Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 28
28 fólk - viðtal 4. maí 2018 frá ofbeldi framleiðandans Har- vey Weinstein og annarra manna. Þá bauð aðstoðarmaður borgar- stjórans í Stokkhólmi henni inn í sænskan #metoo-hóp og hún sá að þær ætluðu að gera sínar sög- ur opinberar. Hún vissi hvern- ig landið lá á Íslandi og einnig að margir gerðu sér ekki grein fyrir hversu útbreidd mismununin og ofbeldið var. Því ákvað Heiða einn föstu- daginn að stofna hóp fyrir ís- lenskar stjórnmálakonur, sem hún segir hafa verið mikla áhættu en viðbrögðin komu henni mjög á óvart. „Þetta var eins og flóðbylgja. Konurnar og sögurnar hrúguð- ust inn í hópinn, hundruð tals- ins, úr öllum flokkum, frá hægri til vinstri, ungar og gamlar, og á þriðjudeginum vorum við komn- ar í Kastljós. Það var mjög mikill órói í samfélaginu og ég fann að sumir kollegar mínir urðu óróleg- ir. Ég þekki karla sem hafa hluti á samviskunni og margir lásu allar sögurnar til að leita að sér.“ Heiða er augljóslega snortin þegar hún lýsir traustinu sem hún fékk en hún sá um að taka við sögunum og taka persónugrein- anlegar upplýsingar úr þeim fyrir birtingu. „Trúnaðurinn og traustið sem ég fékk frá konum úr öðr- um flokkum fannst mér sérstak- lega aðdáunarverður. Þarna ríkti algjör samstaða. En ég sá líka margar sögur, kannski frá ólík- um tímum og landshlutum, sem voru nákvæmlega eins. Þarna er ákveðið mynstur sem skapast og ekki endilega auðvelt að breyta því. Við vissum að við vorum að taka áhættu og því hittumst við nokkrar konur úr ólíkum flokkum og ræddum saman fyrir þennan Kastljósþátt. Við vissum alveg að framtakið var ekki líklegt til að afla okkur vinsælda innan flokkanna.“ Heiða segir að það hefði ver- ið hægt að nafngreina karl- ana í sögunum en þá hefði um- ræðan hvarfast um þá og þeirra mál. Birtingin hefði litið út sem persónuleg árás á þá menn. En byltingin var gerð til þess að opna umræðuna og breyta hugsunar- hætti fólks almennt. „Ég veit hins vegar að ákveðn- ir menn hafa misst sinn sess inn- an flokka vegna sagnanna og oft voru ólíkar konur að tala um sama mann. Sögurnar voru auð- vitað misalvarlegar og sumir hafa gagnrýnt framtakið fyrir að blanda þessu öllu saman. En sögurnar eru allar alvarlegar og þær sýna hvernig valdastrúktúrinn er í sam- félaginu. Þetta er allt birtingar- mynd af sama vandamáli, það er að sumir telja sig hafa völd yfir öðru fólki og beita þessum með- ulum til þess. Mismunun, áreitni og ofbeldi. Valdamiklir karlar hafa alltaf haft rétt yfir konum öld- um saman og því þarf að breyta. Vissulega eru til dæmi um hið gagnstæða en þau tilvik eru í mikl- um minnihluta.“ Hræðilegar sögur heimilisofbeldis Eftir að stjórnmálakonurnar stigu fram fylgdu listakonur, síðan pró- fessorar, dómarar, prestar og fleiri stéttir. En raddir verkakvenna heyrðust ekki. Þessu vildi Heiða og samstarfskonur hennar breyta og því hefur orkan undanfarna mánuði farið í að aðstoða þær. Í dag eru hóparnir orðnir 33 tals- ins en Heiða segir að sumar kon- ur, til dæmis í viðskiptalífinu, hafi ekki enn treyst sér til að segja sín- ar sögur. Heiðu er mikið niðri fyrir þegar hún segir: „Nú er ég að skila af mér hópi sem fjallar um heimilis- og fjöl- skylduofbeldi og þetta er búið að vera mjög þungt og erfitt. Þegar ég var byrjuð hugsaði ég að kannski þyrfti einhver sem væri sér- menntaður í þessum málum að taka við þessu. Margar af þessum sögum eru svo hræðilegar og þetta getur endað mjög illa. Konur eru í langmestri hættu heima hjá sér.“ Hefur þú sjálf orðið fyrir of- beldi? „Já, en ég hef enga þörf fyrir að ræða mín mál en ég hef unnið úr því og notað kraftinn til að standa með þolendum ofbeldis því að ég veit að það er ofboðslega erfitt að komast yfir þetta. En það er hægt og að tala um það er fyrsta skrefið.“ Heiða heldur áfram og segir: „Við þurfum að fræða fólk um þetta og koma vitneskjunni inn í skólana. Margt sem unglingar eru að horfa á í dag, til dæmis í myndböndum og klámmyndum, er ekkert annað en hreinræktað kynferðisofbeldi en þeir halda að þetta sé eðlilegt. Lögreglan hefur til dæmis sagt að strákar sem hafa verið handtekn- ir fyrir að nauðga ungum stelpum virðast ekki gera sér grein fyrir því að þeir hafi framið glæp.“ Hverju hefur #metoo-byltingin skilað? „Hún hefur skilað miklu nú þegar. Fólk er meðvitaðra um vandamálið, lögum hefur ver- ið breytt og ýmsar sam- þykktir og aðgerðir í borginni farið í gegn. En þetta er algjör- lega í okkar höndum og við verð- um að sjá til hvort alvöru breytingar verði á samfélaginu.“ Sumum hefur sárnað að allir karlar séu settir undir sama hatt og gerðir ábyrgir. Hvað segir þú við því? „Allt samfélagið er ábyrgt. Það er enginn að segja að karlar séu vond- ir og konur góðar. Það eru til kon- ur sem eru stækustu varðhundar feðraveldisins og öflugir femínistar sem eru karlar. Í þessu samfélagi hafa karlar aftur á móti völd yfir konum. Þessu verðum við að breyta og flestir karlar eru sammála því. #metoo er áskorun kvenna til karla um að breyta samfélaginu því við gerum það ekki einar.“ Stríð við Karlalistann Allt stefnir í að framboð til borg- arstjórnar verði sautján talsins og eitt þeirra virðist sprottið af reiði í garð Heiðu Bjargar og Höllu Gunnarsdóttur, ráðgjafa Katrín- ar Jakobsdóttur forsætisráðherra, vegna ummæla inni í lokuðum Facebook-hóp um forsvarsmenn svokallaðra feðrahreyfinga sem berjast fyrir réttindum umgengnisforeldra. Karlalistinn heitir fram- boðið og Gunnar Krist- inn Þórðarson stjórn- sýslufræðingur fer þar fremstur í flokki og hann hefur deilt hart á Heiðu. Hún virðist gáttuð þegar framboðið ber á góma. „Ég skil ekki hvern- ig þetta framboð varð til og finnst það sorglegt að karl- ar fari í slíka vörn fyrir réttindi feðra að þeir þurfa að ráðast á konur og rægja nafngreindar kon- ur hvar sem þeir kona. Það hef- ur aldrei verið skortur á karl- mönnum og karlkyns viðhorfum í pólitík. Konur hafa aldrei ver- ið í meirihluta á Alþingi og í póli- tík, aldrei. Þeir halda ábyggilega að þeir fái einhverja athygli út á þessa þráhyggju af mér og Höllu. Þeir hafa kallað það aðför að feðrahreyfingum að ég hafi sett „like“ við einhver ummæli í lok- uðum hópi en mér finnst það ansi langt seilst.“ Heiða segist hafa fulla sam- úð með umgengnisforeldrum og þeim sem verða fyrir tálmunum en fráleitt að fólk geti notað þetta sem vopn gegn femínistum. Þetta séu tveir algjörlega ólíkir hlutir. „Börn eiga að sjálfsögðu rétt á að þekkja foreldra sína en ef að barnið er í hættu þá verð- um við að horfa á hlutina út frá réttindum þess og ég trúi þolendum þegar þeir segja frá. Femínisminn gengur út frá að jafna rétt kynjanna, líka inni á heimilunum og það á við eftir skilnað líka. Ég hefði haldið að við og forsvarsmenn um- gengnisforeldra vær- um bandamenn í þessari baráttu og nær væri að beina kröftum okkar fyrst og fremst í að koma í veg fyrir hvers kyns ofbeldi gegn börnum.“n „Ég veit hins vegar að ákveðnir menn hafa misst sinn sess innan flokka vegna sagnanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.