Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 52
52 fólk 4. maí 2018 KETO er í raun útgáfa af lágkolvetna mataræði en gengur enn lengra og eykur þannig enn frekar líkur á ár- angri. Markmið KETO er alveg á kristaltæru – Það er að léttast og stórbæta heilsuna. „Allt prógrammið er sett upp með þetta í huga og ég reyni að hafa þetta mjög einfalt og aðgengilegt. Bæði fróðleikshlutann en líka uppskriftahlutann og tekur 10–30 mínútur að útbúa hverja uppskrift (korter í flestum tilvikum) og alger lágmarksfjöldi hráefna,“ segir Gunnar. Hér er ein uppskrift úr 21 dags áskoruninni, en allar frekar upplýsingar má fá á heima- síðunni: habs.is Athugaðu að uppskriftin er nokkuð rífleg því ætlunin er að nota afgangana sem hluta af uppskrift fyrir næsta dag. Ætlað fyrir 2 Eldunartími: 20 mínútur 8 grömm af kolvetnum í einum skammti Hitaðu ofninn í 180 gráður á blæstri. Innihald: n 600 g úrbeinuð læri n kjúklingakrydd að eigin vali n 600 g kúrbítur, skorinn í spagettí-strimla n 1 msk. smjör n salt og pipar n 1 krukka grillaðar paprikur í krukku (Jamie’s eru frábærar, fást í Krónunni) n 1 peli rjómi n Salt Aðferð: 1. Byrjaðu á að steikja kjúklinginn á pönnu í klípu af smjöri eða olíu og kryddi þar til hann hefur brúnast vel. Skelltu honum í eldfast mót og í 10 mínútur inn í ofninn og kláraðu restina af réttinum á meðan. (Athugaðu að þú þarft að geyma um 1/3 af kjúklingnum fyrir morgundaginn). 2. Veiddu paprikuna úr krukkunni og settu hana í matvinnsluvél eða blandara í 10 sekúndur. Settu maukið á vel heita pönnu, bættu rjómanum við og láttu sósuna malla þangað til kjúklingurinn er tilbúinn. Smakkaðu til með salti. 3. Skerðu kúrbítinn niður með járninu, þerraðu með eld- húspappír og steiktu hann síðan eldsnöggt á pönnu í 1 mínútu í olíu eða smá smjöri þegar þegar kjúklingurinn er tilbúinn. (Athugaðu að þú þarft að geyma um 1/3 af kúrbítnum fyrir morgundaginn) 4. Hafðu kúrbítinn neðst, kjúklinginn þar ofan á og sósan toppar svo. S jöfn Þórðardóttir, verk- efnastjóri, ráðgjafi, blaða- maður og formaður menningarnefndar Sel- tjarnarness, er einstaklega skipu- lögð og kemst yfir margt í dagsins önn. Við fengum Sjöfn til að deila með okkur sínum bestu hús- og sparnaðarráðum. „Besta hús- og sparnaðarráð sem ég hef tileinkað mér gegnum ævina er gott skipulag, hvort sem það er á heimilinu eða í vinnunni, hvort sem það á við uppröðun í skápum, ísskáp, matseld, veislu- höldum, innkaupum, bókhaldi, eða hvað eina sem þarf að huga að á báðum vígstöðvum. Með góðu skipulagi er allt hægt, þú gengur að hlutunum vísum, þú ferð bet- ur með hlutina, þú nýtir tímann betur, kaupir aðeins það sem þig vantar nauðsynlega og umfram allt er það sparnaður,“ segir Sjöfn. „Til að mynda er ég með ákveðið skipulag hvernig ég raða inn í skápa heimilisins, á matar- innkaupum, tímabókunum og bókhaldi svo dæmi séu tekin. Ég held ávallt dagbók og skrái niður alla dagskrárliði hvort sem það á við vinnu, heimilisverk, viðburði, útréttingar, líkamsrækt eða ann- að sem til fellur og skipulegg tí- mann minn vel. Þannig kemst ég yfir meira en ella. Ég er til dæmis í félagsstörfum, sit í stjórnum og nefndum, er sjálfstætt starfandi verkefnastjóri og á fjölskyldu og vini sem ég nýt þess að verja góð- um samverustundum með og það tekur tíma að sinna þessu öllu. Það tekst með því að halda gott skipulag og hafa yfirsýn yfir tíma- bókanir. Það skiptir líka máli að forgangsraða og gera gátlista yfir það sem þú ætlar að gera hverju sinni.“ Innkaupalisti mikilvægur og að fá tilboð í verk „Mikilvægt er að gera innkaupa- lista áður en þú ferð að kaupa inn í matinn, með því er hægt að spara heilmikið og enginn óþarfi keypt- ur inn. Einnig er mikilvægt að huga vel að öllum kostnaði sem fylgir því að reka heimili eða við annan rekstur og mikilvægt að fá tilboð í öll þau verk sem þarf að sinna. Meðal annars að fá tilboð í tryggingar, ávallt að leitast eftir því að hafa viðskipti við þann sem er með hagkvæmustu tilboðin. Eitt af mínum áhugamálum er að elda ljúffengan mat og halda veislu og þá er mikilvægt að huga að öllu og er lykilatriði að vera með góðan gátlista þegar góða veislu skal gjöra. Það er líka mik- ilvægt að huga að heilsunni við matarinnkaupin og matargerðina því slæmir ávanar og matarvenj- ur auka líkurnar á kostnaði vegna heilsubrests til lengri tíma litið, það er því mikilvægt að vera ekki skammsýnn.“ Velur gæði frekar en magn við fatakaup „Þegar kemur að fata- kaupum er ég mjög vandlát, kaupi einung- is það sem mig vantar, ég vel gæðin fram yfir magnið og er iðin við að raða saman flík- um. Ég á það til að kaupa mér nýja flík sem ég veit að passar líka við aðrar flíkur sem ég á. Stíllinn minn er stíl- hreinn, kvenlegur og fág- aður og ég eltist ekki við tískuna hverju sinni heldur það sem klæð- ir mig vel.“ n Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. Sjálflímandi hnífaparaskorður Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is Sendum í póSt- kröfu Sjöfn Þórðar: Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Bestu sparnaðarráðin mín Uppskrift úr KETO áskorun Gunnars Más: Úrbeinuð kjúklingalæri með paprikusósu og kúrgettí KETO 21 dags áskorun er mataræði fyrir heila viku sem einkaþjálfarinn Gunnar Már Kamban hefur sett saman. KETO mataræðið hefur orðið geysilega vin- sælt síðustu árin og verður sífellt vinsælla. 6 einföld ráð til að halda heimilinu snyrtilegu alla daga Morgnar: 1Ekki fara að heiman án þess að búa um rúmið. 2Ekki skilja óhreint leirtau eftir í vaskinum. Þvoðu leirtauið sem notað er í morgunmatnum eða skolaðu það og settu í uppþvottavélina. 3Þurrkaðu af eldhús- og baðher-gisborðum, vöskum og krönum. Burstaðu jafnvel klósettskálina með klósettburstanum. Eftirmiðdagur/kvöld: 1 Moppaðu létt yfir eldhús- og stofugólf. Það er líka snilld að eiga handryksugu til að grípa til. 2Gakktu um með körfu og hreinsaðu upp dótið sem liggur hér og þar. Þegar karfan er orðin full, gakktu þá frá hlutunum á sinn stað. 3Hafðu skólatöskur og aðrar töskur tilbúnar, hús- og bíllykla, föt – allt sem gerir morgnana auðveldari. Hengdu upp fatnað, yfirhafnir og handklæði sem notuð hafa verið yfir daginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.