Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 29
Garðhönnun á að vera upplifun fyrir viðskiptavininn, segir Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hjá Urban Beat.
Garðurinn
M I ÐV I KU DAG U R 2 8 . m a r s 2 0 1 8 Kynningar: Urban Beat
Urban Beat í Stokkhólmi
og bráðum Reykjavík
Björn Jóhannsson landslagsarkitekt vill að garðeigandinn njóti garðsins í heita pottinum, gufubað-
inu, í skálanum og við grillið. Hann leggur áherslu á viðhaldslétta garða sem nota má allt árið.
Fyrsta skrefið við að hanna fallegan garð er að gefa garð-eigandanum svo margar hug-
myndir að hann fær skemmtilegan
valkvíða,“ segir Björn Jóhannsson,
landslagsarkitekt hjá Urban Beat.
Þrjár teikningar til að velja úr
„Við höfum lagt mikla áherslu á að
viðskiptavinurinn hafi möguleika
á að þróa sínar óskir með okkur.
Oft veit fólk ekki hvað það raun-
verulega vill fyrr en hönnunin er
komin af stað og þá er mikilvægt
að það sé úr nógu að velja og auð-
velt að breyta. Þegar við sendum
út tilboð og verðáætlanir fylgir lítil
hugmyndabók með myndum sem
hægt er að vísa í. Þegar við höfum
fengið fyrstu óskirnar teiknum
við upp þrjár útfærslur, bæði með
nýstárlegum hugmyndum en
einnig klassískum útfærslum sem
hafa reynst vel gegnum árin. Með
þremur mismunandi útfærslum er
auðvelt að „máta“.
Þrjú skref að fallegum garði
Björn hefur teiknað garða
Íslendinga síðustu 20 árin og hefur
alltaf lagt áherslu á að ferlið sé
upplifun fyrir viðskiptavininn.
„Garðeigandinn á að koma að
verkefninu á öllum stigum, en ég
get alltaf aðstoðað við ákvörð-
unartökuna ef valið er erfitt með
því hjálpa við að bera saman
hugmyndir.“ Björn segir einnig
mikilvægt að flýta hönnun ekki of
mikið. Hugmyndir þurfi að gerjast
og garðeigandinn þarf að máta
það í huganum hvernig lífið í nýja
garðinum geti orðið. Hönnunin er
unnin í þremur skrefum. Fyrst eru
gerðar þrjár útfærslur af garðinum.
Í næsta skrefi er valið það besta úr
útfærslunum þremur og því síðan
raðað saman í skrefi tvö. Að lokum
eru útbúnar verkteikningar sem
innihalda gjarnan smíðateikn-
Kynningarblað
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
5
-1
5
A
0
1
F
5
5
-1
4
6
4
1
F
5
5
-1
3
2
8
1
F
5
5
-1
1
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K