Fréttablaðið - 01.05.2018, Qupperneq 26
Frá 2010 hafa rúm-
lega 320.000 Leaf
verið seldir á 51 markaði.
Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Sími 512 5457 Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800 www.frettabladid.is
Bílar Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is
Þegar teknar eru saman tölur um vistvæna bíla sem seldir hafa verið hingað til á árinu
sést að Hekla hefur selt 523 af sam-
tals 827 slíkum bílum og nemur
það 63,2% hlutdeild. Næst þar á
eftir er Brimborg með 109 bíla og
13,2% hlutdeild og þá BL með 101
bíl og 12,2% hlutdeild. Askja hefur
selt 81 slíkan bíl og er með 9,8%
hlutdeild og Bílabúð Benna 8 og er
með 1% hlutdeild. Þegar talað er
um vistvæna bíla er átt við bíla sem
ganga fyrir íslenskri orku/endur-
nýjanlegum orkugjöfum eins og
metani og rafmagni þar sem hægt
er að stinga bílnum í samband.
Einnig er forvitnilegt að skoða sölu
bíla til einstaklinga það sem af er
ári og undanskilja sölu til bíla-
leiga, sem eru drjúgar er kemur að
heildarsölu bíla þessi árin. Kemur
þá í ljós að Hekla er með 23% hlut-
deild og er hæst allra bílaumboða.
Miklar vinsældir
vistvænna bíla í ár
Vinsældir vistvænna bíla, þ.e.
metan-, raf- og tengiltvinnbíla
frá Heklu, skýra að stórum hluta
þennan góða árangur. Sést það ef
til vill best í mikilli söluaukningu
á Mitsubishi-bílum sem aðeins
voru með 2,3% af sölunni á sama
tíma í fyrra, en eru nú með 9,65%
sölunnar. Vegur þar drýgst góð
sala Mitsubishi Outlander PHEV
tengiltvinnbílsins. Volkswagen
er nú með 7,8% hlutdeild en var
aðeins með 4,9% sölunnar í fyrra.
Þar vegur góða sala Golf og Passat
í tengiltvinnútgáfum og rafmagns-
útgáfum þungt. Audi var með 1,3%
í fyrra en 2,3% nú og þar vegur ágæt
sala Audi A3 e-tron og Audi Q7
e-tron þungt. Skoda er með 3,7%
nú en 3,4% í fyrra. Sem sagt vöxtur
á milli ára í öllum merkjunum.
Hekla með 63 prósent vistvænna bíla
Fyrir skömmu tók björgunar-sveitin Kyndill í Mosfellsbæ í notkun nýjan og afar vel
búinn bíl sem komast ætti yfir
flestar hindranir sem björgunar-
sveitarmenn mæta. Bíllinn, sem
er Ford F-350, var fluttur inn af
bílasölunni 100 bílum, er á stærstu
dekkjum sem sést hafa undir
svona bíl, en þau eru 54 tommur.
Til þess að bera svo ógnarstór dekk
voru settar hás ingar úr Unimog
undir hann en um breytingarnar
á bílnum sá Breytir og tók vinnan
við bílinn hátt í hálft ár. Úthleypi-
búnaður er tengdur við hásin-
garnar og er honum stjórnað, líkt
og mörgu öðru í bílnum, með
iðnaðartölvu. Loftpúðafjöðrun
bílsins er einnig stjórnað með
henni, sem og skriðstilli bílsins og
ljósabúnaði öllum. Nýtt rafkerfi
er í bílnum og sá Eiríkur í Stýringu
um uppsetningu þess og tengingu
við iðnaðartölvuna.
Tekur yfir 500 lítra eldsneytis
Í bílnum eru nokkrir aukaelds-
neytis tankar og tekur bíllinn í heild
yfir 500 lítra af olíu. Í bílnum er 6,7
lítra vél sem skilar yfir 500 hest-
öflum til allra hjólanna. Pallur bíls-
ins er upphitaður með Webasto-
miðstöð. Líklega er leitun að bíl
sem er betur búinn en þessi nýi
björgunarsveitarbíll Kyndils, en ef
einstaklingur hefði fjárfest í slíkum
bíl með öllum þeim breytingum og
viðbótum sem í honum eru hefði
það kostað langt yfir 30 milljónir
króna, jafnvel yfir 40 milljónir.
Björgunarsveitir njóta niðurfell-
ingar ýmissa gjalda svo þessi bíll er
ekki svona dýr fyrir Kyndil.
Kyndill fær kostagrip
Eftirspurn eftir rafbílum frá Nissan jókst um 10% á síðasta fjárhagsári sem lauk 31. mars.
Mest er ásóknin í aðra kynslóð
Leaf sem kynntur var fyrr á árinu,
aðallega í Japan, Bandaríkjunum
og Evrópu. Eins og á meginlandinu
verður almenningur hér á landi
einnig var við hina miklu eftirspurn
eftir „græna bílnum“ því hjá BL bíða
yfir 200 viðskiptavinir eftir að fá
nýjan Leaf afhentan og hefur bíla-
verksmiðja Nissan í Bretlandi ekki
undan að framleiða bílinn.
15 prósenta aukning
Að því er fram kemur í tilkynningu
frá Nissan Europe á fyrirtækið von á
að eftirspurnin fari vaxandi eftir því
sem líður á árið og fleiri markaðir
taka við hinni nýju kynslóð Leaf
sem er gjörbreyttur frá fyrri kyn-
slóð. Meðal markaða sem hefja
sölu á nýjum Leaf síðar á árinu eru
Suður-Ameríka, Eyjaálfa og Asía. Á
árinu 2017 keyptu 54.541 Nissan
Leaf, 15% fleiri en 2016 þegar seldir
voru 47.423 bílar. Frá 2010 hafa
rúmlega 320.000 Leaf verið seldir á
51 markaði. Nýja kynslóðin hefur
nú þegar unnið til fjölda verðlauna,
m.a. fyrir háþróaðan öryggisbúnað
til aukinnar verndar fyrir farþega og
gangandi vegfarendur. Þá var Leaf
nýlega kosinn „Grænasti bíllinn
2018“ hjá World Car Awards.
Fleiri gerðir fá rafmótor
Nissan Motor ætlar að stórauka
framleiðslu á bílum með rafmótor,
meiri ökuaðstoð og háþróaðri
snjalltækni. Markmiðið er að um
mitt ár 2022 verði búið að afhenda
eina milljón slíkra nýrra bíla, bæði
100% rafbíla og bíla með rafmótor
og annan aflgjafa. Bæði Renault
og Mits ubishi munu njóta góðs af
áætlun Nissan. Von er á átta nýjum
100% rafbílum sem byggðir verða
á grundvelli tækninnar í Leaf en
einnig öðrum sem verða sérstak-
lega sniðnir að þörfum markaðanna
í Kína og Japan. Þá er einnig von
á aldrifnum sportjeppa í ætt við
hugmyndabílinn IMx Kuro sem
kynntur var í Genf í mars. Nissan
gerir ráð fyrir að 40% nýrra bíla
fyrirtækisins í Japan og Evrópu verði
rafdrifnir árið 2022 og að hlut-
fallið verði komið í 50% árið 2025. Í
Bandaríkjunum gerir fyrirtækið ráð
fyrir að hlutfallið verði 20-25% árið
2025 en 35-40% í Kína.
Vaxandi
eftirspurn eftir
rafbílum Nissan
Volkswagen e-Golf og Golf GTE hafa selst vel á árinu.
Er á stærstu
dekkjum sem
sést hafa undir
björgunarsveitar-
bíl, 54 tommu.
Í bílnum eru nokkrir aukaeldsneytistankar og tekur bíllinn í heild yfir 500 lítra af olíu.
1 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R2 B í l a R ∙ F R É T T a B l a Ð I Ð
Bílar
0
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
3
-8
D
D
8
1
F
A
3
-8
C
9
C
1
F
A
3
-8
B
6
0
1
F
A
3
-8
A
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K