Fréttablaðið - 28.03.2018, Qupperneq 54
www.husgagnahollin.is
558 1100
PÁSKA
TAX
FREE
Allar vörur á taxfree tilboði*
LÝKUR Á
LAUGARDAG
* Taxfree tilboðið gildir af öllum vörum nema sérpöntunum
og vörum frá IITTALA og jafngildir 19,35% afslætti.
Gildir ekki ofan á önnur tilboð. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt
af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
OPIÐ MIÐVIKUD. 1000–1800 OG LAUGARD. 1100–1700
EKKI MISSA AF ÞESSU
www.husgagnahollin.is
N
Ý
OG
BE
TRI VEFVERSLU
N
A
LLTAF OP
IN
Opnunartími yfir páskana: Opið miðvikudag 10–18,
laugard. 31. mars 11–17. Lokað páskadag og 2. í páskum.
Hefðbundin opnunartími frá og með þriðjud. 3. apríl
Það er eiginlega allt á suðupunkti ,“ segir Greta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari glaðlega í þann mund sem hún stígur upp í flugvél
á leið til Akureyrar að spila í Matt
heusarpassíu Bachs í Hofi á morgun,
skírdag. Eins og nærri má geta hefur
hún verið á fullu við æfingar að
undanförnu. „Það eru tvær hljóm
sveitir sem spila mismunandi sóló í
verkinu og ég leiði aðra þeirra. Svo
eru dálítið stór fiðlusóló hjá mér
sem ég er aðeins að svitna yfir!“
Mattheusarpassían hefur verið
nefnd drottning allra tónverka.
Tekur Greta Salóme undir það mat?
„Þetta verk er náttúrlega risastórt og
algerlega magnað og í því eru sóló
fyrir alls konar raddir. Það koma um
hundrað manns að flutningnum, þar
á meðal frábærir einsöngvarar, bæði
íslenskir og erlendir. Aríurnar þeirra
eru margar hverjar einstakar og
yndislegar. Við byrjum fyrir norðan
á morgun og verðum svo á föstudag
inn langa í Hallgrímskirkju. Ég hvet
fólk til að mæta. Maður kemst alveg
í hátíðaskapið.“
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Mattheusarpassían er flutt á Akur
eyri. Verkefnið er samstarfsverkefni
Menningarfélags Akureyrar og List
vinafélags Hallgrímskirkju.
Greta Salóme segir dymbilvikuna
auðvitað rétta tímann fyrir passíuna
enda sé Bach að túlka atburði þeirr
ar viku, samkvæmt frásögn Matt
heusarguðspjalls, síðustu kvöldmál
tíðina, svik Júdasar, handtöku Jesú,
yfirheyrslur og krossfestingu.
Það er hin skoskíslenska Hannah
Morrison, ein af virtum barokksöng
konum samtímans, sem syngur
sópranhlutverkið að þessu sinni,
hlutverk Jesú er í höndum Krist
ins Sigmundssonar en guðspjalla
maðurinn er túlkaður af danska
tenórnum Valdemar Villadsen sem
er rísandi stjarna í óperuheiminum.
Aðrir einsöngvarar eru þau Elmar
Gilbertsson, Oddur Arnþór Jónsson
og Hildigunnur Einarsdóttir. Um
undirleik og kórtónlist sjá Sinfóníu
hljómsveit Norðurlands, Kammer
kór Norðurlands, Hymnodia og
Stúlknakór Akureyrarkirkju ásamt
Barna og unglingakór Hallgríms
kirkju. Stjórnandi tónleikanna er
Hörður Áskelsson, organisti og kór
stjóri.
Spurð hvort þetta verkefni sé
ólíkt öðru sem hún hefur fengist
við, svarar Greta Salóme: „Nei, alls
ekki. Ég er alltaf í klassíkinni en líka
í poppinu, rokkinu og djassinum
jöfnum höndum. Upp úr tvítugu fór
ég að sérhæfa mig í því að geta spilað
allt og það er auðvitað gríðarlega
krefjandi. En tónlistarlandslagið er
svo vítt svo sérhæfing á einu sviði
getur verið heftandi.“
Greta Salóme er oft hálft árið
erlendis en hún lék með í Sinfóníu
hljómsveit Íslands í átta ár og er
búin að vera konsertmeistari í Sin
fóníu/Nord í nokkur ár. „Svo er ég
að spila sóló á hverjum degi í hvaða
mynd sem er. Þetta er lífið mitt.“
Kemst alveg í hátíðaskapið
Mattheusarpassía Bachs verður flutt í Hofi á Akureyri á skír-
dag og Hallgrímskirkju á föstudaginn langa. Einsöngvarar í
fremstu röð, kórar og sinfóníuhljómsveit sameinast um það.
„Það eru fiðlusóló sem ég er að svitna yfir,“ segir Greta. Fréttablaðið/SteFán
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Stendur undir nafni
Fimm leikkonur flytja Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðar
strönd á föstudaginn langa.
Steinunn Jóhannesdóttir hefur
umsjón með flutningnum. „Við
viljum vekja athygli á þeirri stað
reynd að Hallgrímur Pétursson leit
aði á sínum tíma til mætra kvenna
til þess að koma þessu skáldverki
sínu á framfæri við lesendur og
hlustendur. Hann sendi þeim öllum
eiginhandarrit að sálmunum með
ósk um að þær gerðust kynningar
fulltrúar hans,“ segir hún.
Tónlistarflutningur milli þátta er í
höndum Zsuzsönnu Budai, organista
kirkjunnar í Saurbæ.
Lesturinn hefst klukkan 13.30 og
stendur til 18.30. Allir eru hjartan
lega velkomnir í kirkjuna til að hlýða
á hann að hluta eða allan. – gun
Sálmalestur og tónar í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
lesararnir Margrét Guðmundsdóttir, Halla Guðmundsdóttir, Steinunn
Jóhannesdóttir, Kristbjörg Kjeld og edda Þórarinsdóttir. Mynd/HilMar ÞorSteinn
2 8 . m a r s 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U r26 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
menning
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
5
-1
F
8
0
1
F
5
5
-1
E
4
4
1
F
5
5
-1
D
0
8
1
F
5
5
-1
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K