Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 54
54 bleikt 4. maí 2018 H afrún Ö.Þ. Stef áns dótt ir, sendi ráðsfull trúi í ís lenska sendi ráðinu í Moskvu, kom fyrst til Rússlands fyr- ir 25 árum sem ferðalangur með nokkrum skólafélögum úr rúss- neskunámi í Háskóla Íslands. Ári síðar fór hún í sumarnám við Moskvuháskóla. „Nokkrum árum seinna, eða 1998, flutti ég til Moskvu til að starfa við sendiráðið og var í fjögur ár og er nú í annað sinn hér að ljúka öðru árinu mínu í þetta skiptið,“ segir Hafrún sem deilir sínum uppáhalds- stöðum í Moskvu með lesendum DV. Hafrúnu finnst Moskva hreint stórkostleg og er mikil Moskvu- manneskja. „Moskva kemur þér endalaust á óvart og hefur alltaf eitthvað nýtt að bjóða. Fátt særir mig meira en þegar fólk sem hef- ur ferðast til Rússlands segir að Moskva hafi verið ágæt, en Péturs- borg alveg æðisleg. Ég vona að sem flestir sem koma hingað til Moskvu sjái sjarmann sem heill- ar mig sífellt meira með hverju ár- inu. Moskva er græn og fögur, og einhver alfremsta menningarborg í heiminum. Allir þekkja Bolshoi, ballettinn og óperuhefðina, en einnig sirkus og leikhúslífið. Auk klassískra listasafna eins og Tretjakovsgallerísins er nútímalist gert hátt undir höfði og þó nokkur söfn sem svo sannarlega er þess virði að heimsækja, sérstaklega MMOMA (Moscow Museum of Modern Art) og ГГГГГ (Garage) sem er inni í gamla Gorky-garðinum, sem nú heitir Park kultury, eða menningar- garðurinn. Almenningsgarðarn- ir eru margir og stórir, en einnig er gaman að rölta eftir breiðgötun- um í miðborginni þar sem ýmislegt skemmtilegt ber fyrir augað.“ Moskva hefur ekki farið varhluta af kokteilmenningunni Hafrún bjó fyrst á heimavist í Moskvuháskóla og svo aftur á sömu slóðum upp á Spörvahæð- um. „Þaðan er frábært útsýni en umferðin varð sífellt þyngri og að lokum flutti ég niður í bæ. Nú bý ég á mínum draumaslóðum, í hjarta miðborgarinnar, rétt við Kreml, í göngufjarlægð við vinnuna og flesta áhugaverðustu staði mið- borgarinnar. Að auki er ég í göngu- færi við fimm neðanjarðarlesta- línur svo mér eru allir vegir færir bókstaflega,“ segir Hafrún. Henni líður ákaflega vel í Moskvu og ræð- ur vinnan mestu um það að hún er ekki komin heim ennþá og vonast hún til að vera þar sem lengst. Líkt og flestir á Hafrún sér sína uppáhalds veitingastaði, bæði hversdags og til hátíðabrigða. „Á venjulegum degi tylli ég mér á ein- hvern asískan eða evrópskan stað sem verður á vegi mínum. Það er allt fullt af kaffihúsum og veitinga- stöðum í miðborginni sem flest- ir eru hver öðrum betri,“ segir Hafrún og nefnir að í Moskvu er að finna veitingastaði á heimsmæli- kvarða. „Svo sem the White Rabbit, en einnig the Mad Cook, Probka na Tsvetnom, Ugolyok og Severyane og margir fleiri. Þá er ekki hægt að sleppa því að kynna sér matar- hefð Kákasusríkjanna, sérstaklega Georgíu og Tatara. Við svonefndar Patríarkatjarnir (Patriarchye pru- dy) eru einstaklega skemmtileg- ir veitingastaðir með nútímalegri tökum á flestum sígildu georgísku réttunum.“ „Ég er núorðið lítið fyrir næt- urlífið, en kaffihúsin eru mörg, til dæmis Akademia á Bolshaya Nik- itskaya eða Paul inni í bakgarði við Romanov pereulok. Þá er keðja af morgunverðarstöðum sem heita Breakfast, Forever friends, Con- versation, Scramble, I love cake í kringum Tass-torgið við Nikitskye vorota sem eru allir skemmtilega svipaðir en þó hver með sínu lagi. Svo hefur Moskva ekki farið varhluta af hvort heldur er kok- teilmenningunni eða micro-bjór- brugghúsunum. Helstu bjórbar- irnir fyrir þá sem vilja prófa sig áfram í sérbrugguðum mjöð eru Rule Taproom, Craft Republic og Erik rizhy (Eiríkur rauði).“ Fer flestra sinna ferða fótgangandi Hafrún notaði bíl áður til allra sinna ferða, en segir umferðina í borginni hafa þyngst mikið og í þetta skiptið skilji hún bílinn eftir heima. „Metro, neðanjarðarlestin í Moskvu, er mjög þægileg og kem- ur manni fljótt á milli staða. Ég er hins vegar svo vel staðsett að ég fer flestra minna leiða fótgangandi, en leigubílar eru líka ódýrir í Moskvu samanborið við Ísland og lítið mál að panta bíl í gegnum mismunandi smáforrit: Gett, Yandex og Uber til að nefna nokkur.“ Vorin eru besti tíminn í Moskvu Vorið er besti tíminn til að upplifa borgina að sögn Hafrúnar. „Fyrir mér er ekkert fegurra en Moskva í maí. Kannski stafar það að ein- hverju leyti af því að menn þyrst- ir í sól og útiveru eftir langa og stranga vetur, en borgin grænkar á undraskömmum tíma og kemur eitthvað svo hrein og fersk undan vetri.“ Hafrún nefnir nokkra staði og hluti sem eru ómissandi fyrir þá sem aldrei hafa heimsótt borgina. „Allir fara á Rauða torgið og ganga meðfram Kreml og svo að Krists- kirkju. Þá er gaman að rölta það- an yfir ána, koma við á eyjunni og kíkja á veitingastaðina og gall- eríin þar. Halda svo áfram í áttina að Park kúltúry (Gorky park), þá gengur fólk meðal annars fram hjá „hinum föllnu styttum“ en þang- að var safnað öllum helstu sovét- styttunum sem lifðu fyrstu ár 10. áratugar síðustu aldar af. Í Park kúltúry er að finna auk tívolíleik- tækjanna, grænar grundir, gos- brunna og kaffihús, en einnig eitt flottasta nýlistasafnið í borginni „Garage“ sem er alltaf með sýn- ingar á heimsmælikvarða. Niðri í bæ er hægt að rölta frá Kreml upp Tverskaju, aðalversl- unargötuna í borginni, ganga eft- ir búlevörðunum og svo upp að fyrrnefndum Patríarkatjörnum (Patriarchye prudy) eða Tæru tjörnum (Chistye prudy). Á báð- um þessum stöðum er að finna skemmtileg kaffihús og góða veitingastaði. Þess utan er útsýnið ofan af Spörvahæðum (Vorobyovy gory sem áður voru nefndar Lenínhæð- ir) uppi hjá Moskvuháskóla óvið- jafnanlegt og þaðan sést yfir alla borgina. Þar verður Fan Zone á HM2018 með beinum útsending- um af öllum leikjum, en gert er ráð fyrir að þar eigi allt að 40.000 manns að geta safnast saman og skemmt sér vel. Þar má búast við að mikill fjöldi Íslendinga geri sér glaðan dag þegar Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik liðsins á HM í knattspyrnu þann 16. júní næst- komandi. Hafrún nefnir að lokum að ekki sé hægt að fjalla um Moskvu án þess að geta baðhúsanna. „Rússar fara í „bönju“ bæði fyrir sál og lík- ama. Auk þess að svitna hressilega í gufunni fríska menn sig í köldum laugum þess á milli, fá sér nudd, hand- og fótsnyrtingu, dreypa á te eða bjór og narta í létta rétti með.“ n Borgin mín: Moskva „Ekkert er fegurra en Moskva í maí“ Hafrúnu finnst Moskva stórkostleg og vonast til að vera þar sem lengst Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is „Útsýnið ofan af Spörvahæðum er óviðjafnanlegt. Þar verð- ur einmitt Fan Zone á HM2018.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.