Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 8
8 4. maí 2018fréttir
Þ
ó svo að hvalveiðar séu mikilvæg-
ur hluti af sögu okkar íslendinga
þá eru að mínu mati hvalveiðar
árið 2018 tímaskekkja. Skilningur
á hvalveiðum er lítill í alþjóðasamfélaginu
og áhugi á hvalaafurðum nánast enginn.
Hrefnuveiðar munu aldrei ganga í ná-
lægð hvalaskoðunarsvæðanna þar sem
hrefnan er sá hvalur sem hvalaskoðun á
Íslandi er byggð á.
Því hafa hrefnuveiðar haft bein áhrif
á gæði og ímynd hvalaskoðunarferða
á Íslandi. Langreyðaveiðar hafa áhrif á
ímynd landsins og
valda útflutnings-
greinunum vand-
ræðum í sölu á
íslenskum af-
urðum. Það verð-
ur seint eða aldrei skilningur á veiðum á
langreyð í alþjóðasamfélaginu þar sem
sá hvalur er ennþá talinn í út-
rýmingarhættu. Við ættum ekki
að láta þjóðarstoltið flækjast fyrir
okkur þegar kemur að því að taka
skynsamlegar ákvarðanir um að hætta
hvalveiðum fyrir fullt og allt.
H
valir eru hluti af vistkerfi hafsins sem
við mennirnir reynum að nýta af
skynsemi. Jafnvægi ríkir í kerfunum
meðan nýting er skynsamleg, að tekið
sé tillit til endurnýjunar stofna, tegundir sem
lifa á öðrum stofnum fái sitt og fjölbreytileiki
sé tryggður. Þetta höfum við náð að gera hér
á landi eftir tilkomu kvótakerfisins og erum
að fóðra milljónir manna með fisk úr okkar
vistkerfi. Hvalir veiða af okkar veiðistofnum
og taka meira en við Íslendingar veiðum.
Hvalirnir fjölga sér ört við Ísland enda
hafa flestir stofnar stækkað við Ísland
vegna skynsamlegrar nýtingar og of lítið
er veitt af sumum tegunda hvala. Nóg
hafa þeir ætið. Öfgasamtök hafa barist
gegn sölu á kjöti og þannig skaðað
markaðsstarf á hvalkjöti. Vissulega eru
einhverjar hvaltegundir á einhverjum svæð-
um í hættu í heiminum en þær hvaltegundir
sem við veiðum og nýtum eru langt frá því að
vera í útrýmingarhættu og
eru vannýttar.
Offjölgun þeirra leið-
ir til skekkju í vistkerfinu sem skaðar alla
skynsamlega nýtingu fiskistofna sem við Ís-
lendingar byggjum okkar afkomu á.
Svanur Guðmundsson kosningastjóri Rannveig Grétarsdóttir, forstjóri Eldingar
með á móti
Með og á Móti Hvalveiðum
m
iklar breytingar hafa
átt sér stað undanfar-
in misseri á eignarhaldi
Hamborgarafabrikkunn-
ar og Keiluhallarinnar í Egilshöll.
Jóhannes Stefánsson, gjarnan
kenndur við Múlakaffi, er orðinn
meirihlutaeigandi félaganna en
athafnamaðurinn Sigmar Vil-
hjálmsson hefur selt öll hlutabréf
sín í félögunum.
Óhætt er að segja að um kafla-
skil sé að ræða en Simmi og Jói (Jó-
hannes Ásbjörnsson), viðskiptafé-
lagi hans og vinur, hafa verið andlit
Fabrikkunnar frá því að fyrsti stað-
urinn var opnaður árið 2010. Sig-
mar mun þó ekki hverfa strax af
vettvangi en samkvæmt heim-
ildum DV mun hann gegna starfi
framkvæmdastjóra Keiluhallar-
innar og veitingastaðarins Shake &
Pizza út þetta ár.
Rekstur Hamborgarafa-
brikkunnar hefur frá upphafi ver-
ið í gegnum fyrirtækið Nautafé-
lagið ehf. Þar til í árslok 2017 áttu
Sigmar og Jóhannes 35% hlut hvor
í félaginu. Aðrir eigendur voru
Skúli Gunnar Sigfússon, gjarn-
an kenndur við Subway, með
25% eignarhlut og Snorri Mart-
einsson, sem starfað hefur sem
framkvæmdastjóri Fabrikkunnar
undanfarin ár, með 5% hlut.
Þess má geta að talsvert hefur
verið fjallað um deilur Sigmars og
Skúla vegna lóða á Hvolsvelli og
ljóst var að það var grunnt á því
góða milli viðskiptafélaganna.
Rétt fyrir áramót seldu Sig-
mar, Jóhannes og Skúli hluti sína,
alls 75%, til félagsins Gleðipinnar
ehf., sem á og rekur Keiluhöllina,
en eftir sat Skúli í Subway í minni-
hluta með sinn 25% hlut.
Úr borgurum í pólitík
Þremenningarnir áttu einnig hlut í
Gleðipinnum ehf. Simmi og Jói áttu
26,67% hlut hvor, Jóhannes í Múla-
kaffi 15,83% hlut sem og hjónin
Guðmundur Auðunn Auðunsson
og Guðríður María Jóhannsdóttir.
Að lokum átti áðurnefndur Snorri
Marteinsson 5% hlut.
Á dögunum seldu síðan Sigmar
og Snorri sinn hlut í Gleðipinn-
um ehf. til Jóhannesar í Múla-
kaffi. „Ég get staðfest að ég hef
selt minn hlut. Það kom skyndi-
lega upp en var gert í mesta bróð-
erni og vinsemd. Ég kveð sáttur,“
segir Snorri Marteinsson í samtali
við DV. Snorri hefur heldur betur
söðlað um en hann skipar 2. sæti
á lista Höfuðborgarlistans fyrir
komandi sveitarstjórnarkosningar
í Reykjavík.
„Ég var með strákunum í
Fabrikku-ævintýrinu frá upphafi
og aðstoðaði þá með fjármögn-
un og gerð rekstraráætlana,“ seg-
ir Snorri, sem á og rekur ráðgjaf-
arfyrirtækið SMART ráðgjöf ehf.
Hann segir að það hafi aldrei ver-
ið ætlunin að hann tæki að sér
framkvæmdastjórn veitingastað-
anna, hlutirnir hafi einfaldlega
æxlast þannig. „Þetta er búinn að
vera frábær tími en núna er tíma-
bært að snúa sér að
öðrum verkefn-
um,“ segir Snorri.
Hann kveðst
bjartsýnn á góð-
an árangur Höf-
uðborgarlist-
ans í komandi
kosningum
enda hafi við-
tökurnar ver-
ið afar góðar.
Ekki náð-
ist í Sigmar
Vilhjálms-
son við
vinnslu
fréttar-
innar.
n
kveður Fabrikkuna
og keiluHöllina
n Sigmar hefur selt alla hluti sína n Framkvæmdastjóri til áramóta
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Snorri Marteinsson og Jóhannes Ásbjörnsson Myndina birti Snorri, sem nú er í framboði til borgarstjórnar Reykjavíkur, á Facebook-síðu sinni þegar hann tilkynnti um að hann væri að hverfa úr hluthafahópi félaganna.
Sigmar
Vilhjálmsson
Athafnamaður-
inn hefur selt öll
hlutabréf sín í Ham-
borgarafabrikkunni
og Keiluhöllinni. Nýjar
áskoranir taka við.