Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Side 34
Grillsumarið 4. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Gæðastund við þjóðveginn
Dalakofinn á laugum
Dalakofinn er veitingastaður og verslun við Þjóðveg 1 í þétt-býliskjarnanum á laugum í
Þingeyjarsveit. Í Dalakofanum er opið
allan ársins hring, nokkuð sem ferða-
langar, íslenskir sem erlendir, kunna
mjög vel að meta. Í Dalakofanum er
lögð áhersla á góðan mat á sann-
gjörnu verði og góða þjónustu.
að sögn Haraldar Bóassonar
veitingamanns er Dalakofinn vinsæll
allt árið um kring en þreföldun verður
á gestafjölda á sumrin: „Erlendir
ferðamenn eru í miklum meirihluta
yfir sumartímann, 70–80 prósent, en
á veturna rétt innan við helmingur.
fólk kann vel að meta að við höfum
opið hér til 20 á kvöldin á veturna
og til 22 á sumrin,“ segir Haraldur
en Dalakofinn er óneitanlega góður
áningarstaður á ferð um landið.
„Þetta er góður staður til að
stoppa og njóta veitinga. Það er
þægileg aðkoma hér og við erum á
milli mývatnssveitar og akureyrar.
Sundlaugin á laugum og íþrótta-
völlurinn eru mjög flott og þar eru
falleg svæði sem gaman er að ganga
um og njóta náttúrunnar.“ Dalakofinn
rekur tjaldstæði við laugavöll á
sumrin.
Heimagerðir hamborgarar beint
frá býli
framúrskarandi hamborgarar eru
eitt af sérkennum Dalakofans, gerðir
úr úrvalskjöti. Hamborgararnir koma
beint frá býli, frá Vallakoti í Reykjadal.
Heimagerðar pítsur skipa veglegan
sess á matseðli Dalakofans. „Pítsurn-
ar eru heimagerðar, um helmingur af
matarsölunni. Við gerum þetta allt
frá grunni og fáum mikið hól fyrir það
en við gerum okkar pítsusósu sjálf. á
meðal annarra góðra rétta sem í boði
eru allt árið eru hamborgarar beint
frá býli, íslensk kjötsúpa og gratíner-
aður plokkfiskur. Bæði útlendingar og
Íslendingar eru afskaplega hrifnir af
því að komast í kjötsúpuna enda er
hún kraftmikið veganesti. Hráefnið í
fiskrétti og kjötrétti er að mestu leyti
úr héraði,“ segir Haraldur.
ágæt verslun með miklu vöruúrvali
er hluti af Dalakofanum sem margir
nýta sér: „fólk kann vel að meta
verslunina hjá okkur og ferðalangar
eru þakklátir fyrir að geta leitað
þangað því oft gleymist að kaupa
eitthvað áður en haldið er í ferðalag.“
Dalakofinn er klárlega staður til að
eiga notalega stund á í ferðalögum
um landið. nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni dalakofinn.is.