Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 34
Grillsumarið 4. maí 2018KYNNINGARBLAÐ Gæðastund við þjóðveginn Dalakofinn á laugum Dalakofinn er veitingastaður og verslun við Þjóðveg 1 í þétt-býliskjarnanum á laugum í Þingeyjarsveit. Í Dalakofanum er opið allan ársins hring, nokkuð sem ferða- langar, íslenskir sem erlendir, kunna mjög vel að meta. Í Dalakofanum er lögð áhersla á góðan mat á sann- gjörnu verði og góða þjónustu. að sögn Haraldar Bóassonar veitingamanns er Dalakofinn vinsæll allt árið um kring en þreföldun verður á gestafjölda á sumrin: „Erlendir ferðamenn eru í miklum meirihluta yfir sumartímann, 70–80 prósent, en á veturna rétt innan við helmingur. fólk kann vel að meta að við höfum opið hér til 20 á kvöldin á veturna og til 22 á sumrin,“ segir Haraldur en Dalakofinn er óneitanlega góður áningarstaður á ferð um landið. „Þetta er góður staður til að stoppa og njóta veitinga. Það er þægileg aðkoma hér og við erum á milli mývatnssveitar og akureyrar. Sundlaugin á laugum og íþrótta- völlurinn eru mjög flott og þar eru falleg svæði sem gaman er að ganga um og njóta náttúrunnar.“ Dalakofinn rekur tjaldstæði við laugavöll á sumrin. Heimagerðir hamborgarar beint frá býli framúrskarandi hamborgarar eru eitt af sérkennum Dalakofans, gerðir úr úrvalskjöti. Hamborgararnir koma beint frá býli, frá Vallakoti í Reykjadal. Heimagerðar pítsur skipa veglegan sess á matseðli Dalakofans. „Pítsurn- ar eru heimagerðar, um helmingur af matarsölunni. Við gerum þetta allt frá grunni og fáum mikið hól fyrir það en við gerum okkar pítsusósu sjálf. á meðal annarra góðra rétta sem í boði eru allt árið eru hamborgarar beint frá býli, íslensk kjötsúpa og gratíner- aður plokkfiskur. Bæði útlendingar og Íslendingar eru afskaplega hrifnir af því að komast í kjötsúpuna enda er hún kraftmikið veganesti. Hráefnið í fiskrétti og kjötrétti er að mestu leyti úr héraði,“ segir Haraldur. ágæt verslun með miklu vöruúrvali er hluti af Dalakofanum sem margir nýta sér: „fólk kann vel að meta verslunina hjá okkur og ferðalangar eru þakklátir fyrir að geta leitað þangað því oft gleymist að kaupa eitthvað áður en haldið er í ferðalag.“ Dalakofinn er klárlega staður til að eiga notalega stund á í ferðalögum um landið. nánari upplýsingar eru á vefsíðunni dalakofinn.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.