Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 56
56 4. maí 2018fréttir - eyjan
Á
tíma kalda stríðsins var
stundum grínast með að
sókn sovéska hersins í
gegnum Vestur-Evrópu
myndi stöðvast þegar skriðdrek-
arnir kæmu að stóru gatnamót-
unum á þýsku hraðbrautunum.
Þá myndi öll umferðin stöðvast
og allt fara í hnút. Eins og staðan
er í dag á þessi brandari vel við
en hins vegar í hina áttina því nú
á hann við um hernaðartól NATO.
Umferðarmannvirki á meginlandi
Evrópu eru einfaldlega ekki í stakk
búin til að taka við umferð skrið-
dreka, fallbyssna og hermanna og
koma þessari umferð hratt og ör-
ugglega á áfangastað. En það er
ekki nóg með að umferðarmann-
virkin geti seinkað för hernað-
artóla NATO í austurátt, til að verj-
ast Rússum, því landamæraeftirlit
og skriffinnska er ekki til að hraða
för hernaðartólanna.
Þessu fengu liðsmenn frægustu
skriðdrekasveitar Bandaríkjahers
að kynnast á eigin skinni þann 18.
júlí á síðasta ári. Þá tafðist löng
lest ökutækja frá 2. riddaradeild
á landamærum NATO-ríkjanna
Rúmeníu og Búlgaríu. Í vefritinu
Defense One er haft eftir Pat-
rick Ellis, ofursta og stjórnanda
deildarinnar, að í hálfan annan
tíma hafi deildin setið föst á landa-
mærunum í brakandi sólskini og
beðið eftir að einhverjir skriffinnar
stimpluðu skjölin þeirra.
Í nýrri leynilegri NATO-skýr-
slu, sem margir alþjóðlegir fjöl-
miðlar hafa vitnað í, kemur fram
að auk skriffinna á landamærum
Evrópuríkja séu umferðarmann-
virki ein stærsta hindrunin þegar
kemur að hröðum flutningi her-
liðs. Margir vegir og brýr, sem þarf
að fara um, geta ekki borið þung
farartækin og mikla skotfæra-
flutninga. Sem dæmi má nefna að
þýskur Leopard 2 skriðdreki vegur
64 tonn og því enginn hægðarleik-
ur að koma slíku farartæki á milli
staða ef umferðarmannvirkin eru
ekki nægilega traust.
Það eru aðallega Eystrasaltsrík-
in sem NATO og ESB hafa áhyggj-
ur af. Í kjölfar innlimunar Krím-
skaga í Rússland telja Eistland,
Lettland og Litháen sig vera í skot-
línu Rússa. NATO hefur sent fjórar
herdeildir til þessara ríkja og Pól-
lands en þær eru ekki í stakk bún-
ar til að hrinda rússneskri árás. Ef
Rússar byrja að ógna Eystrasalts-
ríkjunum þarf NATO að bregðast
við með miklum hergagnaflutn-
ingum og flutningi á hermönnum.
Til þess að það verði unnt þarf að
leysa úr vandanum með umferð-
armannvirkin og tafir á landa-
mærum.
Efasemdir um að hægt verði að
mæta rússneskri árás
Í skýrslunni koma fram ákveðnar
efasemdir um hvort það sé raun-
verulegt að halda að hersveitir
NATO geti brugðist við rússneskri
árás, til dæmis á Eystrasaltsrík-
in, nægilega hratt og árangursríkt
eins og kveðið er á um í sáttmála
NATO.
NATO myndi ekki geta komið
liðsauka nægilega hratt á áfanga-
stað segir í skýrslunni, brýr myndu
hrynja undan þungum skriðdrek-
um og aðrar væru ekki nægilega
háar til að herbílar gætu ekið und-
ir þær. Göng væru of þröng. Þá
segir að flutningar með járnbraut-
arlestum væru áhættusamir.
Við þetta bætist síðan skrif-
finnska á borð við þá sem fyrr er
getið. Eins og staðan er í dag þurfa
allir hergagnaflutningar að fá
samþykki í hvert sinn sem farið er
yfir landamæri. Fylla þarf út fjölda
skjala í hverju ríki þar sem skrá
þarf raðnúmer allra skriðdreka og
annarra ökutækja.
Der Spiegel hafði nýlega eftir
Steven Shapiro, hershöfðingja og
yfirmanna birgðamála bandaríska
hersins í Evrópu, að þótt að stríð
brjótist út hafi það ekki sjálfkrafa í
för með sér að allar þessar kröfur
á landamærunum leggist strax af.
Framkvæmdastjórnin skoðar
málið
Framkvæmdastjórn ESB ætl-
ar nú að láta skoða þessi mál
ofan í kjölinn. Markmiðið er að
búa til einhvers konar hernað-
arlegt Schengen-svæði þar sem
hermenn og hernaðartól NATO
geta farið nær hindrunarlaust
yfir landamæri. Staðla á pappírs-
vinnuna og draga úr henni.
Einnig á að hrinda í fram-
kvæmd umfangsmikilli greiningu
á umferðarmannvirkjum sem get-
ur þurft að nota við hraða flutn-
inga vopna, hermanna og birgða
í austurátt. Þessari greiningu á að
ljúka á næsta ári.
2020 á síðan að hefjast handa
við að betrumbæta umferðar-
mannvirkin og það mun hafa í
för með sér mikil fjárútlát úr sjóð-
um ESB. Einnig á að hafa flutn-
ing hernaðartóla meira í huga við
hönnun umferðarmannvirkja í
framtíðinni.
Allt þetta er einnig liður í fyrir-
ætlunum um að mynda evrópskt
varnarbandalag sem á að starfa
með NATO. 25 aðildarríki ESB taka
þátt í þessu samstarfi, sem nefnist
Pesco, en Danmörk stendur utan
þess. n
n ESB hugar að úrbótum
NATO getur
ekki brugðist
nægilega
hratt við
innrás
Rússa
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Rússneskir hermenn á Krímskaga. Mynd GEtty
Steven Shapiro, hershöfðingi og yfir-
manna birgðamála bandaríska hersins
í Evrópu.
Þýskur Leopard 2 skriðdreki á æfingu. Mynd GEtty
Kanadískir
hermenn
á æfingu í
Litháen 2016.
Mynd GEtty
Íslendum fjölgar
– barneignum
fækkar
Í vikunni var greint frá því að
Íslendingar væru orðnir 350
þúsund talsins. Egill bend-
ir á að þegar hann fæddist
hafi Íslendingar verið um
helmingi færri og þjóðin afar
einsleit. Innflytjendur hafi
verið nánast óþekktir í æsku
hans. Sá veruleiki hefur held-
ur betur breyst, um 40 þús-
und erlendir ríkisborgarar
voru búsettir hér á landi um
síðustu áramót.
Öllu alvarlegri er sú stað-
reynd að fæðingum barna
virðist fækka hratt. Egill vís-
ar í tölur sem Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, birti en
þar kemur fram að í dag séu
barnsfæðingar á Íslandi um
4.000 talsins. Fyrir sex árum
voru þær 4.500 en 4.900 árið
2010.
Telur Ágúst að hluta
ástæðunnar megi rekja til
erfiðs húsnæðismarkað-
ar, skertra barnabóta og
„ströggls“ sem ungt fólk á Ís-
landi þarf að standa í. Stjórn-
málin geri ekki nógu mikið
fyrir ungt fólk.
Egill telur þó að ástæðurn-
ar séu ekki síður þær að fólk
í vestrænum samfélögum er
sífellt að kjósa að fresta barn-
eignum, vegna náms, vinnu
og einfaldlega vegna þess að
fólk upplifir sig ungt
miklu
lengur
en áður.
Silfur Egils
í vikunni