Fréttablaðið - 01.05.2018, Page 28
Búist er við því að
minnsti bíllinn, þ.e.
T-Roc R, muni fá sömu
310 hestafla 2,0 lítra
vélina og er í Golf R.
Margir þekkja til Volkswagen Golf R, sem telst enginn venjulegur Golf
með sín 310 hestöfl og mögnuðu
akstursgetu. Hann er sem stendur
líka eina bílgerð Volkswagen sem
ber stafinn R í endann. Það mun
breytast hressilega þetta árið
því einar þrjár aðrar bílgerðir
Volkswagen munu fá þessa krafta
bílameðferð. Það verða bílarnir
Tiguan, TRoc og Arteon. Bæði
Tiguan og TRoc eru jepplingar, en
Arteon er stærsti fólksbíllinn sem
Volkswagen smíðar í dag.
Búist er við því að minnsti
bíllinn, þ.e. TRoc R, muni fá sömu
310 hestafla 2,0 lítra vélina og er
í Golf R. Tiguan R fær hugsanlega
2,5 lítra og fimm strokka vélina
frá Audi sem finna má í Audi RS3
og skilar þar 400 hestöflum. Þá er
talið að Arteon geti fengið nýja 6
strokka vél Volkswagen með for
þjöppu sem verður langt norðan
við 400 hestöflin. Hugsanlega gæti
sú vél einnig dúkkað upp í nýja
Touaregjeppanum, sem fengi þá
einnig Rstafinn í endann. Það er
því runnið upp skeið kraftabíla
hjá Volkswagen og fetar móður
merkið þar kunnuglega slóð
undirmerkisins Audi sem hefur
verið að fjölga mjög slíkum bílum
á undanförnum árum og mun enn
bæta við.
Volkswagen Tiguan R, T-Roc R og Arteon R
PSA Peugeot Citroën keypti bílaframleiðandann Opel/Vauxhall í fyrra frá General
Motors, en viðvarandi 20 ára
taprekstur hafði verið á Opel og
GM hafði hreinlega gefist upp á
eignarhaldinu og öllu uppsafnaða
tapinu. Því ætti fáum að koma á
óvart að PSA hyggist taka hressi
lega til í Opel og það snertir æski
legan starfsmannafjölda þess. Fyrir
lok ársins 2020 vill PSA fækkun
upp á 3.700 starfsmenn hjá Opel,
en nýlegar ráðstafanir þar sem
eldra starfsfólki Opel er boðið að
hætta fyrr en við áætluð starfslok
hafa nú þegar orðið til þess að
störfum hefur fækkað um 2.000.
PSA vill þó gera gott betur og
losna við hátt í 2.000 aðra starfs
menn. Í áætlunum PSA varðandi
Opel er kveðið á um að hagnaður
verði farinn að myndast af starf
semi fyrirtækisins árið 2020 og
því verður leitað allra ráða til að
skera niður kostnað við smíði á
Opelbílum. Þar er stærsti liðurinn
fólginn í launakostnaði. Opel/
Vauxhall seldi 935.000 bíla í fyrra
og minnkaði salan um 50.000 bíla
frá árinu áður. Markaðshlutdeildin
í Evrópu féll um 0,52% á milli ára
og hefur minnkað úr 12,64% á
árinu 1993, er best gekk hjá Opel, í
6,04% nú og hefur hún aldrei verið
minni.
PSA vill reka 3.700
starfsmenn Opel
Margir nýir og mjög athyglisverðir bílar standa nú á pöllunum á bílasýning
unni í Peking, en bílamarkaðurinn
í Kína er langstærsti bílamarkaður
heims og svo til allir bílaframleið
endur heims leggja höfuðáherslu
á góða sölu bíla sinna þar. Einn
af þeim sem mesta athygli fá nú í
Peking er þessi MercedesMaybach
Ultimate Luxury rafmagnsbíll frá
Mercedes Benz sem ber hið virðu
lega merki Maybach, en þarna fer
eins konar „fólksbíll á stultum“ sem
höfða á til efnuðustu bílkaupenda
heims. Vissulega er þarna um að
ræða tilraunabíl en Benzmenn
segjast þó ætla að framleiða þennan
bíl. Þarna fer bíll hlaðinn lúxus
og nýjustu tækni sem Benz getur
boðið. Mercedes Benz hefur ekki
beint verið að fela áform sín um að
setja á markað ofurjeppa sem bera
mun Maybachmerkið. Jeppinn
verður byggður á sama undirvagni
og GLSjeppinn, en yfirbyggingin
verður allt önnur, eins og hér sést.
Það óvenjulegasta við þennan
tilvonandi jeppa er að hann verður
hreinræktaður rafmagnsbíll og það
verða engar aumingjarafhlöður í
bílnum, en hann mun skarta 738
hestöflum sem send verða til allra
hjólanna. Samtals eru rafhlöðurnar
80 kWh og drægi bílsins á fjórða
hundrað kílómetrar. Bíllinn verður
mjög snarpur með allt þetta afl og
hámarkshraðinn takmarkaður við
250 km/klst. Með jeppanum mun
fylgja 350 kW hraðhleðslustöð þar
sem hlaða má hann allt að 60%
hleðslu á aðeins 5 mínútum. Ekki
fylgir sögunni hvenær Mercedes
Benz ætlar að koma með þennan
bíl á markað. Það bendir til þess að
ekkert verði til sparað við frágang
bílsins, enda ekki annað hægt ef
hann á að bera Maybachmerkið.
Bíllinn er ekki með bekk aftur í
heldur eru 4 eins sæti í honum svo
að ekki ætti að fara verr um aftur
sætisfarþegana en framsætisfarþega
og hefur Mercedes Benz örugglega
haft bílamarkaðinn í Kína þar í
huga þar sem ofurríkir bílkaup
endur þar í landi láta iðulega aka
sér í rándýrum bílum sínum og sitja
makindalega aftur í.
Mercedes-Maybach
Ultimate Luxury í Peking
Bifvélavirkjar Renault hjá BL við Sævarhöfða luku nýlega vottunarprófi sem Renault
hélt hér á landi í þjónustu og
viðhaldi á einstökum einingum í
bílarafhlöðum Kangoo og Zoe. Af
sama tilefni afhenti franska fyrir
tækið BL að gjöf nauðsynlegan og
sérhæfðan viðhaldsbúnað sem
notaður er í þjónustunni sem fer
fram í afmörkuðu og lokuðu rými
við Sævarhöfða vegna strangra
öryggiskrafna. BL er á meðal fyrstu
fyrirtækjanna utan Frakklands
sem Renault vottar í þessu skyni og
er Ísland þriðja landið utan heima
landsins sem Renault heimilar að
sinni viðhaldi á rafhlöðum í bílum
fyrirtækisins.
Að sögn Símonar Ólafssonar,
tæknistjóra hjá BL, eru bílaraf
hlöður mjög háspenntar og því
afar mikilvægt að fylgja ströngum
verkferlum, bæði er varðar
vinnuaðstöðu og klæðnað auk þess
sem einungis eru notuð tiltekin
verkfæri sérsniðin að vinnunni.
„Ég get nefnt sem dæmi að hlífðar
fatnaður og hanskar þurfa að þola
eitt þúsund volta spennu. Vinnan
þarf að vera afmörkuð og lokuð
frá öðrum starfsstöðvum og þú
mátt ekki vera með neitt glingur
á þér sem leitt getur straum. Einn
starfsmaður má heldur ekki sinna
þessum verkefnum. Af öryggis
ástæðum þurfa þeir alltaf að vera
tveir,“ segir Símon.
Mjög fátítt er að rafhlöður bili
alvarlega en Símon segir við
hald og eftirlit með rafhlöðunum
eðlilegt ferli eins og með alla aðra
hluti sem eru í stöðugri notkun.
„Einstakar einingar í þeim geta
dalað eða gefið sig án þess að
þess verði mjög vart við notkun
bílanna. Það er hluti af ábyrgðar
þjónustu okkar við framleiðendur
að hafa eftirlit með rafhlöðunum
í samræmi við þeirra fyrirmæli og
verkferla,“ segir Símon. Nú þegar
hafa aðrir bifvélavirkjar hjá BL
sem þjónusta Nissan, Hyundai og
BMW lokið sams konar prófum og
eru alls um tíu manns hjá BL með
vottun frá bílaframleiðendum til
að sinna þjónustu við háspenntar
bíla rafhlöður.
BL er vottaður
viðhaldsaðili á
bílarafhlöðum
Rafhlaða úr Nissan Leaf.
Mercedes-Maybach Ultimate Luxury var frumsýndur í Peking í síðustu viku.
Höfuðstöðvar Opel í Rüsselsheim í Þýskalandi.
BL er á meðal
fyrstu fyrir-
tækjanna utan
Frakklands sem
Renault vottar í
þessu skyni og er
Ísland þriðja land-
ið utan heima-
landsins sem
Renault heimilar
að sinni viðhaldi á
rafhlöðum í bíl-
um fyrirtækisins. Að sögn Símonar
Ólafssonar, tækni-
stjóra hjá BL, eru bílaraf-
hlöður mjög háspenntar
og því afar mikilvægt að
fylgja ströngum verk-
ferlum, er varðar vinnu-
aðstöðu, klæðnað og
verkfæri.
1 . M A í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A G U R4 B í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Bílar
0
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
3
-7
A
1
8
1
F
A
3
-7
8
D
C
1
F
A
3
-7
7
A
0
1
F
A
3
-7
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K