Fréttablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 58
Nördið
Samviskusama nördið gerir allt eftir
bókinni í prófum og mælir Frétta-
blaðið sérstaklega með að allir
tileinki sér þann lífsstíl.
Snemma að sofa
Nördið fer eldsnemma að sofa og
vaknar fyrr til að lesa. Það er bara
svo mikið betra fyrir heilann og
heldur manni sem skýrustum.
Drekka mikið vatn
Reglulegar vatnspásur eru mikil-
vægur hlekkur í prófa-rútínu nörds-
ins. Ofþornun er ekki góð fyrir ein-
beitinguna og það er gott að vera
vel vökvaður. Góður plús er að tíðar
ferðir til að ná í vatn vinna á móti of
löngum setustundum.
Hollt snakk
Það er mikilvægt
að vera með
hollt snakk við
höndina – rófur,
gulrætur eða annað
rótargrænmeti er
alveg tilvalið til
að maula við
lesturinn og það
getur líka virkað
sem stressbani að
vera að tyggja
eitthvað.
Jafn og þéttur
lærdómur
Að hafa glósað vel og lesið jafnt
og þétt yfir önnina kemur í veg
fyrir stress og veldur því að maður
fer inn í prófatörnina með ágætis
þekkingu á efninu þannig að próf-
lesturinn er í raun bara létt upp-
rifjun.
Ekkert koffín
eða sykur
Kaffivíman er bara plat og sam-
viskusamur námsmaður ætti alls
ekki að stóla á hana. Góður átta
tíma svefn er mun betri en skyndi-
orkan sem sykur og koffín veita
manni.
Göngutúrar
Það er hollt að standa upp við og
við og skella sér í stuttan göngutúr.
Ferskt loft og aukið blóðflæði er
meðal þeirra þátta sem göngu-
túrinn bætir auk þess sem það
er mjög gott að hugsa á göngu.
TöffariNN
Það er fátt meira töff en að vera
alveg sama og „krönsa“ bara rétt
fyrir próf. Lífið er of stutt til að vera
sífellt að hugsa um skólann.
„All-nighter“
Besta leiðin til að tvöfalda
tímann fram að prófi er að
sleppa því að sofa. Það að liggja
meðvitundarlaus uppi í rúmi er
ekkert nema tímaeyðsla sem væri
mikið betur nýtt í að lesa yfir heilan
áfanga.
Sjúkrapróf
Annað gott bragð til að næla sér í
auka klukkustundir er að skrá sig
í sjúkrapróf og vera áhyggjulaus
aðeins lengur.
Fá glósur
Það er mikilvægt að kynnast
mesta nördinu á námskeiðinu við
byrjun annar og rækta sambandið
nægjanlega til að geta fengið
glósurnar frá nördinu. Góðar glósur
(frá einhverjum öðrum) eru gulli
betri.
Orkudrykkir, ekki kaffi
Kaffi veldur niðurgangi, svitakófi
og skjálfta í of miklu magni. Það er
miklu betra að sturta í sig sykr-
Nú standa yfir próf og það er ansi erfiður
tími. Þetta er hægt að tækla á margvíslegan
hátt og hér má sjá tvö sjónarhorn á þetta
tímabil auk almennrar ráðgjafar um hina
ýmsu fylgikvilla prófatíðarinnar ógurlegu.
VörN gegN
prófljóTuNNi
Það kannast allir við hið hræði-
lega fyrirbæri prófljótuna. Hér
eru nokkur brögð til að bægja
henni í burt.
Fjarlægðu ljótuna stafrænt
Skelltu öllum myndum í gegnum
svona 40 filtera eða hreinlega
bara í fótósjopp og lagaðu
ljótuna.
Maski
Það virðist vera í tísku að nota
maska – vertu með maska allan
sólarhringinn og enginn sér
ljótuna auk þess sem þú vinnur
gegn áhrifum hennar á meðan.
Engar myndir
Það er alveg hægt að segja fylgj-
endunum frá gangi mála án þess
að andlitið komi við sögu. Til
dæmis er opin bók á borði eða
kaffibolli alveg fínasta mynd-
efni sem segir „próf“ án þess að
myglaða andlitið þitt komi við
sögu. „Pro tip“ – leggja bókina
yfir andlitið og taka mynd.
Safna skeggi
Próf er góður tími til að safna
þykku alskeggi. Það felur allan
ljótleika og einnig segir gott
skegg að þú sért ekki að hugsa
um annað en verkefnið sem þú
átt fyrir höndum, sem er alveg
pínu töff.
Tæklaðu
prófatörnina
með stæl
HVerNig lifir maður
prófaTörN af?
l Verðlauna sig eftir hvern
áfanga.
l Lesa einn kafla og fá sér
nammi eða horfa á einn þátt.
l Skella sér í sund eftir hvert
einasta próf til að sveita
stressinu út.
l Hafa eitthvað til að hlakka
til eftir prófin – til að mynda
ferðalag eða eitthvað
skemmtilegt. Tilhlökkunin
heldur þér á lífi í gegnum
törnina.
l Ganga í gegnum kirkjugarða
til að verða meðvitaðri um að
í raun skiptir þetta engu máli
og að þú verður dauð/ur áður
en þú veist af.
uðum orkudrykkjum sem innihalda
auk koffíns og sykurs gífurlegt
magn af gvarana og einhverjum
fleiri geggjuðum efnum.
Gefast upp
Það er mjög mikilvægt að kunna að
gefast upp. Þegar þú sérð að þú ert
aldrei að fara að ná að læra nógu
mikið fyrir prófið er æðruleysið
besta vopnið.
stefanthor@frettabladid.is
1 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R32 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð
Lífið
0
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
3
-8
3
F
8
1
F
A
3
-8
2
B
C
1
F
A
3
-8
1
8
0
1
F
A
3
-8
0
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K