Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Síða 19
bleikt 194. maí 2018 E llefu mánuðir eru liðnir síðan Ester Eva Gunnars- dóttir lést langt fyrir aldur fram eftir að hafa greinst með magakrabbamein á fjórða stigi. Einungis þremur mánuð- um eftir sviplegt andlát Ester- ar, lést Gunnar Gunnarsson fað- ir hennar úr hjartaáfalli. Óhætt er að segja að ástvinir feðgin- anna hafi setið eftir í sárum eft- ir þessi stóru áföll. Á dögunum birti Sara Dís, dóttir Gunnars og systir Esterar, hjartnæmt mynd- band af brúðkaupi systur sinn- ar skömmu fyrir andlát hennar. Þar átti hún yndislega stund með föður sínum, systur og öðrum nánum aðstandendum. Í samtali við DV segist hún reyna að líta líf- ið jákvæðum augum en hún hafi verið lengi að átta sig á fráfalli feðginanna. Hélt að pabbi sinn væri í vinnunni „Ég var svolítið lengi að átta mig á þessu fyrst og er eiginlega bara nýbúin að því. Það er næstum því ár síðan Ester dó og hálft ár síð- an pabbi kvaddi. Í tilfelli Esterar þá var smá aðdragandi að and- láti hennar. Hún veiktist í janú- ar og dó síðan í júní. Við pabbi fórum út til hennar í maí og vor- um alveg hjá henni síðustu þrjár vikurnar. Það var enginn aðdrag- andi í tilfelli pabba. Hann fékk skyndilegt hjartaáfall og dó strax. Ég áttaði mig einhvern veginn ekki alveg á því, ég hélt bara að hann væri í vinnunni.“ Sara segist hafa átt um sárt að binda í upphafi en að hún hafi fengið mikla hjálp frá fjölskyldu og ættingjum til þess að komast yfir mestu sorgina. „Ég er búin að tala við prest sem sérhæfir sig í sorgarferli fyr- ir ungt fólk og hann er búinn að hjálpa mér mjög mikið. Ester og pabbi voru bæði ótrúlega jákvæð og horfðu alltaf bjartsýnum aug- um fram á veginn. Ég reyni því að tileinka mér þessa jákvæðni þeirra. Það má segja að ég sé að reyna að gera það í minn- ingu þeirra af því að ég veit að ef ég geri það, þá eru þau ánægð. Ég held að þetta geri manni gott því enginn veit hvað gerist á morgun.“ Á afmælisdegi föður Söru þann 2. maí síðast- liðinn ákvað Sara að setja inn hjartnæmt myndband úr brúðkaupi Esterar sem haldið var á spítalanum einungis þremur dögum áður en hún lést. Þá var ljóst í hvað stefndi en Est- er og barnsfaðir hennar, Spencer, ákváðu að gifta sig áður en hinsta stund hennar rann upp. „Það voru allir á deildinni sem hjálpuðu okkur að gera brúðkaup- ið eins flott og eftirminni- legt og hægt var. Starfs- fólkið reddaði köku og kampavíni og þau tóku allt út úr einni stof- unni til þess að setja upp borð og myndir af brúðhjónunum. Við vissum ekkert af því að þau væru að gera þetta til þess að hjálpa þeim og þau komu okkur á óvart. Þetta var allt svo ótrú- lega fallegt. Það þekktu hana líka allir á deildinni, hún var alltaf svo góð við alla og þetta var virkilega erfitt fyrir alla sem voru viðstaddir.“ Getur ekki beðið eftir að hitta þau aftur Við að rifja upp minningarn- ar segist Sara vilja óska þess að hún gæti varið afmælisdegin- um með föður sínum en hún huggi sig við þá tilhugsun að systir hennar sjái um að gera daginn góðan fyrir hann. „Hver dagur án þeirra er svo tómlegur og ég get ekki beðið eftir að hitta þau aftur hinum megin. Ég hef ekki treyst mér í það að deila þessu persónulega myndbandi með almenningi en í tilefni dagsins ákvað ég að sýna það af því að þessi dagur var svo merkilegur, bæði fyrir pabba og fyrir systur mína. Í þessu mynd- bandi sést hvað lífið getur verið ósanngjarnt en fallegt á sama tíma og ég vona að það láti alla hugsa hversu dýrmætt lífið er.“ Ester skildi eftir sig eiginmann- inn Spencer og synina tvo, Óðin Alexander og Viktor Þór, sem voru einungis þriggja ára og níu mánaða þegar móðir þeirra lést. n Stofnaður var styrktarreikningur í nafni föðursystur Esterar en hún heitir Svanhildur Gunnarsdóttir. Reikningurinn verður notaður sem skólastyrkur fyrir drengina hennar þegar þeir verða eldri. Kennitala: 271152-5749 Reikningur: 0142-05-570531 EstEr lést 3 dögum Eftir brúðkaup sitt „Í þessu myndbandi sést hvað lífið getur verið ósanngjarnt en fallegt á sama tíma“ Aníta Estíva Harðardóttir anita@pressan.is Sara með föður sínum. Feðgin Söru Dís þykir afar vænt um minningarnar úr brúðkaupinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.