Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 18
18 bleikt 4. maí 2018 Sigga Dögg um kynlíf með vélmennum: U ndanfarið hafa reglulega birst fréttir um að háþróuð kynlífsvélmenni séu hand- an við hornið og að slíkar vélar gætu hreinlega leyst maka af holdi og blóði af hólmi. Þannig lýsti stærðfræðiprófessor við Harvard- háskóla því yfir á dögunum að þess væri ekki langt að bíða þar til kyn- lífsvélmenni, myndu taka yfir hlut- verk karlmanna milli lakanna. Slík vélmenni eru til í dag en markað- urinn er lítill enda er tæknin enn frekar ófullkomin. Bylting gæti átt sér stað ef vélmennin verða gædd gervigreind eins og virðist vera í þróun. Hvað sem verður þá tek- ur þessi tækni stöðugum framför- um og samhliða því kvikna margar siðferðislegar spurningar. Kyn- fræðingurinn Sigga Dögg hefur kynnt sér þennan heim vélræns losta og fór yfir helstu atriði með blaðmanni Bleikt. „Fyrir það fyrsta þá eru kynlífs- vélmenni ekki eitthvað nýtt. Þessi tækni er fyrir löngu komið á mark- að en vissulega frekar frumstæð fyrst um sinn. Þróunin hefur verið ör undanfarið og það sem er nýj- ast núna er þessi gervigreind og hversu tæknileg vélmennin eru orðin,“ segir Sigga Dögg í samtali við blaðamann. Fólk lítur ekki á þetta sem hvert annað eldhústæki „Það er til heimildarmynd þar sem tekið er viðtal við fólk sem býr með vélmennum og upp- lifa þau sem makann sinn en það eru náttúrlega ekki vélmenni með gervigreind, það er verið að þróa þau núna. Mér finnst svo fyndið þegar fólk segir að þetta sé ekk- ert frábrugðið því að eiga önn- ur kynlífstæki eins og til dæm- is titrara, því þeir eru yfirleitt ekki persónugerðir. Það er annað með þessar dúkkur, þá er yfirleitt allt valið á þær frá a–ö. Þú getur val- ið á þær neglur, augnhár, háralit- inn og jafnvel augnlok. Þú ert að búa til persónu í þínum huga og svo eru notuð rökin að þetta geti læknað einmanaleika. Sumir sem eiga svona vélmenni tala um það að þeir séu ekki einmana lengur af því að þeir eiga svona dúkku. Þá erum við náttúruega að sjá að fólk lítur ekki á þetta sem hvert annað eldhústæki. Maður réttir ekki ein- hverjum sleif og segir að hann geti nú hætt að vera einmana. Þannig að við erum í raun sjálf að blörra línuna.“ Sigga Dögg segir að fólk í sam- búð þurfi að setja sína eigin skil- greiningu á hvort það líti á kynlíf með vélmenni sem framhjáhald eða einfaldlega kynlífstæki. Klæddar upp og spjallað við þær „Það var viðtal við einn mann sem átti svona dúkkur, svo eignaðist hann kærustu og hún sagði að henni væri meinilla við þetta og fyndist þetta mjög skrítið. Hann væri að klæða þær upp, horfa með þeim á sjónvarpið og að spjalla við þær eins og þær væru bara hver önnur manneskja. Þetta er alveg lína sem fólk þarf að setja niður. Þetta er risastórt, fólk er að drösla heim til sín alveg 50 kílóa 160 sentimetra flykki. Sigga segir að stærsti kaup- endahópurinn í dag séu karlmenn, bæði af karlvélmennum sem og kvenvélmennum. „Mig minnir að það séu framleidd- ar 9 kvendúkkur á móti hverri einni karl- dúkku.“ Aðspurð hvað henni sjálfri finnist um þá staðreynd að hægt sé að láta útbúa vélmenni sem líkist annarri manneskju segir Sigga að víkka þurfi um- ræðuna. „Það er löngu komið á markaðinn að þú get- ir keypt mót af frægum klámleikurum. Bæði píku, rass- gat, typpi og jafnvel brjóst. Ég veit ekki hvort þú getir pantað dúkku sem lítur út alveg eins og Angelina Jolie í dag en mér finnst við alveg vera á leiðinni þangað. Þá er þetta einmitt spurningin hvort við höf- um einhver lög sem ná yfir þetta, hver er réttur okkar sem einstak- linga? Mér sjálfri finnst þetta sið- ferðislega tæpt, ég hef ekki áhuga á því að einhver panti dúkku sem lítur út alveg eins og ég og að við- komandi geti gert við hana hvað sem hann vill.“ Vélmennin verða enn persónulegri Sigga segir mikið hafa verið fjallað um svipuð málefni í bíómyndum og þáttum upp á síðkastið. „Maður veltir líka fyrir sér spurningunni hversu auðvelt fólk á með að greina raunveruleikann frá fantasíunni þegar þetta er kom- ið upp í hendurnar á þeim. Ég tala nú ekki um gervigreindina, eins og við erum að sjá núna til dæm- is í þáttunum Black Mirror á Netflix og bíómyndina HER en þau útfærðu þetta nokk- uð vel en þar gastu hlaðið inn allskyns og þá mun vera hægt að persónugera vél- mennin enn frekar. Við sjá- um að þróun gervigreind- ar er í þessa átt, hún á að læra inn á okkur og þetta er tölva. Það er ekki ólíklegt að þróunin verði þannig að hægt verði að hlaða upp- lýsingum um fólk í vél- mennin, það væri hægt að ná í röddina mína og hala niður öllum opinberum gögnum um mig. Er þá það eina sem að- skilur mig og dúkkuna hjartsláttur og svokölluð sál? Þetta er svaka- legt, ég er búin að halda nokkra fyrirlestra um þetta og fólk bara gapir.“ Sigga Dögg á erfitt með að geta sagt til um það hvort kynlíf með vélmennum sé eðlileg þróun en tekur hún þó fram að á allri tækni- þróun sé möguleg skuggahlið. „Ég held ekki að þetta dragi úr ofbeldi. Það var einu sinni þannig að í meðferð við reiði þá var mælt með því að til þess að fá útrás að þá ætti að kýla í kodda. En sú að- ferð hefur verið afsönnuð og hún virkar ekki til þess að fá útrás fyrir árásargirni. Þannig að ég hef enga trú á því að þetta muni minnka of- beldi á konum né leysa vændi af. Þetta er allt annað.“ Ekki risastór rúnkmúffa Sigga Dögg segir að þeir einstak- lingar sem stunda reglulega kyn- líf með vélmennum og hafa kom- ið opinberlega fram tali ekki um sjálfsfróun heldur að þeir séu að njóta ásta. „Þeir segja að þeir séu að njóta ásta með dúkkunum og að þetta sé þeirra maki og fé- lagi. Þeir tala ekki um þetta sem risastóra rúnkmúffu. Það er mikilvægt að þetta sé rann- sakað miklu meira og dýpra, það eru ekki margir í dag sem eru að rannsaka þetta en þeir sem eru að því eru að opna á ótrúlega áhugaverðar siðferðilegar spurn- ingar.“ Samkvæmt Siggu eru fram- leidd kynlífsvélmenni í Japan sem líta út eins og börn en Sigga telur það algjörlega hvort sinn hlutinn. „Þetta er eitthvað sem þarf að skoða mjög vel, Kanada er til dæmis búið að setja reglur um að barnakynlífsvélmenni séu bönnuð. Ég veit ekki til þess að við á Íslandi séum búin að marka okk- ur slíka stefnu en þetta er algjör- lega hvort sinn hluturinn. Það er ekki hægt að setja barn og kynlíf í sömu setninguna og kynlíf full- orðinna, það er ekkert til sem heit- ir kynlíf barns og fullorðins, það er bara ofbeldi. Það eru einhverjir fræðimenn sem hafa velt því fyrir sér hvort þetta muni hjálpa þeim sem hafa barnagirnd en ég er ekki viss um það. Fólk persónuger- ir hluti, þetta er í okkur. Við sjá- um til dæmis bara Tom Hanks í Castaway, hann persónuger- ir bolta. Þannig að ég held að við séum á mjög grárri línu.“ Sigga Dögg segist vilja sjá tæknifyrirtæki á Íslandi halda málþing um tækni, siðferði og kynlíf. „Bretar, Bandaríkjamenn og Danir eru búnir að halda ráð- stefnu og málþing um þessa hluti og ég myndi vilja sjá það hér á Ís- landi. n „Erum í raun sjálf að blörra línuna“ Aníta Estíva Harðardóttir anita@pressan.is „Ég hef ekki áhuga á því að einhver panti dúkku sem lítur út alveg eins og ég
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.