Fréttablaðið - 28.03.2018, Síða 32
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Sigurður Þórðar-
son og Sigrún
Andrésdóttir
hafa hlúð að
garðinum sínum
í hartnær fimm-
tíu ár. MYND/
StefáN
Hér má líta græðlinga sem brátt fá að skjóta rótum úti í garði.
Ég stend nú úti í gróðurhúsi og er að potta hérna, svo maður er farinn að huga að vorverk-
unum,“ segir Sigurður Þórðarson,
garðáhugamaður í Garðabæ, þegar
blaðamaður hringir. Sigurður og
kona hans, Sigrún Andrésdóttir,
hafa ræktað garðinn sinn í hartnær
fimmtíu ár og eru með gróðurhús
þar sem þau koma upp græðlingum
sem bíða þess að fara út í garð. „Ég
er núna að potta græðlinga frá í
fyrra sem hafa verið að ræta sig í
vetur í vikri eða vatni.“ Hvað önnur
vorverk varðar segist Sigurður
vera að taka til og snyrta. „Ég er í
miðjum klippingum, er að klippa
trén í garðinum, hreinsa ofan af
beðum og klippa af runnum. Það
þarf að hemja þá til að þeir vaxi
ekki allt út um allt. Svo verða
runnar oft mjög þéttir og þá þarf að
klippa innan úr þeim svo það lofti
betur um þá. Ég klippi líka trén því
maður klippir tré eins og maður
vill hafa þau laufguð í sumar. Ég sé
tréð fyrir mér og sé svo, nei, þessi
grein passar ekki og þá klippi ég
hana burt.“ Sigurður segist hreinsa
gamlar gróðurleifar burt þó sumir
vilji láta þær liggja. „Það er allt í lagi,
þá myndast bara jarðvegur en ég vil
frekar setja garðúrganginn í safn-
haug þar sem verður til mold sem
ég nota eftir tvö ár. Beðin líta betur
út þegar þau eru hrein.“
Sigurður segir þau Sigrúnu kaupa
lítið af nýjum plöntum heldur
halda sig við fjölæringana sem
þegar eru í garðinum. Og hann ótt-
ast ekki páskahretið. „Fjölæringar
eru mjög frostþolnir og þola flestir
að það sé allt tekið ofan af þeim. Ég
hef séð páskaliljur sem voru orðnar
20 cm háar og svo kom hörkufrost
og stönglarnir lögðust á hliðina eins
og frosið grænmeti og ég hugsaði,
nei, nú er þetta allt dautt. En svo
þegar fór að hlýna þá réttu þær sig
við. Það er eins konar frostlögur í
þessum plöntum svo þó frostið nái
inn í þá eyðileggjast ekki frum-
urnar. Flestir þessir vorlauka sem
blómstra svona snemma á vorin
þola frostið. Þangað til þeir fara
að blómstra, þá eyðileggur frostið
blómin.“
Sigurður segir þau hjónin vera
safnara þegar kemur að garðinum.
„Við fyllum garðinn af alls konar
Græni liturinn
hefur góð áhrif á sálina
Sigurður Þórðar-
son og Sigrún
Andrésdóttir hafa
ræktað garðinn
sinn í fimmtíu
ár og eru nú að
undirbúa hann
fyrir sumarið.
Þau leggja mikla
áherslu á sígræn-
ar plöntur en vilja
hafa sem fjöl-
breyttasta flóru.
tegundum. Það má segja að þetta
sé skrautgarður með fjölæringum.
Við erum búin að búa hér í bráðum
fimmtíu ár og fengum mjög fljót-
lega garðáhuga svo við erum
búin að breyta garðinum, erum
með gróðurhús, gróðurskála með
vínberjaplöntum og eplatré úti í
garði með litlum eplum sem hægt
er að borða,“ segir Sigurður. „Svo
erum við með hindber en það þarf
að passa að þau dreifi sér ekki of
mikið því þau eru gjörn á það. Og
við erum líka með sólber en höfum
ekki verið í káli eða kartöflum
undanfarin ár.“
Hann segir þau leggja mikla
áherslu á að hafa sígrænar plöntur í
garðinum. „Þá dettur flestum í hug
greni, en við erum ekki með neitt
grenitré. Þetta eru sýprusar og lyng-
rósir með stórum blöðum sem þola
mjög vel frost en illa rok svo það er
betra að hafa þær í góðu skjóli. Svo
eru þintegundir svokallaðar, svona
mjúkt greni, einir og fleiri plöntur.
Það er gríðarlega fjölbreytt úrval af
sígrænum plöntum fáanlegt og það
hefur svo góð áhrif á sálina að líta
út í garð í skammdeginu og sjá allt
grænt,“ segir Sigurður að lokum og
snýr sér aftur að vorverkunum.
VANTAR
GARÐHÚSGÖGN?
Taktu þér greiðslufrí með Kortaláni og láttu drauminn rætast.
Kynntu þér málið. 525 5055 | sala @valitor.is | valitor.is
4 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RGARÐuRINN
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
4
-F
C
F
0
1
F
5
4
-F
B
B
4
1
F
5
4
-F
A
7
8
1
F
5
4
-F
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K