Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 24
24 sport 4. maí 2018
Þ
að var frábært að byrja
tímabilið svona, á tveim-
ur mörkum og góðum
sigri. Það er bara frábært,“
sagði Sveinn Aron Guðjohnsen,
tvítugur framherji Breiðabliks
þegar blaðamaður settist nið-
ur með honum á Kópavogsvelli í
vikunni. Hann skoraði tvö mörk
í sigri Blika á ÍBV í fyrstu umferð
Pepsi-deildarinnar. Stundum
hefur hann verið þekktari fyrir að
vera sonur Eiðs Smára Guðjohn-
sen, slíkt tal á ekki við lengur,
hann er auðvitað sonur hans
en hann er nú að skapa sitt eig-
ið nafn í íslenskum knattspyrnu-
heimi, hann fer áfram á eigin
verðleikum og allt tal um föður
hans og afrek hans eru óþarfi,
með hæfileiks Sveins eru honum
allir vegir færir.
Sveinn ólst upp erlendis, fyrst í
London og síðan í Barcelona með
stuttu stoppi í Grikklandi. Hann
ákvað að flytja heim til Íslands
17 ára gamall, hér eru vinirnir og
hér virðist honum líða best. Hann
gekk í raðir Breiðabliks síðasta
sumar eftir fá tækifæri hjá Val.
„Það var frábært að fá traustið í
fyrsta leik, ég var talsvert á bekkn-
um á undirbúningstímabilinu en
var samt alveg að skora. Ég kom
með sjálfstraust inn í mótið,
geggjað að fá traustið frá þjálfar-
anum og liðinu. Þetta fyrsta heila
undirbúningstímabil með Blik-
unum var mjög fínt, það er geggj-
að að vera inni í Fífu yfir veturinn.
Frábær aðstaða hérna, mér líður
mjög vel í Breiðabliki. Ég er mjög
ánægður hérna, mjög ánægð-
ur með þennan hóp hérna. Þetta
eru mjög skemmtilegir strák-
ar, mjög gaman að spila fótbolta
með þeim. Ég tel alveg að við get-
um gert eitthvað í sumar, það eru
mikil gæði í þessu liði. Við höfum
allir trú á hver öðrum, við spilum
ekki fyrir okkur sjálfa, við spilum
fyrir hver annan og höfum gaman
af því að spila saman. Það er gott,
ég hef mikla trú á því að við get-
um gert eitthvað.“
Hefur lært að spila sem framherji
Við byrjum á að ræða um hvar
Sveini líður best innan vallar,
hann hefur oftar en ekki spilað
sem kantmaður en í dag horf-
ir hann á sig sem framherja og á
því eru Ágúst Gylfason og Guð-
mundur Steinarsson, þjálfarar
Breiðabliks. ,,Ég veit ekki alveg af
hverju ég fór að horfa á mig sem
framherja, á tímabili leið mér
betur á hægri kantinum. Þar sem
ég fékk ekki mann í bakið, held-
ur fékk að snúa og keyra á menn.
Síðan fór ég að læra að fá boltann
með mann í bakið, sem Gústi
Gylfa og Gummi Steinars hafa
hjálpað mér mjög mikið með. Þá
fór mér að líða bara betur sem
fremsti maður, þetta er allt ann-
að en að vera úti á kanti. Mað-
ur er alltaf fyrir framan mark-
ið, það er geggjað. Það voru ekki
bara mörkin í þessum fyrsta leik
sem ég var ánægður með, líka
bara hvernig ég var að fá bolt-
ann í lappir og koma honum frá
mér. Ég var mjög ánægður með
frammistöðuna hjá okkur öllum í
þessum fyrsta leik.“
Ólst upp í stærsta félagi í heimi
Átta ára gamall fluttist Sveinn
til Barcelona og fékk þá samn-
ing hjá Barcelona, þar eru ungir
leikmenn teknir inn og eftir hvert
tímabil er staðan skoðuð. Margir
eru látnir fara og nýir leikmenn
eru teknir inn. Barcelona er eitt
allra stærsta knattspyrnufélag
í heimi. „Það var náttúrlega al-
veg frábært, ég áttaði mig ekki á
því hversu stórt þetta væri þegar
ég var í Barcelona. Mér fannst
þetta bara eins og ég væri að leika
mér í fótbolta, mér leið alveg eins
þarna og þegar ég var að koma
heim á sumrin og æfa með HK.
Mér fannst þetta svipað, ég átt-
aði mig ekki á því hvað þetta var
stórt, sem var bara kannski betra.
Ég var það ungur, það var ekki
fyrr en að ég fór þaðan að ég átt-
aði mig á því hvað þetta var allt
stórt og í raun afrek að komast
þarna inn,“ sagði Sveinn og sjá
má að hann horfir á þennan tíma
sem frábærar minningar. Þegar
hann hélt síðan heim til Íslands
á sumrin lék hann alltaf með HK.
Hver var ástæðan fyrir því?
„Ég bjó í Álfatúni sem er hjá
Fagralundi, ég fór bara þang-
að því það var næst mér. Ég valdi
ekkert að fara í HK, þetta var bara
einfaldast. Ég fór þangað og eign-
aðist vini, sem varð til þess að ég
var alltaf í HK bara þegar ég var
heima. Maður var alltaf hrikalega
spenntur að komast heim, hitta
strákana og fara á þessi mót bæði
í Eyjum og á Akureyri.“
„Áttaði
mig ekki
á því hvað
það var stórt
að vera í Barcelona“
n Sveinn Aron Guðjohnsen byrjar sumarið frábærlega n Hefur lifað við pressu frá unga aldri
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is „Ég hef aldrei pælt
neitt í því að það
sé einhver pressa sem
fylgir Guðjohnsen-nafn-
inu en ég get alveg skilið
þegar fólk býst við miklu.
„Ég tók því alveg
ágætlega, ég var
ekkert uppi í rúmi að
grenja í marga daga