Fréttablaðið - 28.03.2018, Side 44
Versta vikan í yfir tvö árSkotsilfur
Ekki blés byrlega á hlutabréfamörkuðum vestanhafs í síðustu viku en bandarískar hlutabréfavísitölur lækkuðu þá meira en í nokkurri annarri viku frá
byrjun árs 2016. Ýmislegt er talið skýra lækkanirnar, svo sem auknar líkur á viðskiptastríði á milli Bandaríkjanna og Kína, hærri stýrivextir í Bandaríkjun-
um, enn frekari mannabreytingar í starfsliði Bandaríkjaforseta og ekki síst hneykslið í kringum gagnanotkun Facebook og Cambridge Analytica. Hlutabréf
tóku hins vegar við sér á nýjan leik á mánudag þegar fregnir bárust af sáttaviðræðum bandarískra og kínverskra stjórnvalda. NORDICPHOTOS/GETTY
Skerðingar á greiðslum Trygg-ingastofnunar (TR) eru með eldfimari umræðuefnum. Sitt
sýnist hverjum um hlutverk stofn-
unarinnar og hvað teljist sanngjarnt
þegar kemur að samspili tekna og
greiðslna en lítið er þó rætt um
hálfan lífeyri, nokkuð undarlega
nýjung sem kynnt var til leiks um
áramótin.
Greiðslur lífeyris TR skerðast
vegna tekna. Hlutfallið er 45%
hjá sambúðarfólki og 56,9% hjá
þeim sem búa einir. Á þessu eru
þó undantekningar. Almennt frí-
tekjumark er 25.000 kr. á mánuði
og að auki er sérstakt 100.000 kr.
frítekjumark vegna launatekna.
Þá hefur séreignarsparnaður engin
áhrif á greiðslur ellilífeyris. Þetta á
við um hefðbundna töku greiðslna
frá stofnuninni en hálfur lífeyrir
skerðist hins vegar ekki um krónu
vegna tekna, hvernig svo sem stend-
ur á því.
Hálfan lífeyri er hægt að sækja
um að því gefnu að við höfum
náð 65 ára aldri og sótt um slíkar
greiðslur samtímis hjá TR og líf-
eyrissjóðum. Samanlagður hálfur
lífeyrir frá stofnunni og lífeyris-
sjóðum verður að lágmarki að
jafngilda fullum lífeyri hjá TR. Séu
lífeyrisréttindi mjög lítil er því ekki
hægt að sækja um þessa útfærslu.
Hugmyndin er ágæt. Það getur
verið freistandi að minnka við sig
starfshlutfall en ekki víst að fjárhag-
ur fólks leyfi að tekjurnar minnki.
Því er brugðið á það ráð að heimila
okkur að sækja hálfar greiðslur frá
lífeyrissjóðum og TR til að minnka
tekjutapið. Það er þó eilítið sérstakt
að þeir sem kjósi þessa leið sleppi
alfarið við skerðingar. Sá sem safn-
að hefur góðum lífeyrisréttindum,
segjum 600.000 kr. á mánuði, veit
að hann mun ekki fá neinar greiðsl-
ur frá Tryggingastofnun þegar hann
hættir að vinna.
Sé sótt um hálfan lífeyri mynd-
ast allt í einu réttindi, yfir 100.000
krónum á mánuði. Er nema von að
fjármál við starfslok flækist fyrir
mörgum?
Hálfur lífeyrir
Björn Berg
Gunnarsson
fræðslustjóri
Íslandsbanka
Takist það verkefni að rækta orðspor Íslands enn frekar mun það skila sér í aukinni eftir-spurn eftir íslenskri
náttúru, vörum og þjónustu. Þar
með verða til aukin verðmæti
sem skila sér í auknum lífsgæðum
landsmanna. Orðspor má meðal
annars rækta með því að fram-
leiða gæði og þar ættu Íslendingar
að standa vel að vígi. Það er ekki
nóg að aðrir hafi áhuga á þessum
íslensku gæðum heldur þurfa
heimamenn að sækjast eftir þeim
líka. Hið opinbera ræður miklu
um hvernig til tekst og hljóta ráða-
menn að vinna að þessu.
Ræktum orðspor
Ráðherrar voru nýverið spurðir að
því hversu hátt hlutfall íslenskra
matvæla væri í innkaupum ráðu-
neytisins. Þessi fyrirspurn þing-
manns er áhugaverð því að grunni
til snýst hún um vitund ráðamanna
um að velja íslenskar vörur. Svörin
komu ekki á óvart en heilt yfir
leitast ráðuneytin við að velja
íslensk matvæli. Þetta er jákvætt
því þannig er orðspor landsins
ræktað og verðmætasköpun aukin
með jákvæðum áhrifum á lífsgæði
landsmanna.
Hljóð og mynd
Kanslari Þýskalands myndi ekki
aka um á bandarískum bíl heldur
kæmu þýskir bílar aðeins til greina.
Í Danmörku prýðir dönsk hönnun
opinberar byggingar. Mörg fleiri
dæmi mætti taka en myndin er
skýr. Þetta val er hluti af sjálfsmynd
viðkomandi þjóða.
Húsgögn prýða allar byggingar
og það á að vera sjálfsagt mál að
íslensk húsgögn sjáist í öllum opin-
berum byggingum, ekki síst þeim
sem almenningur á erindi um í
einhverjum mæli. Ráðuneytin eru
dæmi um það. Á fyrstu þremur
mánuðum nýrrar ríkisstjórnar
greiddu ráðuneyti um 12 milljónir
fyrir húsgögn ef marka má upp-
lýsingar á vefnum opnirreikningar.
is. Þar af voru 10 milljónir greiddar
fyrir innflutt húsgögn eða 84% af
innkaupunum á umræddu tíma-
bili. Á það hefur verið bent að
skandinavísk hönnun er áberandi
í opinberum byggingum og þannig
fara tækifæri til að rækta orðspor
Íslands forgörðum. Það er miður
og tefur þessa mikilvægu uppbygg-
ingu.
Hönnun er samtal
Hönnun er að grunni til samtal
milli þriggja aðila: hönnuðar,
framleiðanda og notanda. Hönn-
uðir höfða til síbreytilegra þarfa
notenda og þurfa að taka mið af
hinu mögulega við framleiðslu.
Með vali sínu hafa notendur mikil
áhrif á hönnun. Framfarir í tækni
og framleiðslu auka möguleika á
því að láta hönnun verða að veru-
leika. Það samtal sem hönnun er á
að sjálfsögðu að eiga sér stað hér á
landi ekki síður en annars staðar.
Þetta þurfum við öll að hafa í huga,
ekki síst hið opinbera.
Kaupum gæði
Hið opinbera eyðir 45 krónum af
hverjum 100 krónum sem eytt er í
hagkerfinu. Með réttu vali má því
hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu
atvinnugreina með tilheyrandi
störfum og verðmætasköpun hér-
lendis.
Það skiptir því talsverðu máli
hvernig opinberum innkaupum
er hagað því þannig má hafa
jákvæð áhrif á þróun á markaði.
Hið opinbera getur einnig verið
drifkraftur nýsköpunar og lagt
mikið af mörkum til sjálfbærrar
þróunar eins og segir í svari for-
sætisráðherra við fyrrgreindri
fyrirspurn. Einnig er bent á
það í svari ráðherrans að með
lögum um opinber innkaup sem
tóku gildi haustið 2016 sé aukin
áhersla á „vistvæn“ innkaup.
Þannig er í auknum mæli horft
til gæða, umhverfisverndar, t.d.
loftslagmála og kolefnisfótspors
vöru, félagslegra markmiða og
nýsköpunar. Þar standa íslenskir
framleiðendur sterkt auk þess að
bjóða samkeppnishæf verð. Nýta
þarf hvert tækifæri til þess að
auka veg íslenskrar framleiðslu
og hönnunar og rækta þannig
orðspor landsins með tilheyrandi
verðmætasköpun.
Val endurspeglar sjálfsmynd
Sigurður
Hannesson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
Kanslari Þýskalands
myndi ekki aka um
á bandarískum bíl heldur
kæmu þýskir bílar aðeins til
greina.
Auðvelt val
Tilkynnt var í síðustu
viku að tólf um-
sækjendur væru
um embætti
aðstoðarseðla-
bankastjóra.
Flestir sem til þekkja
telja augljóst að Jón Þ.
Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri
alþjóðasamskipta og skrifstofu
seðlabankastjóra, eigi þar að verða
fyrir valinu. Jón hefur verið á meðal
æðstu stjórnenda Seðlabankans um
áralangt skeið, þar sem hann hefur
einkum séð um samskipti bankans
við AGS og lánshæfismatsfyrirtækin,
auk þess að hafa leikið stórt hlut-
verk í framkvæmdahópi stjórnvalda
sem útbjó áætlun um afnám hafta
2015. Færri vita hins vegar að hann
hefur síðustu ár einnig verið í stjórn
gríska Fjármálastöðugleikaráðsins.
Þar hefur Jón unnið að því risavaxna
verkefni, ásamt öðrum evrópskum
seðlabankamönnum, að endurreisa
gríska fjármálakerfið. Það ætti því að
reynast Katrínu Jakobsdóttur auðvelt
að velja eftirmann Arnórs Sighvats-
sonar í embættið, standi vilji hennar
á annað borð til þess að ráða hæfasta
umsækjandann.
Yfirskuldsett
Í tilkynningu RÚV
vegna ársuppgjörs
félagsins fyrir síðasta
ár er mikið gert úr
skuldalækkun félags-
ins í fyrra sem er sögð
hafa verið sú mesta í
sögu þess. Þegar litið er
á sjálfan ársreikninginn blasir hins
vegar önnur mynd við. Ríkisútvarpið,
sem er stýrt af Magnúsi Geir Þórðar-
syni, er skuldsett upp fyrir haus en
skuldirnar voru alls 6,2 milljarðar í lok
ársins borið saman við 6,0 milljarða
í árslok 2016. Er sérstaklega tekið
fram í reikningnum að þegar fram líða
stundir muni RÚV ekki geta – vegna
skuldastöðunnar – staðið undir
greiðslum afborgana af láni Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins.
Til Íslenskra
fjárfesta
Tómas Karl
Aðalsteinsson, sem
starfaði áður sem
sjóðstjóri hjá Stefni,
hefur gengið til liðs
við verðbréfafyrir-
tækið Íslenska fjárfesta
þar sem hann mun stýra
erlendum sjóðum fyrirtækisins.
Fyrirtækið hefur auk þess ákveðið að
færa sig um set en það hefur tryggt
sér húsnæði á Skólavörðustíg. Bætist
hann þar í hóp þeirra Hannesar Árdals
og Sigurðar Hreiðars Jónssonar,
2 8 . M A r S 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U r10 marKaðurinn
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
5
-2
4
7
0
1
F
5
5
-2
3
3
4
1
F
5
5
-2
1
F
8
1
F
5
5
-2
0
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K