Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Síða 42
42 4. maí 2018 Sakamál Var hún Stóra SyStirin frá helVíti? n Nauðgaði og myrti þrjár unglingsstúlkur n Vildi fá meydóm í jólagjöf n Tóku ofbeldið upp á myndband n Engin sönnunargögn til staðar A ðfangadagur 1990 var hörmulegur dag- ur fyrir foreldra Tammy Homolka, 15 ára, sem bjó í St. Catharines í Kanada. Um miðja nótt vöknuðu foreldrarn- ir við að elsta dóttir þeirra, Karla, sem var 19 ára, og unnusti henn- ar, Paul Bernardo, 25 ára, hr- ingdu í neyðarlínuna og sögðu að Tammy hefði kafnað í eigin ælu. Þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang var Tammy látin. Rétt- armeinafræðingar slógu því föstu að um slys hefði verið að ræða. Foreldrarnir, Dorothy og Karel Homolka, reyndu að sætta sig við þetta og komast í gegnum lífið eft- ir þessa erfiðu lífsreynslu. Þau vissu ekki að Karla og Paul höfðu gefið Tammy ban- væna blöndu af áfengi og deyfi- lyfi sem Karla hafði stolið á dýra- læknastofunni sem hún starfaði hjá. Þegar Tammy hafði misst meðvitund nauðguðu Paul og Karla henni og tóku óhugnaðinn upp á myndband. Ástæðan fyrir ofbeldinu var að Paul vildi fá meydóm Tammy í jólagjöf. Hann var ósáttur við að Karla var ekki hrein mey þegar þau kynntust tveimur árum áður. Til að reyna að bæta fyrir það kom Karla því til leiðar að Paul fengi draum sinn uppfylltan, kyn- líf með hreinni mey, 15 ára systur hennar. Buðu til kvöldverðar – Lík 14 ára stúlku í kjallaranum Um miðjan júní 1991 rændi Paul 14 ára stúlku, Leslie Mahaffy, og fór með hana heim til sín og Körlu en þau bjuggu í Port Dalhousie. Eins og með Tammy þá tóku þau óhugnaðinn upp á myndband þegar þau misþyrmdu Leslie kyn- ferðislega og pyntuðu. Þau bundu Leslie fasta og bundu fyrir augu hennar. Þau gáfu henni síðan sömu eiturblöndu og Tammy og drápu hana. Skömmu síðar buðu þau for- eldrum Körlu og systur hennar, Lori, í kvöldmat. Í kjallaranum var lík Leslie. Að kvöldmatnum loknum ákváðu Karla og Paul að losa sig við líkið og hluta það í sundur. Paul fór í byggingarvöruverslun og keypti sement. Þau settu líkamshlutana í steypu og hentu í Gibson-vatn sem er um 18 km frá heimili þeirra. Þann 29. júní gengu skötuhjúin í hjónaband. Þennan sama dag fundu veiðimaður og sonur hans steypuklumpana. Tennur Leslie fundust í steypunni og því var hægt að bera kennsl á líkið. Enn eitt morðið Í apríl 1992 rændu Karla og Paul 15 ára stúlku, Kristen French, á bíla- stæði við kirkju í St. Catherines. Þau sáu Kristen á gangi og Karla lokkaði hana að bíl þeirra með því að spyrja hana til vegar. Þegar þær komu að bílnum dró Paul upp hníf og ógnaði Kristen með og fékk hana þannig inn í bílinn. Foreldrar Kristen höfðu sam- band við lögregluna þegar hún skilaði sér ekki heim. Umfangs- mikil leit hófst strax. Annar skór hennar fannst á bílastæðinu og mörg vitni höfðu séð þegar hún var numin á brott. En því miður gátu vitnin ekki lýst Körlu og Paul vel eða bíl þeirra. Þau héldu Kristen fanginni í tvær vikur og pyntuðu hana á sama hátt og hinar tvær stúlkurn- ar. Þau neyddu hana til að drekka mikið magn áfengis og gáfu henni deyfilyf eins og hinum stúlkunum. Þau tóku ofbeldið oft upp á myndband. 14 dögum eftir að Krist- en var rænt fannst lík henn- ar í skurði við Burlington sem er um 45 km frá þeim stað þar sem henni var rænt. FBI kom til aðstoðar Lögreglan hafði ekki margar vís- bendingar í málunum. Árið 1988, tveimur árum áður en Tammy var myrt, hafði óþekktur maður ráðist á margar konur og nauðg- að í Scarborough sem er nærri Toronto. Árásirnar áttu sér stað á kvöldin og vegna myrkurs gátu konurnar ekki gefið greinargóða lýsingu á manninum. Hann var þó sagður hávaxinn, ljóshærður og myndarlegur. Kanadíska lögreglan setti sig í samband við bandarísku alrík- islögregluna, FBI, vegna mál- anna og Gregg McCrary rann- sóknarlögreglumaður var sendur til aðstoðar. Hann útbjó prófíl af árásarmanninum, sem var kall- aður The Scarborough Rapist (Scarborough-nauðgarinn). Fjöl- miðlar birtu myndir og lýsingar á ofbeldismanninum og í kjölfar þess settu nokkrir vinir Paul sig í samband við lögregluna og sögðu að teikningin gæti vel verið af honum. Paul var tekinn til yfirheyrslu í nóvember 1990. Einnig var DNA- sýni tekið úr honum. Á þessum tíma var DNA-tæknin alveg ný og ekki var unnt að fá niðurstöður DNA-rannsókna fljótt eins og nú er hægt. Á meðan sýnið var til rann- sóknar fluttu Paul og Karla frá Scarborough til foreldra hennar í St. Catharines en um eins og hálfs „Hvernig myndi þér líða ef þú vissir að barnið þitt umgengst raðmorðingja? Doktor frá Harvard skaut þrjá til bana Þann 12. febrúar 2010 fundaði starfsfólk líffræðideildar háskólans í Alabama. Um ósköp venjulegan starfsmannafund var að ræða sem 12 einstaklingar sátu. Skyndilega stóð kvenkyns prófessor,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.