Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 28
Það er hægt að skreyta bolla-kökur með ýmsum hætti. Þessar páskabollakökur eru
með appelsínubragði. Mjög ein-
faldar og fallegar.
Páskabollakökur
Uppskriftin ætti að gera tólf kökur.
150 g smjör
150 g sykur
4 egg
4 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanillusykur
1½ dl mjólk
Safi og börkur af ½ appelsínu
Kremið
250 g rjómaostur
150 g smjör
350 g flórsykur
Börkur af ½ appelsínu
Stillið bakarofninn á 175°C. Hrærið
smjör og sykur þar til blandan
verður létt og ljós. Hrærið þá eggj-
unum saman við, einu í einu. Bætið
hveiti, lyftidufti og vanillusykri því
næst við. Loks er mjólk, appelsínu-
safi og börkur sett út í.
Blandan er sett í möffinsform upp
að 2/ 3 hlutum. Bakið í 20 mínútur
og kælið.
Setjið rjómaostinn í hrærivél
en hann á að vera við stofuhita.
Hrærið og setjið smjörið út í
smám saman. Bætið við flór-
sykri og appelsínuberki. Það má
setja smávegis gulan matarlit til
að fá páskalit. Setjið blönduna í
sprautupoka og skreytið kökurnar
með kreminu. Skemmtilegt er að
skreyta kökurnar með einhvers
konar ætu páskaskrauti, til dæmis
pínulitlum páskaeggjum.
Það má líka útbúa súkkulaði-
Fallega gular páskakökur
Það er skemmtilegt að vera með fallegar kökur með kaffinu á páskadag. Börnin eru hrifin af falleg-
um bollakökum og ekki er verra ef þær eru páskalegar. Hér eru tvær hugmyndir að páskakökum.
Við erum ekki með uppskrift að þessari fallegu páskaköku en hún er til marks um hversu skemmtilega er hægt að skreyta.
Appelsínuformkaka með glassúr.
Hægt er að skreyta möffins á margvíslegan hátt og um að gera að láta hug-
myndaflugið ráða för.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Appelsínuformkaka
Hefðbundin kaka með kaffinu sem
er þó svo ótrúlega góð.
3 dl sykur
300 g smjör
5 egg
1 appelsína, fínt rifinn börkur
0,8 dl appelsínusafi
1,5 tsk. lyftiduft
6 dl hveiti
Glassúr
2 dl flórsykur
1,5 msk. appelsínusafi
Hitið ofninn í 175°C. Þeytið saman
smjör og sykur þar til blandan verður
létt og ljós. Setjið þá eggin saman við,
eitt í einu. Þá er rifnum appelsínu-
berki og -safa bætt út í. Blandið þá
hveiti og lyftidufti saman við.
Setjið deigið í vel smurt kringlótt
formkökuform og bakið í um það bil
50 mínútur. Þegar kakan er tilbúin
eru stungin í hana nokkur göt með
grillteini og appelsínusafanum er
hellt yfir. Kælið.
Búið til glassúr með flórsykri og
appelsínusafa. Smyrjið yfir kökuna
og skreytið með rifnum appelsínu-
berki.
krem og setja á kökurnar. Til
dæmis svona: Flórsykur, 1 msk.
smjör, vanilludropar, 2 msk. kakó
og heitt espresso-kaffi. Hrærið
saman.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind
GALLAJAKKI
13.990
512 SLIM TAPER
12.990
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . m A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
5
-2
4
7
0
1
F
5
5
-2
3
3
4
1
F
5
5
-2
1
F
8
1
F
5
5
-2
0
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K