru því miður helstu verkfæri bandarískra stjórnvalda,“ sagði Lavrov. Utanríkisráðherrann sagði aukin- heldur óumflýjanlegt að Rússar myndu svara fyrir sig. Hefur Lavrov verið sagður sitja við teikniborðið til þess að teikna upp mögulegar mótvægisaðgerðir fyrir Vladímír Pútín forseta að samþykkja. Ekki er víst hverjar þær mótvægis- aðgerðir verða. Vladímír Dzhabarov öldungadeildarþingmaður sagði þó í gær að Rússar myndu svara Banda- Fyrrverandi stjórnandi rússnesku alríkislögreglunn- ar, sagði að Úkraína bæri ábyrgð „Það er ekki hægt að draga neina aðra ályktun en að rússnesk yfir- völd beri ábyrgð á tilræðinu við Sergei Skrípal og dóttur hans.“ Þetta sagði Theresa May, forsætisráð- herra Bretlands, fyrr í mánuðinum. Það fyrsta sem bendir til sektar Rússa er það að Skrípal var rúss- neskur gagnnjósnari. Það myndi flokkast sem föðurlandssvik þar í landi líkt og víðar. „Föðurlands- svikarar munu deyja, treystið mér. Þetta fólk sveik vini sína og bræður,“ sagði Pútín í viðtali árið 2010. Fleiri rússneskir „föður- landssvikarar“ hafa dáið fyrir aldur fram undanfarin ár. Ber þar helst að nefna Alexander Lítvínenko sem dó úr pólóníumeitrun í Lund- únum árið 2006. Annað sem þykir benda til sektar Rússa er eitrið sjálft. Bretar halda því fram að svokallað Novichok- taugaeitur hafi verið notað en það var þróað í Sovétríkjunum. Sýni hafa verið Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga til sveitarstjórna sem fram fara 26. maí 2018, hefst við embætti Sýslumannsins á höfuðborgar­ svæðinu laugardaginn 31. mars 2018 kl. 12:00 til 14:00. Atkvæðagreiðslan fer í fyrstu fram á skrifstofu embættisins að Hlíðasmára 1 í Kópavogi á opnunartíma embættisins, frá kl. 8:30 til 15:00 á virkum dögum. Einnig er opið á laugardögum og sunnudögum frá kl. 12:00 til kl. 14:00. Lokað er páskadag 1. apríl, annan í páskum 2. apríl, sumardaginn fyrsta 19. apríl, 1. maí, uppstigningardag 10. maí og hvítasunnudag 20. maí. Um breytingar sem kunna að verða á opnunartímum má sjá heimasíðu embættisins á www.syslumenn.is Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu Þórólfur Halldórsson ríkjamönnum í sömu mynt. Banda- ríkin ákváðu að vísa samtals sextíu Rússum úr landi. Sé horft til þess að Bretar vísuðu 23 Rússum úr landi og þess að Rússar vísuðu 23 Bretum úr landi á móti má búast við því að Rússar svari öllum ríkjunum í sömu mynt. Þá vakti tíst rússneska sendiráðs- ins í Bandaríkjunum mikla athygli. Spurði þar sendiráðið, í ljósi þess að Bandaríkin hafa fyrirskipað lokun ræðisskrifstofu Rússa í Seattle, hvaða ræðisskrifstofu Bandaríkja- manna Rússar ættu að loka. Valið stóð á milli Vladívostok, Katrínar- borgar og Sankti Pétursborgar og fékk síðastnefnda borgin flest atkvæði, eða 47 prósent. Rússneskir stjórnmálamenn eru þó ekki þeir einu sem reiddust bandamönnum Breta. Stærstu rúss- nesku fjölmiðlarnir tóku, líkt og venjulega, undir með stjórnvöldum að öllu leyti. „Þau segja að þetta sé vegna Skrípal-málsins jafnvel þótt Moskva sé enn að bíða eftir því að aðkoma Rússa sé sönnuð,“ kom fram á NTV. „Þetta lítur ekki út eins og stríð heldur krossför gegn Rússlandi,“ sagði einn viðmælenda Stöðvar 1. Þar voru viðmælendur sammála um að Bandaríkjamenn og Bretar færu fyrir skipulagðri herferð gegn Rússum. Á sjónvarpsstöðinni Rossiya 1 heyrðist einn viðmælenda segja: „Þetta minnir mig á málverk eftir Breughel. Blindur leiðir blindan. Eitt ríki í Evrópu dregur hin niður í svaðið með sér.“ ✿ Hvers vegna er Rússum kennt um? Breski miðillinn Business insider tók í vikunni saman fjórtán kenn- ingar sem mismunandi rússar hafa sett fram um málið. Frétta- blaðið dró saman fimm áhuga- verðar. 1. Vladímír Tsjízhov, sendiherra Rússa hjá ESB, sagði að eitrið gæti hafa verið framleitt á rannsókna- stofu breska hersins í Porton Down. „Við vitum öll að þar er stærsta breska herrannsókna- stofan sem fæst við efnavopna- rannsóknir. Svo er hún bara átta mílur frá Salisbury,“ sagði Tsjízhov, sem bætti því þó við að hann hefði engin sönnunargögn undir höndum sem styddu mál sitt. Breska utanríkisráðuneytið hafnaði tilgátunni og sagði hana „þvætting“. 2. Níkolaj Kovalev, fyrrverandi stjórnandi rússnesku alríkislög- reglunnar, sagði að Úkraína bæri ábyrgð. Úkraínumenn hefðu getað sankað að sér eitri úr efna- vopnabúri Sovétríkjanna. 3. Kovalev sagði einnig að Bretar hlytu að hafa staðið að árásinni. Þeir einir hafi vitað hvar Skrípal væri niður kominn og þess vegna hafi breska leyniþjónustan getað ráðist á hann í Salisbury. 4. María Zakharova, talsmaður utanríkisráðuneytis Rússa, sagði að eitrið gæti hafa komið frá ríkjum sem hefðu rannsakað Novichok-taugaeitur. Nefndi hún sérstaklega Svíþjóð, Slóvakíu og Tékkland. Því hafa utanríkisráð- herrar ríkjanna þriggja hafnað. 5. Zakharova sagði einnig að bein tengsl væru á milli Skrípal-máls- ins og þess að Rússar væru að ná „óumdeilanlegum árangri í Sýr- landi“. Sagði Zakharova að með árásinni reyndu Vesturlönd að koma óorði á Rússa. ✿ Hvað segja Rússar að hafi gerst? ✿ Ríkin sem reka Rússa úr landi Pólland 4 Kanada 4 Tékkland 3 Litháen 3 Danmörk 2 Holland 2 Ítalía 2 Spánn 2 Albanía 2 Ástralía 2 Eistland 1 Króatía 1 Finnland 1 Ungverjaland 1 Lettland 1 Rúmenía 1 Svíþjóð 1 Noregur 1 Makedónía 1 Írland 1 Bandaríkin 60 Bretland 23 Úkraína 13 Frakkland 4 Þýskaland 4 Sömu sögu var að segja af stærstu miðlum Rússa á enskri tungu. Tóku bæði RT og Sputnik, miðlar sem hafa verið kallaðir hluti áróðursvél- ar Pútíns, undir með stjórnvöldum. Fjallaði RT um ákvörðun Banda- ríkjamanna um að vísa erindrekum Rússa í höfuðstöðvum SÞ í New York úr landi. Var það gert undir fyrirsögninni „Reyndu Bandaríkja- menn yfirhöfuð eitthvað að rétt- læta brottvísun Rússa hjá SÞ? „Of viðkvæmt“ til að tjá sig, segja SÞ“. thorgnyr@frettabladid.is send til Efnavopnastofnunarinnar til staðfestingar. Bretar báðu um útskýringar, og spurðu meðal annars hvort Rússar hefðu misst stjórn á Novichok- vopnabúri sínu. Rússar fengu sólar- hring til svara en höfnuðu þessum afarkostum og sögðu um óásættan- lega ögrun að ræða. Jonathan Allen, sendiherra Breta hjá SÞ, sagði fyrr í mars að glæpasamtök gætu ekki framleitt eitrið. Framleiðslan krefðist mikillar sérfræðiþekk- ingar og öryggisbún- aðar. Bretar virðast því líta svo á að þar sem Rússar hafi þróað eitrið, þeir hafi ekki svarað því hvort þeir hafi misst stjórn á vopnabúrinu og glæpasamtök geti ekki framleitt það, hljóti Rússar að bera ábyrgð. Almenningur hefur hins vegar ekki fengið að sjá gögn úr rannsókn Breta á málinu og því ekki hægt að fá heildarmyndina. 2 8 . m a R s 2 0 1 8 m I Ð V I K U d a G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a Ð I Ð 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 5 -3 3 4 0 1 F 5 5 -3 2 0 4 1 F 5 5 -3 0 C 8 1 F 5 5 -2 F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.