Fréttablaðið - 28.03.2018, Side 18
MMA Gunnar Nelson, fremsti bar-
dagakappi Íslands, snýr aftur í búrið
í lok maí og berst gegn Bandaríkja-
manninum Neil Magny. MMA-
blaðamaðurinn Farah Hannoun
greindi frá þessu í gær. Bardaginn
fer fram í Echo Arena í Liverpool,
27. maí næstkomandi, sama kvöld
og heimamaðurinn Darren Till
keppir þar í titilbardaga.
Gunnar hefur ekkert barist
undan farna mánuði eftir að hafa
tapað fyrir Santiago Ponzinibbio í
Glasgow í júlí í fyrra.
Magny, sem er þrítugur, er í
9. sæti á styrkleikalistanum í velti-
vigt. Hann hefur unnið 20 af 26 bar-
dögum sínum á ferlinum, þar af sex
með rothöggi. – kpt
Berst líklega
í Liverpool
Gunnar hefur ekki barist síðan hann
tapaði fyrir Santiago Ponzinibbio í
júlí á síðasta ári. NordicPhotoS/Getty
Spánverjar tóku Messi-lausa Argentínumenn í karphúsið
Kossi smellt á gullfótinn Spánn vann 6-1 sigur á Argentínu í vináttulandsleik í Madríd í gær. Isco skoraði þrennu og á myndinni hér að ofan smellir
Sergio Ramos, sem lék sinn 150. landsleik í gær, kossi á gullfót Iscos. Diego Costa, Thiago og Iago Aspas skoruðu einnig fyrir Spánverja sem hafa
ekki tapað leik í tæp tvö ár. Argentínumenn, fyrstu mótherjar Íslendinga á HM, hafa hins vegar um nóg að hugsa eftir þessa útreið. NordicPhotS/Getty
Körfubolti „Taflan segir að Haukar
séu með miklu betra lið en Keflavík.
En Keflvíkingar hafa spilað miklu
betur í þessu einvígi; eru að spila
betri vörn og það er meira hjarta í
þeirra leik,“ segir Ágúst Björgvins-
son, þjálfari Vals, um einvígi Hauka
og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Dom-
ino’s-deildar karla sem lýkur með
oddaleik á Ásvöllum í kvöld.
Haukar unnu tvo fyrstu leikina
og komu sér í kjörstöðu. En Keflavík
sýndi styrk, vann tvo næstu leiki og
jafnaði einvígið, 2-2. Leikir liðanna,
sérstaklega síðustu þrír, hafa verið
gríðarlega jafnir og úrslitin hafa
ráðist á lokasekúndunum.
„Keflavík var betra liðið í leik
tvö, þrjú og fjögur þar sem maður
var hissa að þeir væru ekki með
meiri forystu. Og í fyrsta leiknum
voru þeir betri í seinni hálfleik. Það
er bara fyrri hálfleikurinn í fyrsta
leiknum þar sem Haukar hafa verið
betri,“ segir Ágúst. En hvað hefur
Keflavík gert rétt í einvíginu?
„Þetta hljómar eins og klisja en
þú þarft að njóta þess að vera þarna.
Keflvíkingar hafa fundið hvað
virkar fyrir þá og skynjað hræðslu
hjá Haukunum sem espar þá upp
og gefur þeim aukna trú. Það er
úrslitakeppnisstemning hjá Kefla-
vík,“ segir Ágúst.
Varnarleikur Keflavíkur var ekki
góður í deildakeppninni og þá sér-
staklega ekki á heimavelli. En vörn
Keflvíkinga hefur verið öflug í ein-
víginu við Hauka og þeir hafa tekið
fast á Hafnfirðingum.
„Keflvíkingar hafa spilað á lín-
unni. Það hefur
ekkert hallað
á annað liðið
í dómgæsluna.
Keflvíkingar gera
bara það sem þeir kom-
ast upp með,“ segir Ágúst.
Christian Dion Jones,
annar af tveimur banda-
rískum leikmönnum í
herbúðum Keflavíkur,
spilaði vel í fjórða
leiknum þar sem hann
skoraði 20 stig, tók
níu fráköst, gaf fimm
stoðsendingar og
fiskaði níu villur
á l e i k m e n n
Hauka.
„ Þ e t t a e r
hörkuleikmaður.
Haukarnir eiga í
miklum erfiðleikum
með að dekka hann
einn á einn. Þeir
þurfa alltaf að tví-
dekka hann. Ég myndi
vilja sjá Keflvíkinga
nota hann meira. Það
gerist nánast alltaf eitt-
hvað gott þegar hann fær boltann,“
segir Ágúst. „Það er helst Kristján
Leifur [Sverrisson] sem ræður eitt-
hvað við hann en hann hefur lent í
villuvandræðum þegar hann hefur
dekkað Jones.“
Bandarískur leikmaður Hauka,
Paul Anthony Jones hinn þriðji, lét
lítið að sér kveða í fjórða leiknum og
skoraði aðeins 15 stig.
„Hann er mikill liðsspilari en
hann vantar kannski að geta tekið
af skarið. Hann hefur sig ekki mikið
í frammi. Kári [Jónsson] er sá sem
tekur af skarið í liði Hauka. Kefl-
víkingarnir virðast vera búnir að
átta sig á því að Jones er ekki hrifinn
af mikilli snertingu. Guðmundur
[Jónsson] er byrjaður að fara í
taugarnar á honum eins og öllum,
nema Kára sem hefur bara gaman af
þessu,“ segir Ágúst.
Þrátt fyrir góða frammistöðu í síð-
ustu tveimur leikjum vann Keflavík
þá með aðeins samtals sex stigum
og Haukar áttu alla möguleika á
sigri í þeim báðum. Ágúst segir að
frákastabaráttan skipti miklu máli í
því samhengi. Þar hafa Haukar yfir-
höndina. Í síðasta leik tóku Haukar
41 frákast, þar af 12 í sókn, á móti 32
fráköstum Keflavíkur.
„Ef Keflvíkingar ætla sér að vinna
oddaleikinn þurfa þeir að jafna frá-
kastabaráttuna út. Haukarnir eru
sterkari þar og eitt sterkasta frá-
kastalið deildarinnar. Fyrir vikið eru
þessir leikir jafnari en þeir væru ef
Keflavík myndi frákasta betur,“ segir
Ágúst að endingu.
ingvithor@frettabladid.is
Sögulegt hvernig sem fer í kvöld
Það ræðst í kvöld hvort Haukar eða Keflavík verður síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum
Domino’s-deildar karla. Möguleiki er á fyrstu undanúrslitunum án liðs frá Suðurnesjum frá upphafi.
Geta endurtekið leik
Skagamanna frá 1998
Síðan liðum í úrslitakeppni karla
var fjölgað í átta árið 1995 hefur
það aðeins einu sinni gerst að
liðið sem endar í 8. sæti slær út
deildarmeistara.
Það gerðist fyrir 20 árum
þegar ÍA sló Grindavík út,
1-2. Skagamenn tryggðu
sér sæti í undanúrslitunum
með eins stigs sigri, 81-82,
í framlengdum oddaleik
í Grindavík. Alexander
Ermolinskij, spilandi
þjálfari ÍA, skoraði
sigurkörfuna.
Hann skoraði 17
stig í leiknum
en Dam on
Johnson var
stigahæstur
Skagamanna
með 42 stig.
Heiður Suðurnesjanna
er í húfi í kvöld
Síðan úrslitakeppnin var sett á
laggirnar 1984 hafa Suðurnesja-
liðin þrjú, Njarðvík, Keflavík og
Grindavík, ráðið ríkjum og unnið
23 af 34 Íslandsmeistaratitlum
sem í boði hafa verið.
Þá hefur aðeins þrisvar
sinnum gerst að Suðurnesin
hafa ekki átt lið í úrslitum
um Íslandsmeistaratitilinn
(2011, 2015 og 2016).
Og í 34 ára sögu úrslita-
keppni karla hafa Suður-
nesin alltaf átt a.m.k.
eitt lið í undanúrslitum.
Það vígi fellur ef Kefla-
vík tapar fyrir Haukum
í kvöld.
Körfubolti Stjórn körfuknatt-
leiksdeildar Stjörnunnar sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að
samningur Hrafns Kristjánssonar,
þjálfara karlaliðs félagsins, verði
ekki framlengdur.
Hrafn tók við Stjörnunni af Teiti
Örlygssyni 2014. Á sínu fyrsta tíma-
bili við stjórnvölinn gerði Hrafn
Stjörnuna að bikarmeisturum.
Stjarnan endaði í 5. sæti Domino’s-
deildarinnar og féll úr leik fyrir
Njarðvík í 8-liða úrslitum 2015.
Tímabilið 2015-16 enduðu
Stjörnumenn í 2. sæti sem var, og
er enn, besti árangur liðsins í efstu
deild. Garðbæingar féllu hins vegar
aftur úr leik fyrir Njarðvíkingum í
8-liða úrslitum.
Á síðasta tímabili endaði Stjarnan
aftur í 2. sæti deildarinnar, vann ÍR
í 8-liða úrslitunum en féll að lokum
út fyrir Grindavík í undanúrslitum.
Í vetur endaði Stjarnan í 7. sæti
deildarinnar og féll úr leik fyrir ÍR
í 8-liða úrslitum.
Hrafn stýrði Stjörnunni í 88 leikj-
um í Domino’s-deildinni; 55 þeirra
unnust og 33 töpuðust. – iþs
Hrafn flýgur úr
Garðabænum
hrafn stýrði Stjörnunni í síðasta sinn
á sunnudaginn. Fréttablaðið/erNir
2 8 . M A r s 2 0 1 8 M i Ð V i K u D A G u r18 s p o r t ∙ f r É t t A b l A Ð i Ð
sport
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
5
-0
1
E
0
1
F
5
5
-0
0
A
4
1
F
5
4
-F
F
6
8
1
F
5
4
-F
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K