Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 41
fólk - viðtal 414. maí 2018 „Ég verð svo hrærður við það að lýsa þessu, því þetta sat svo rosa- lega í mér, að sjá bróður minn, fyr- irmyndina mína, sem er núna elsti bróðir minn, hvað hann grét,“ bæt- ir Sveinn við: „Mér fannst þetta svo sárt, ég gat ekki gert neitt og ég var bara barn. Ég var samt þannig barn að ég gerði mér grein fyrir því að svona væri sorgin.“ Guðfinnur settist fyrir framan son sinn og sagði: „Sveinn minn, hann Einar bróðir þinn, hann er dáinn.“ „Ég hugsaði með mér: „Ókei, dáinn … hvað þýðir það?“ Ég man að ég var svolítill kjáni, ég stend upp, lyfti hægri hönd og blessa eins og prestar gera en ég vissi aldrei að prestar gerðu þetta. Ég gaf þeim svona krossmark, báðum, tíu ára gamall og gaf bæði pabba og Sigga bróður mínum blessun og segi: „Pabbi, þegar ég verð stór ætla ég að verða prestur“ og svo labba ég út.“ Sveinn bætir við að seinna um daginn gerði hann dálítið sérstakt. En þá teiknaði hann myndir af at- burðarásinni og átti móðir hans þær teikningar í mörg ár. Þá hafði enginn greint Sveini frá því hvað hafði átt sér stað um borð. Kveðst hann ekki geta útskýrt það. „Þarna vissi ég að sorgin væri grátur, að sorgin væri hiti, blóm eða kertaljós og eitthvað sem enginn þorir að segja eða tala um. En ég settist niður og teiknaði flug- vélina sem var komin með þrjár kistur. Það létust tveir og ann- ar þeirra var talinn af. Ég teikn- aði tvær kistur, menn og rosalega margt annað sem hafði átt sér stað. Þá eiginlega áttaði mamma og pabbi sig á því að ég væri of- boðslega næmur. Mamma sagði oft hvað ég væri líkur bróður mín- um, með göngulag og vaxtarlag og ýmislegt. Það var stundum erfitt að bera það og heyra það. Ég kæmi aldrei í stað fyrir Einar, en það breyttist svo margt. Það breyttist allt.“ Breyttist mikið á heimilinu eftir bróðurmissinn? „Algjörlega. Þessi missir myndi ég segja að hafi rústað fjöl- skyldunni. Við tókumst öll hvert og eitt á við vandamál en fengum ekki hjálp við það. Mamma fékk enga hjálp.“ Sveinn Hjörtur bætir við: „Þegar ég kom í skólann eftir þetta var þögnin skerandi. Krakkarn- ir vissu ekkert hvað átti að segja, kennarinn ráðvilltur. Ég hefði get- að skilað af mér auðri blaðsíðu og fengið tíu í einkunn. Vinir mínir vissu ekki neitt hvað átti að gera og ég var bara út undan. Það lék enginn við mann, en svo hægt og rólega var farið að ræða við mann. Svo var þetta í fjölmiðlum, sem var erfitt. Þetta var alls staðar og það vissu allir hvað gerðist. Þetta var svo erfitt fyrir foreldra til að bera í svona litlu samfélagi.“ Afdrifaríkt símtal Seinna átti þessa sára reynsla eftir að nýtast Sveini í starfi. Hann vann um tíma hjá Neyðarlínunni og sér- hæfði sig í sjálfsvígsmálum. Þá sér- hæfði hann sig í áfallahjálp. Hann átti eftir að koma að öðru máli sem einnig skók íslenska þjóð. Forsíð- ufrétt Fréttablaðsins þann 1. júní árið 2004 var svohljóðandi: „Ell- efu ára stúlka stungin til bana.“ Morguninn áður hafði móðir Einars Zeppelin Hildarsonar myrt litlu systur hans og reynt að drepa hann. Einar tjáði sig í áhrifaríku viðtali við Fréttablaðið árið 2015 um harmleikinn. Sveinn Hjörtur var sá sem tók á móti símtalinu frá móður vinar Einars. „Á nokkrum mínútum varð allt dimmara og dimmara og um- fangsmeira. Frásagnir þeirra sem voru á vettvangi, að heyra í þeim lýsa tóminu í augum móðurinnar. En þennan tíma hafði ég svo mikl- ar áhyggjur af stráknum og í mörg, mörg ár. Þetta var eina málið sem virkilega sat í mér. Ég ákvað að stíga til hliðar og hugsaði með mér að þetta væri orðið of mikið. Veikindi móta skoðanir Sveinn er óvirkur alkóhólisti og hefur verið án áfengis í tæplega sex ár. Hann er fráskilinn faðir þriggja barna. Hann er mikið með börnin og birtir reglulega myndir á samskiptamiðlum af sér og börn- unum. Barátta hans við áfengi og kynni hans af öðrum sem hafa tek- ist á við sambærileg veikindi hafa mótað skoðanir hans. Þannig lagði hann mikla áherslu á það í stefnu Miðflokksins að hlúð væri að með- ferðarúrræðum og betrun fanga. „Fangar koma oft út með einn snjáðan plastpoka með eigum sín- um. Þeir hafa engin réttindi. Það er skelfileg staða. Við eigum öll að fá tækifæri í lífinu.“ Hvenær byrjaðir þú í pólitík? „Ég hef alltaf haft áhuga á póli- tík. Ég tók fyrst þátt í starfi Fram- sóknarflokksins. Þegar við fórum af stað með Miðflokkinn áttaði ég mig á því að það er miklu meira frelsi í Miðflokknum og örugglega öðrum flokkum líka til að láta gott af sér leiða.“ Þú og Sigmundur Davíð, hver eru ykkar tengsl? „Við erum góðir félagar. Sig- mundur er mjög góður maður. Ég hef aldrei heyrt hann tala illa um neinn. Hann er auðvitað umdeild- ur en er hugsuður. Mér líkar hugs- uðir.“ Af hverju ákvaðst þú að færa þig yfir í Miðflokkinn? „Mér blöskraði vinnubrögðin í Framsókn. Ég var búinn að reyna að útskýra fyrir laganefnd flokks- ins og allt hvernig vinnubrögðin væru, en flokkurinn mun aldrei lagast. Ég treysti ekki Framsóknar- flokknum með þeim formanni sem er í dag.“ Þú ákvaðst að ganga til liðs við flokk þar sem er að finna líklega tvo af umdeildustu stjórnmála- mönnum landsins, þá er ég að tala um Sigmund og Vigdísi Hauks- dóttur, oddvita Miðflokksins í Reykjavík. „Vigdís er gríðarlega mikill leið- togi. Hún er góður stjórnandi og veit alveg hvað hún er að gera. Það er niðurnjörvað það sem hún er að segja og hún fer yfir málin. Þetta er allt útpælt hjá henni. Það er gam- an að vinna með henni.“ Hverju viljið þið breyta? „Það er svo margt. Ég hef áhuga á velferðarmálum. Við þurfum að breyta húsnæðismálum, málefn- um öryrkja og heimilislausra, það er mitt hjartans mál. Ég er að fara í jarðarför í næstu viku hjá tveimur einstaklingum þar sem alkóhól- isminn tók líf og einmanaleikinn sem fylgir félagskerfinu eins og það er í dag getur sett fólk í gröf- ina. Kerfið er gallað og virkar ekki sem skyldi og einangrar fólk sem byggði upp þetta samfélag. Það á betra skilið. Það er gríðarlega mikilvægt að fólk gleymi því ekki hvernig þetta er búið að vera, hvernig gatnakerf- ið er, hvernig félagslegt húsnæði er gjörsamlega í molum. Við erum með fullt af tækifærum. Hvar ætl- um við að enda eftir tíu til fimmt- án ár ef það skyldi verða annað hrun, ætlum við að búa á hótel- um? Ef við gerum þetta ekki núna, þá verðum við með næstu fjögur ár borgarstjórn sem heldur áfram ákveðinni spillingu, eins og með Valssvæðið og Hlíðarenda, flug- vallarmálin og alls konar mál sem eru algjör hneyksli. Það er óá- sættanlegt að þessi borgarstjórn haldi áfram. Við höfum þetta val, það eru kosningar. Menn hugsa kannski að þetta séu bara inn- antóm loforð, en ég er búinn að berjast við þetta kerfi enda- laust og það eina sem það ger- ir, það gerir mig sterkari. Þess vegna er ég í pólitík í dag, mér blöskrar og ég vil breytingar,“ segir Sveinn og hverfur svo mörg ár aftur í tímann og er aftur lítill ljóshærður strákur með pabba sínum. „Einu sinni á að- fangadag vöknuð- um við snemma og pabbi er að græja sig og segir við mömmu að hann ætli að fara í smá hring. Hann spyr hvort ég vilji koma með. Pabbi var hljóður, það var kalt, alveg ofboðslega, og pabbi keyrir í rólegheitum á nokkra staði og ég uppgötvaði ekki fyrr en eft- ir á hvað hann var að gera. Hann var að kíkja eftir utangarðsmönn- um sem sváfu úti og hann hafði áhyggjur af þeim, hvar þeir yrðu á aðfangadag, var þeim kalt? Borða þeir? Af pabba lærði ég að ef mað- ur hefur á föt sem maður er hættur að nota, að þá gefur maður þau. Í Orðskviðunum stendur, 17. kafla, 17. vers, „Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir“ og ég hef haft þetta sem leiðarljós. Kannski er ég í einfeldni minni að trúa þessu. En ég trúi því að á meðan ég get hjálpað einhverjum, vini mínum eða hvaða manneskju sem er, ef ég get hjálpað henni eins og ég væri bróðir hennar, þá er það alveg nóg fyrir mig. Ég hef tileinkað mér þetta og ég reyni eft- ir mesta megni, hvern einasta dag, að gera það. Stundum get ég ekki alltaf gert það, geri ég það samt sem áður með einhverju móti. Þess vegna er ég í framboði og fái ég tækifæri mun ég reyna að bæta okkar litla fallega samfélag, og sól- in kemur alltaf upp að lokum.“ n Sveinn Hjörtur Guðfinnsson „Hann leit fram starandi, tryllingslegu augna- ráði. Ég hugsaði nú um það eitt að forða mér og hljóp upp í brú og tilkynnti fyrsta stýrimanni hvað gerst hafði.“ „Það breytist svo margt. Það breyttist allt „Við erum góðir félagar. Sig- mundur er mjög góður maður. Ég hef aldrei heyrt hann tala illa um neinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.