Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Side 18
18 bleikt 4. maí 2018
Sigga Dögg um kynlíf með vélmennum:
U
ndanfarið hafa reglulega
birst fréttir um að háþróuð
kynlífsvélmenni séu hand-
an við hornið og að slíkar
vélar gætu hreinlega leyst maka af
holdi og blóði af hólmi. Þannig lýsti
stærðfræðiprófessor við Harvard-
háskóla því yfir á dögunum að þess
væri ekki langt að bíða þar til kyn-
lífsvélmenni, myndu taka yfir hlut-
verk karlmanna milli lakanna. Slík
vélmenni eru til í dag en markað-
urinn er lítill enda er tæknin enn
frekar ófullkomin. Bylting gæti átt
sér stað ef vélmennin verða gædd
gervigreind eins og virðist vera í
þróun. Hvað sem verður þá tek-
ur þessi tækni stöðugum framför-
um og samhliða því kvikna margar
siðferðislegar spurningar. Kyn-
fræðingurinn Sigga Dögg hefur
kynnt sér þennan heim vélræns
losta og fór yfir helstu atriði með
blaðmanni Bleikt.
„Fyrir það fyrsta þá eru kynlífs-
vélmenni ekki eitthvað nýtt. Þessi
tækni er fyrir löngu komið á mark-
að en vissulega frekar frumstæð
fyrst um sinn. Þróunin hefur verið
ör undanfarið og það sem er nýj-
ast núna er þessi gervigreind og
hversu tæknileg vélmennin eru
orðin,“ segir Sigga Dögg í samtali
við blaðamann.
Fólk lítur ekki á þetta sem
hvert annað eldhústæki
„Það er til heimildarmynd þar
sem tekið er viðtal við fólk sem
býr með vélmennum og upp-
lifa þau sem makann sinn en það
eru náttúrlega ekki vélmenni með
gervigreind, það er verið að þróa
þau núna. Mér finnst svo fyndið
þegar fólk segir að þetta sé ekk-
ert frábrugðið því að eiga önn-
ur kynlífstæki eins og til dæm-
is titrara, því þeir eru yfirleitt ekki
persónugerðir. Það er annað með
þessar dúkkur, þá er yfirleitt allt
valið á þær frá a–ö. Þú getur val-
ið á þær neglur, augnhár, háralit-
inn og jafnvel augnlok. Þú ert að
búa til persónu í þínum huga og
svo eru notuð rökin að þetta geti
læknað einmanaleika. Sumir sem
eiga svona vélmenni tala um það
að þeir séu ekki einmana lengur
af því að þeir eiga svona dúkku. Þá
erum við náttúruega að sjá að fólk
lítur ekki á þetta sem hvert annað
eldhústæki. Maður réttir ekki ein-
hverjum sleif og segir að hann geti
nú hætt að vera einmana. Þannig
að við erum í raun sjálf að blörra
línuna.“
Sigga Dögg segir að fólk í sam-
búð þurfi að setja sína eigin skil-
greiningu á hvort það líti á kynlíf
með vélmenni sem framhjáhald
eða einfaldlega kynlífstæki.
Klæddar upp og spjallað við þær
„Það var viðtal við einn mann sem
átti svona dúkkur, svo eignaðist
hann kærustu og hún sagði að
henni væri meinilla við þetta og
fyndist þetta mjög skrítið. Hann
væri að klæða þær upp, horfa með
þeim á sjónvarpið og að spjalla
við þær eins og þær væru bara
hver önnur manneskja. Þetta er
alveg lína sem fólk þarf að setja
niður. Þetta er risastórt, fólk er að
drösla heim til sín alveg 50 kílóa
160 sentimetra flykki.
Sigga segir að stærsti kaup-
endahópurinn í dag
séu karlmenn, bæði af
karlvélmennum sem
og kvenvélmennum.
„Mig minnir að
það séu framleidd-
ar 9 kvendúkkur á
móti hverri einni karl-
dúkku.“
Aðspurð hvað henni
sjálfri finnist um þá
staðreynd að hægt sé
að láta útbúa vélmenni
sem líkist annarri
manneskju segir Sigga
að víkka þurfi um-
ræðuna.
„Það er löngu komið
á markaðinn að þú get-
ir keypt mót af frægum
klámleikurum. Bæði píku, rass-
gat, typpi og jafnvel brjóst. Ég veit
ekki hvort þú getir pantað dúkku
sem lítur út alveg eins og Angelina
Jolie í dag en mér finnst við alveg
vera á leiðinni þangað. Þá er þetta
einmitt spurningin hvort við höf-
um einhver lög sem ná yfir þetta,
hver er réttur okkar sem einstak-
linga? Mér sjálfri finnst þetta sið-
ferðislega tæpt, ég hef ekki áhuga
á því að einhver panti dúkku sem
lítur út alveg eins og ég og að við-
komandi geti gert við hana hvað
sem hann vill.“
Vélmennin verða enn persónulegri
Sigga segir mikið hafa verið fjallað
um svipuð málefni í bíómyndum
og þáttum upp á síðkastið.
„Maður veltir líka fyrir sér
spurningunni hversu auðvelt fólk
á með að greina raunveruleikann
frá fantasíunni þegar þetta er kom-
ið upp í hendurnar á þeim. Ég tala
nú ekki um gervigreindina, eins
og við erum að sjá núna til dæm-
is í þáttunum Black Mirror á
Netflix og bíómyndina HER
en þau útfærðu þetta nokk-
uð vel en þar gastu hlaðið
inn allskyns og þá mun vera
hægt að persónugera vél-
mennin enn frekar. Við sjá-
um að þróun gervigreind-
ar er í þessa átt, hún á að
læra inn á okkur og þetta
er tölva. Það er ekki ólíklegt
að þróunin verði þannig að
hægt verði að hlaða upp-
lýsingum um fólk í vél-
mennin, það væri hægt að
ná í röddina mína og hala
niður öllum opinberum gögnum
um mig. Er þá það eina sem að-
skilur mig og dúkkuna hjartsláttur
og svokölluð sál? Þetta er svaka-
legt, ég er búin að halda nokkra
fyrirlestra um þetta og fólk bara
gapir.“
Sigga Dögg á erfitt með að geta
sagt til um það hvort kynlíf með
vélmennum sé eðlileg þróun en
tekur hún þó fram að á allri tækni-
þróun sé möguleg skuggahlið.
„Ég held ekki að þetta dragi úr
ofbeldi. Það var einu sinni þannig
að í meðferð við reiði þá var mælt
með því að til þess að fá útrás að
þá ætti að kýla í kodda. En sú að-
ferð hefur verið afsönnuð og hún
virkar ekki til þess að fá útrás fyrir
árásargirni. Þannig að ég hef enga
trú á því að þetta muni minnka of-
beldi á konum né leysa vændi af.
Þetta er allt annað.“
Ekki risastór rúnkmúffa
Sigga Dögg segir að þeir einstak-
lingar sem stunda reglulega kyn-
líf með vélmennum og hafa kom-
ið opinberlega fram tali ekki um
sjálfsfróun heldur að þeir séu að
njóta ásta.
„Þeir segja að þeir séu að
njóta ásta með dúkkunum og
að þetta sé þeirra maki og fé-
lagi. Þeir tala ekki um þetta
sem risastóra rúnkmúffu. Það
er mikilvægt að þetta sé rann-
sakað miklu meira og dýpra, það
eru ekki margir í dag sem eru að
rannsaka þetta en þeir sem eru
að því eru að opna á ótrúlega
áhugaverðar siðferðilegar spurn-
ingar.“
Samkvæmt Siggu eru fram-
leidd kynlífsvélmenni í Japan
sem líta út eins og börn en Sigga
telur það algjörlega hvort sinn
hlutinn.
„Þetta er eitthvað sem þarf
að skoða mjög vel, Kanada er til
dæmis búið að setja reglur um
að barnakynlífsvélmenni séu
bönnuð. Ég veit ekki til þess að við
á Íslandi séum búin að marka okk-
ur slíka stefnu en þetta er algjör-
lega hvort sinn hluturinn. Það er
ekki hægt að setja barn og kynlíf
í sömu setninguna og kynlíf full-
orðinna, það er ekkert til sem heit-
ir kynlíf barns og fullorðins, það er
bara ofbeldi. Það eru einhverjir
fræðimenn sem hafa velt því fyrir
sér hvort þetta muni hjálpa þeim
sem hafa barnagirnd en ég er ekki
viss um það. Fólk persónuger-
ir hluti, þetta er í okkur. Við sjá-
um til dæmis bara Tom Hanks
í Castaway, hann persónuger-
ir bolta. Þannig að ég held að við
séum á mjög grárri línu.“
Sigga Dögg segist vilja sjá
tæknifyrirtæki á Íslandi halda
málþing um tækni, siðferði og
kynlíf.
„Bretar, Bandaríkjamenn og
Danir eru búnir að halda ráð-
stefnu og málþing um þessa hluti
og ég myndi vilja sjá það hér á Ís-
landi. n
„Erum í raun sjálf
að blörra línuna“
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is
„Ég hef ekki
áhuga á því
að einhver panti
dúkku sem lítur út
alveg eins og ég