Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 12
12 4. maí 2018fréttir
Andri Snær Magnason
„Vonda“ fólkið myndi kalla hann holdgerv-
ing „góða“ fólksins. Hann virðist varla segja
orð eða skrifa staf án þess að meina eitt-
hvað með því, eitthvað djúpt, mikilvægt og
gott. Margir hlusta, en ekki nógu margir til
að gera hann að forseta.
Andrés Magnússon og
Friðjón R. Friðjónsson
Af hverju kýs fjórðungur
þjóðarinnar Sjálfstæð-
isflokkinn? Hvern-
ig ná þeir alltaf að
fá fleiri atkvæði en
þeir mælast með
í könnunum fyrir
kosningar? Það má
þakka Andrési og Frið-
jóni, sem eru mennirnir á
bak við tjöldin í Valhöll. Þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn er í vörn, enginn í þeirra
röðum svarar símum og Facebook-síð-
ur vinstrimanna loga af reiði þá veistu að
Andrés og Friðjón eru ekki að fara snemma
að sofa.
Ari Eldjárn
hefur sett ný viðmið í íslensku uppistandi,
allir þeir sem stíga á svið héðan í frá verða
bornir saman við Ara. Og munu líklega
flestir líta illa út. Útlönd vita að við erum
fallegust, listræn og góð í fótbolta. Ari hefur
sannað að við erum líka fyndin. Við erum
allur pakkinn.
Arnþrúður Karlsdóttir
á greiða leið að einmana og bitrum
hjörtum, sem hlusta spennt á
hana og Pétur tæklar helstu
mál samfélagsins. Að öllu
gríni slepptu gera fáir sér
grein fyrir miklu valdi
stöðvarinnar. Arnþrúður
stýrir útvarpsstöð sem nær
alltaf einum inn í borgar-
stjórn.
Baltasar
Kormákur
Allir sammála um að allt
sem hann gerir sé frábært.
Jafnvel þó það
sé ekki einu
sinni byrjað
að skjóta
það. Ótví-
ræður
konung-
ur íslenska
kvikmynda-
heimsins.
Bjarni Benediktsson
Sjarmi og huggulegheit Bjarna er
það eina sem landinn „heyrir“ þegar
hann svarar erfiðum spurningum. Bjarni
á marga aðdáendur en margir blindast og
þá sérstaklega þegar hann er með köku eða
barn í fanginu. Þegar það tekst er það eins
og að taka rauðu pilluna eða fylgja Lísu
niður holuna. Enginn vill vita sannleikann
á meðan það er góðæri. Hringdu eftir hrun.
Bragi Valdimar Skúlason
Ímyndaðu þér nýlegt vinsælt, íslenskt dæg-
urlag með hnyttnum texta. Bragi samdi
textann. Ímyndaðu þér ömurlegt lag sem
átti að vera fyndið. Bragi samdi það ekki.
Biggi lögga
Samviska þjóðarinnar og sameiningartákn
þeirra sem vilja öllum vel. Fer í taugarnar á
öllum hinum.
Broddi Broddason
Ímyndaðu þér útvarpsfréttir og þú heyr-
ir í Brodda. Röddin og talandinn er
þannig að þú trúir hverju orði. Broddi tal-
ar og þú hlustar. Gissur er þannig líka.
Innihaldslaus löggufrétt verður eins og
æsispennandi Hollywood-mynd í upplestri
þessara manna.
Bubbi Morthens
Langstærsti karakter Íslands, með bestu
lögin, bestu textana, bestu röddina og
bestu sögurnar. Og nú líka bestu tístin,
hann getur tíst um þornandi málningu þess
vegna, það verður lesið.
Dagur B. Eggertsson
Glaðbeitt og brosmilt andlit kerfisins. Skip-
ar starfshópa, heimsækir leikskóla, kynnir
glærur, knúsar grunnskólakrakka, er ekki á
plánetunni Jörð þegar allt fer til fjandans og
klippir á borða þegar eitthvað á að byggja.
Nútímastjórnmálamaðurinn holdi klædd-
ur.
Davíð Oddsson
er óþreytandi við að rifja fortíðina upp með
sínum hætti. Hægri menn lepja boðskap-
inn upp en vinstri vængur-
inn lýgur því að hann lesi
ekki Moggann. Dropinn
holar steininn, kannski
fara fleiri en Hannes
Hólmsteinn að átta
sig á því hvað „raun-
verulega“ gerðist í
hruninu.
Egill Helgason
Er honum eitthvað óviðkomandi? Einn
valdamesti fjölmiðlamaður landsins og
sá viðkunnanlegasti. Miðlar af reynslu
sinni og gerir okkur fróðari.
Erpur Eyvindarson
Alþýðuskáld og rappfrumkvöðull sem unga
rappsenan lítur upp til í dag og hlustar á.
Síðasta von kommúnista á Íslandi.
Fanney Birna Jónsdóttir
Umræðustjóri á RÚV sem lætur á sér kveða
í Kjarnanum. Sýnir að ungar konur geta
komist til áhrifa. Mikilvægt? Heldur betur.
Gísli Marteinn Baldursson
Þessi á hjólinu í 101 og 107 sem talar í sjón-
varpinu við aðra sem eru líka á hjóli í 101
eða 107. Guð fyrir þeim sem eru á hjóli í
101 eða 107. Það er aldrei of seint að læra
að hjóla og ef við dettum af baki höldum
við áfram, eins og Gísli.
Gunnar Smári Egilsson
Foringi fátæklinganna, sem eins og Karl
Th. Birgisson sagði að þegar hann hefur
selt sjálfum sér hugmynd er hann óstöðv-
andi. Ef hann hefði verið uppi fyrir þúsund
árum þá hefði hann sennilega stofnað ný
trúarbrögð og farið létt með það.
Guðni Th. Jóhannesson
forseti sem er bókstaflega allstaðar.
Ekki láta þér bregða ef hann birtist
fyrir aftan þig þegar þú ert að tann-
bursta þig fyrir svefninn og hendir í
eina „sjálfu“ með þér. Kennir okkur að
vera góð við hvert annað og verður tek-
inn í dýrlingatölu eins og Vigdís.
Guðmundur Benediktsson
Fyrst var það Siggi Sig, svo Bjarni Fel og nú
Gummi Ben. Ef hann er ekki að lýsa leikn-
um nennir fólk varla að horfa á hann.
Þau stjórna því hvernig þú hugsar
Þegar þau segja eitthvað, þá hlustum við, þegar þau skrifa
eitthvað, þá lesum við, þegar þau gera eitthvað þá hermum
við eftir. Þau móta samfélagið, af gjörðum þeirra drögum við
lærdóm, góðan og slæman. Þau eru fólkið sem segir þér hvernig
þú átt að hugsa!