Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Síða 10
10 4. maí 2018skrýtið
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Við látum framtíðina rætast.
Komdu við hjá sérfræðingum
okkar að Laugavegi 174 og kynntu þér úrval Volkswagen atvinnubíla í einni fjölhæfustu
fjölskyldu landsins.
FJÖLHÆFASTA
FJÖLSKYLDA
LANDSINS?
Glæsilegur og vel út búinn pallbíll
með 3.0 lítra, 225 hestafla, V6
dísilvél, 550 Nm togi, læst afturdrif,
dráttarbeisli, heithúðun á palli,
stigbretti, vetrardekk og nú á
einstöku tilboðsverði.
Volkswagen Amarok
verð frá 7.890.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 5.610.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá 2.590.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fulkomin
stöðugleikastýring, spólvörn og
sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.180.000 kr.
A
nnan dag jóla árið 1979
fæddist simpansinn Júlíus,
frægasti api Noregs, í dýra-
garðinum í Kristiansand.
Skömmu eftir fæðinguna fundu
dýragarðsverðirnir hann á gólfinu
þar sem móðir hans, Sanne, hafði
hafnað honum. Hann var þá með
mikil meiðsli á öðrum handleggn-
um og fingri.
Í sjónvarpi og barnabók
Forstjóri dýragarðsins, Edvard
Moseid, tók þá ákvörðun að leyfa
Júlíusi að dveljast hjá fjölskyldu
sinni um tíma en einnig fékk Júlíus
að búa hjá dýralækninum William
Glad. Uppvöxturinn gekk vel og
Júlíusi kom vel saman við börn
Moseid og Glad. Hann klæddist
mannafötum, tannburstaði sig,
drakk safa úr pela og hélt upp á af-
mælið sitt með köku.
Að Júlíus byggi hjá mönn-
um spurðist fljótt út og brátt varð
hann að stórstjörnu í Noregi. Árið
1981 voru gefnir út sjónvarpsþætt-
ir um líf hans og einnig barnabók
sem var þýdd á íslensku og margir
þekkja. Þá var einnig samin barna-
vísa um apann krúttlega.
Fyrir flesta lýkur sögunni þarna,
að minnsta kosti þá Íslendinga
sem áttu bókina. Júlíus óx nú samt
úr grasi eins og aðrir apar og þegar
það átti að láta hann aftur til hinna
simpansanna gekk sú aðlögun
mjög hægt og illa. Júlíus átti nefni-
lega við mikil hegðunarvandamál
að stríða og lengi vel vildu hinir
aparnir ekkert með hann hafa. Júl-
íus var öðruvísi og einangraður.
Hegðunarvandamál
og sonarmissir
Árið 1996 var reynt að koma hon-
um saman við apynjuna Miff, sem
var þá ófrísk eftir annan apa. Það
gekk hins vegar mjög illa og Júlíus
barði bæði Miff og nýfæddan ung-
ann. Þetta harðræði orsakaði það
að þau voru skilin að. Tvö skamm-
líf sambönd með Dixí og Jósefínu
fylgdu í kjölfarið uns hann festi
loks ráð sitt með Bíní árið 2005.
Þetta sama ár dó leiðtogi apahóps-
ins í Kristiansand og Júlíus steig þá
upp og varð leiðtoginn.
Loksins virtist lífið ætla að
ganga upp fyrir Júlíus. Hann eign-
aðist tvö afkvæmi með Bíní, son-
inn Línus og dótturina Ýr. En einn
vordag árið 2012 hvarf hinn fimm
ára gamli Línus. Dýragarðsvörð-
urinn fór inn á stórt svæði sem
aparnir höfðu til umráða og fann
hann drukknaðan í díki. Sorgin
var augljós í apahópnum enda
hafði Línus verið hugljúfi allra.
Júlíus er nú orðinn 38 ára gam-
all og leiðir enn þá apaflokkinn í
Kristiansand. Edvard Moseid og
börnin heimsækja hann stund-
um og hann þekkir þau ávallt. En
hann hefur einnig átt við hegð-
unarvandamál að stríða undanfar-
ið, til dæmis með því að kasta sér á
gluggann sem dýragarðsgestirnir
horfa í gegnum. Hann er sólginn í
gosdrykki, kökur og annað sætmeti
og kann því að halda upp á lífið rétt
eins og þegar hann var ungi og all-
ur Noregur fylgdist með honum. n
Frægasti api Noregs
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Apinn Júlíus heillaði íslensk börn - Glímdi við hegðunarvandamál og aðlagaðist ekki öðrum öpum