Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 14
14 4. maí 2018fréttir
H
ákon Hildibrand, hótel-
eigandi og athafnamaður
í Neskaupstað, var á ferða-
lagi ásamt unnusta sín-
um, Hafsteini Hafsteinssyni rit-
höfundi, í Napolí á Ítalíu þegar
blóðbankabíll frá Barnaspítal-
anum í Napolí stoppaði hann og
vildi að hann myndi gefa blóð þar
sem neyðarástand hefði myndast
vegna blóðskorts á spítalanum.
„Þau sögðu við mig að ég væri
svo feitur og rauður, svona rosa-
lega blóðlegur,“ segir Hákon.
Hann segist hafa verið snöggur
að tilkynna þeim að hann væri
samkynhneigður og mætti því
ekki gefa blóð.
Hákoni datt ekki í hug að hann
mætti gefa blóð á Ítalíu vegna
kynhneigðar sinnar.
„Ég fékk bara furðusvip á mig
og fylgdi spurning í framhaldi af
hverju það skipti máli þótt ég væri
samkynhneigður.“ Hann útskýrði
fyrir læknunum og hjúkrunar-
fræðingunum að á Íslandi mættu
samkynhneigðir ekki gefa blóð.
„Læknirinn var ekki alveg að
skilja mig þar sem hann sagði að
allt blóð væri skimað og skipti því
kynhneigð engu máli varðandi
blóðgjöf, við erum öll með sama
blóðið, bara mismunandi flokka.“
Sjálfur segir Hákon að hon-
um finnist fráleitt að hann megi
ekki gefa blóð á Íslandi: „Ég er al-
veg jafn heilbrigður og hver ann-
ar Íslendingur og að það eina sem
stoppi mig í að vera „gæðablóð“,
eins og blóðgjafar Blóðbankans
eru kallaðir, er að ég sé samkyn-
hneigður. Þessu þarf að breyta
strax.“
Réttur samkynhneigðra til
að gefa blóð hefur margoft ver-
ið ræddur á Alþingi undanfarin
ár. Hildur Sverrisdóttir, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins og
aðstoðarmaður nýsköpunarráð-
herra, spurði þáverandi heil-
brigðisráðherra, Óttar Proppé,
árið 2017 hvort ráðherra hygðist
beita sér fyrir því að þessar regl-
ur yrðu rýmkaðar svo samkyn-
hneigðir karlmenn gætu notið
þeirra réttinda að gefa blóð. Ráð-
herra svaraði þremur mánuðum
síðar að honum þætti ástæða til
að skoða þessar reglur, taka mið
af því hvernig þær hefðu þróast
og hvernig breyttar og mildari
reglur hefðu reynst undanfarin
ár í öðrum löndum. Um leið væri
nauðsynlegt að tryggja áfram ör-
yggi blóðþega. Ætlaði ráðherra
að fela ráðgjafarnefnd um fagleg
málefni blóðbankaþjónustu að
skoða þetta mál. DV hafði sam-
band við Óttar Proppé og gat
hann ekki með fullri vissu svar-
að því hvort að sú vinna hafi ha-
fist innan nefndarinnar, þar sem
stjórnarslit urðu stuttu seinna.
Svipuð fyrirspurn kom einnig
frá Brynhildi Pétursdóttur, þáver-
andi þingmanni Bjartrar framtíð-
ar, árið 2015 til þáverandi heil-
briðisráðherra, Kristjáns Þórs
Júlíussonar, þegar hún spurði
ráðherra hver afstaða ráðherra
væri til þess að veita samkyn-
hneigðum körlum heimild til að
gefa blóð.
Ráðherra sagði að afstaða hans
væri að leitað yrði leiða til að
breyta gildandi regluverki svo að
samkynhneigðum karlmönnum
yrði heimilt að gefa blóð.
Svo virðist sem ekki vanti póli-
tískan vilja til að breyta þessari
reglu og á síðasta landsþingi
Sjálfstæðismanna í mars var sam-
þykkt landsfundarályktun þar
sem Sjálfstæðisflokkurinn vilji að
blóðgjafar séu metnir á grund-
velli heilsufars óháð kynhneigð.
Ekki náðist í Svandísi Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra við
vinnslu fréttarinnar. n
Hákon fær að gefa blóð
á Ítalíu en ekki á Íslandi
n „Við erum öll með sama blóðið“ n Sjálfstæðismenn vilja breytingar
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Hákon Hildibrand
og Hafsteinn
Hafsteinsson,
unnusti hans.