Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 36
GÓÐAR OG GAGNLEGAR Lífgaðu upp á heimilið með plöntum sem gefa af sér allan ársins hring. Allt um hefðbundna og lífræna ræktun, hvað unnt er að rækta, hvar, hvenær og hvernig. Fróðleikur um gerjun grænmetis ásamt fjölda gómsætra uppskrifta. Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is 8 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . m A R s 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R Hópur fólks ræktar grænmeti í seljagarði í Breiðholti. Í sumar verður hægt að vera í áskrift, fá fræðslu og uppskeru. Guðný segir það jafnast á við góða hug- leiðslu að hlúa að plöntunum. mYNDIR/sELJA­ GARDUR.Is Guðný með blómlega uppskeru síðasta árs. Það þarf að kunna að rækta ofan í sig matinn. Ef það kemur heimsendir og fer að flæða hér um allt, þá stendur Breiðholtið upp úr, það er svo hátt yfir sjávarmáli. Við verðum við öllu búin í Seljagarðinum,“ segir Guðný Rúnarsdóttir myndlistarkennari á léttu nótunum en hún er ein þeirra sem rækta matjurtir í samyrkju- garði í Breiðholti, Seljagarði. Hún segir afar gefandi að yrkja jörðina í stað þess að kaupa allt út úr búð. Seljagarðurinn sé vaxandi verkefni. „Þetta byrjaði fyrir fjórum árum þegar vinkona mín, Þórey Mjall- hvít, teiknari og hreyfimynda- gerðarkona, fékk hugmyndina að félagslegum matjurtagarði. Úr varð samfélagslegt verkefni og hópur fólks fór að rækta saman, halda viðburði og læra hvert af öðru um matjurtarækt. Ég fór með í þetta en ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að rækta sjálf það sem ég borða. Við förum yfirleitt bara beint út í búð að kaupa okkur grænmeti, oftast innflutt og vand- lega pakkað í plast. Það er frekar dapurlegt,“ segir Guðný. Félagslandbúnaður „Að fylgjast með plöntum vaxa, hlúa að þeim og læra að sjá um þær er mikilvægt og mögulega deyjandi kunnátta. Kannski er það vegna samfélagsgerðarinnar hér á Íslandi. Hér er mikið stress og miklar kröfur um að eiga mikið af dýrum hlutum. Allir keppast því við að vinna meira til að geta borgað meira! Þó er vitundarvakning í gangi núna, finnst mér. Einn úr hópnum í Seljagarði stefnir á að verða borgarbóndi og mun taka að sér að rækta fyrir fólk sem hefur ekki tíma til þess sjálft. Fólk er þá bara í áskrift, hann heldur fræðsludaga fyrir áskrif- endur og sér um ræktunina en fólk tekur þátt eftir getu og tíma.“ Guðný er borgarbarn en kann afar vel við sig í náttúrunni. Rækt- unarferlið sé eins og hugleiðsla. „Ég er alin upp í Reykjavík og finnst því afar gott að tengjast nátt- úrunni með því að róta í moldinni og tína upp í mig það sem ég rækta sjálf. Maður fréttir oft af fólki sem á við erfiðleika að stríða eða veikindi, sem fer að rækta eitt- hvað til að láta sér líða betur og seljagarðurinn vaxandi verkefni Guðný Rúnarsdóttir myndlistarkennari vill vita hvaðan maturinn sem hún borðar kemur. Matjurtarækt megi ekki lognast út af og kunnáttunni verði að halda við. það virkar. Ræktun hefur mjög góð áhrif á andlega líðan og það getur verið eins og hugleiðsla að fylgjast með ferlinu. Þetta tekur nefni- lega tíma og krefst þolinmæði. Stundum mistekst ræktunin og ekkert kemur upp, þá þarf maður að vera æðrulaus gagnvart því og reyna annaðhvort aftur að ári eða prófa eitthvað nýtt. Ferlið sjálft er svo mikilvægt, ekki síður en loka- uppskeran,“ segir Guðný. Nánar má forvitnast um sam- yrkjuverkefnið í Seljagarði á www. seljagardur.is á Facebook undir 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 5 5 -1 5 A 0 1 F 5 5 -1 4 6 4 1 F 5 5 -1 3 2 8 1 F 5 5 -1 1 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.