Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Side 54
54 bleikt 4. maí 2018
H
afrún Ö.Þ. Stef áns dótt ir,
sendi ráðsfull trúi í ís lenska
sendi ráðinu í Moskvu,
kom fyrst til Rússlands fyr-
ir 25 árum sem ferðalangur með
nokkrum skólafélögum úr rúss-
neskunámi í Háskóla Íslands.
Ári síðar fór hún í sumarnám við
Moskvuháskóla.
„Nokkrum árum seinna, eða
1998, flutti ég til Moskvu til að starfa
við sendiráðið og var í fjögur ár og
er nú í annað sinn hér að ljúka öðru
árinu mínu í þetta skiptið,“ segir
Hafrún sem deilir sínum uppáhalds-
stöðum í Moskvu með lesendum DV.
Hafrúnu finnst Moskva hreint
stórkostleg og er mikil Moskvu-
manneskja. „Moskva kemur þér
endalaust á óvart og hefur alltaf
eitthvað nýtt að bjóða. Fátt særir
mig meira en þegar fólk sem hef-
ur ferðast til Rússlands segir að
Moskva hafi verið ágæt, en Péturs-
borg alveg æðisleg. Ég vona að
sem flestir sem koma hingað til
Moskvu sjái sjarmann sem heill-
ar mig sífellt meira með hverju ár-
inu. Moskva er græn og fögur, og
einhver alfremsta menningarborg
í heiminum. Allir þekkja Bolshoi,
ballettinn og óperuhefðina, en
einnig sirkus og leikhúslífið.
Auk klassískra listasafna eins og
Tretjakovsgallerísins er nútímalist
gert hátt undir höfði og þó nokkur
söfn sem svo sannarlega er þess virði
að heimsækja, sérstaklega MMOMA
(Moscow Museum of Modern Art)
og ГГГГГ (Garage) sem er inni
í gamla Gorky-garðinum, sem nú
heitir Park kultury, eða menningar-
garðurinn. Almenningsgarðarn-
ir eru margir og stórir, en einnig er
gaman að rölta eftir breiðgötun-
um í miðborginni þar sem ýmislegt
skemmtilegt ber fyrir augað.“
Moskva hefur ekki farið varhluta
af kokteilmenningunni
Hafrún bjó fyrst á heimavist í
Moskvuháskóla og svo aftur á
sömu slóðum upp á Spörvahæð-
um. „Þaðan er frábært útsýni en
umferðin varð sífellt þyngri og að
lokum flutti ég niður í bæ. Nú bý ég
á mínum draumaslóðum, í hjarta
miðborgarinnar, rétt við Kreml,
í göngufjarlægð við vinnuna og
flesta áhugaverðustu staði mið-
borgarinnar. Að auki er ég í göngu-
færi við fimm neðanjarðarlesta-
línur svo mér eru allir vegir færir
bókstaflega,“ segir Hafrún. Henni
líður ákaflega vel í Moskvu og ræð-
ur vinnan mestu um það að hún er
ekki komin heim ennþá og vonast
hún til að vera þar sem lengst.
Líkt og flestir á Hafrún sér sína
uppáhalds veitingastaði, bæði
hversdags og til hátíðabrigða. „Á
venjulegum degi tylli ég mér á ein-
hvern asískan eða evrópskan stað
sem verður á vegi mínum. Það er
allt fullt af kaffihúsum og veitinga-
stöðum í miðborginni sem flest-
ir eru hver öðrum betri,“ segir
Hafrún og nefnir að í Moskvu er að
finna veitingastaði á heimsmæli-
kvarða.
„Svo sem the White Rabbit, en
einnig the Mad Cook, Probka na
Tsvetnom, Ugolyok og Severyane
og margir fleiri. Þá er ekki hægt
að sleppa því að kynna sér matar-
hefð Kákasusríkjanna, sérstaklega
Georgíu og Tatara. Við svonefndar
Patríarkatjarnir (Patriarchye pru-
dy) eru einstaklega skemmtileg-
ir veitingastaðir með nútímalegri
tökum á flestum sígildu georgísku
réttunum.“
„Ég er núorðið lítið fyrir næt-
urlífið, en kaffihúsin eru mörg, til
dæmis Akademia á Bolshaya Nik-
itskaya eða Paul inni í bakgarði við
Romanov pereulok. Þá er keðja af
morgunverðarstöðum sem heita
Breakfast, Forever friends, Con-
versation, Scramble, I love cake í
kringum Tass-torgið við Nikitskye
vorota sem eru allir skemmtilega
svipaðir en þó hver með sínu lagi.
Svo hefur Moskva ekki farið
varhluta af hvort heldur er kok-
teilmenningunni eða micro-bjór-
brugghúsunum. Helstu bjórbar-
irnir fyrir þá sem vilja prófa sig
áfram í sérbrugguðum mjöð eru
Rule Taproom, Craft Republic og
Erik rizhy (Eiríkur rauði).“
Fer flestra sinna
ferða fótgangandi
Hafrún notaði bíl áður til allra
sinna ferða, en segir umferðina
í borginni hafa þyngst mikið og í
þetta skiptið skilji hún bílinn eftir
heima. „Metro, neðanjarðarlestin í
Moskvu, er mjög þægileg og kem-
ur manni fljótt á milli staða. Ég er
hins vegar svo vel staðsett að ég fer
flestra minna leiða fótgangandi, en
leigubílar eru líka ódýrir í Moskvu
samanborið við Ísland og lítið mál
að panta bíl í gegnum mismunandi
smáforrit: Gett, Yandex og Uber til
að nefna nokkur.“
Vorin eru besti tíminn í Moskvu
Vorið er besti tíminn til að upplifa
borgina að sögn Hafrúnar. „Fyrir
mér er ekkert fegurra en Moskva
í maí. Kannski stafar það að ein-
hverju leyti af því að menn þyrst-
ir í sól og útiveru eftir langa og
stranga vetur, en borgin grænkar
á undraskömmum tíma og kemur
eitthvað svo hrein og fersk undan
vetri.“
Hafrún nefnir nokkra staði og
hluti sem eru ómissandi fyrir þá
sem aldrei hafa heimsótt borgina.
„Allir fara á Rauða torgið og ganga
meðfram Kreml og svo að Krists-
kirkju. Þá er gaman að rölta það-
an yfir ána, koma við á eyjunni
og kíkja á veitingastaðina og gall-
eríin þar. Halda svo áfram í áttina
að Park kúltúry (Gorky park), þá
gengur fólk meðal annars fram hjá
„hinum föllnu styttum“ en þang-
að var safnað öllum helstu sovét-
styttunum sem lifðu fyrstu ár 10.
áratugar síðustu aldar af. Í Park
kúltúry er að finna auk tívolíleik-
tækjanna, grænar grundir, gos-
brunna og kaffihús, en einnig eitt
flottasta nýlistasafnið í borginni
„Garage“ sem er alltaf með sýn-
ingar á heimsmælikvarða.
Niðri í bæ er hægt að rölta frá
Kreml upp Tverskaju, aðalversl-
unargötuna í borginni, ganga eft-
ir búlevörðunum og svo upp að
fyrrnefndum Patríarkatjörnum
(Patriarchye prudy) eða Tæru
tjörnum (Chistye prudy). Á báð-
um þessum stöðum er að finna
skemmtileg kaffihús og góða
veitingastaði.
Þess utan er útsýnið ofan af
Spörvahæðum (Vorobyovy gory
sem áður voru nefndar Lenínhæð-
ir) uppi hjá Moskvuháskóla óvið-
jafnanlegt og þaðan sést yfir alla
borgina. Þar verður Fan Zone á
HM2018 með beinum útsending-
um af öllum leikjum, en gert er
ráð fyrir að þar eigi allt að 40.000
manns að geta safnast saman og
skemmt sér vel. Þar má búast við
að mikill fjöldi Íslendinga geri sér
glaðan dag þegar Ísland mætir
Argentínu í fyrsta leik liðsins á HM
í knattspyrnu þann 16. júní næst-
komandi.
Hafrún nefnir að lokum að ekki
sé hægt að fjalla um Moskvu án
þess að geta baðhúsanna. „Rússar
fara í „bönju“ bæði fyrir sál og lík-
ama. Auk þess að svitna hressilega
í gufunni fríska menn sig í köldum
laugum þess á milli, fá sér nudd,
hand- og fótsnyrtingu, dreypa á te
eða bjór og narta í létta rétti með.“ n
Borgin mín: Moskva
„Ekkert er fegurra
en Moskva í maí“
Hafrúnu finnst Moskva stórkostleg og vonast til að vera þar sem lengst
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is „Útsýnið ofan af
Spörvahæðum er
óviðjafnanlegt. Þar verð-
ur einmitt Fan Zone á
HM2018.