Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 62
62 fólk 4. maí 2018
„Heimskur hlær að eigin
fyndni er mitt mottó“
Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu
vilja heita annað en Sigríður og vera ann-
að en spákona og skemmtikraftur? Ég er
búin að breyta, ég hét Sigríður Klingenberg
og heiti núna Sigga Kling. Ég er himinlifandi
með þá breytingu og finnst að fólk eigi að
breyta nafninu sínu ef það er að einhverju
leyti pirrað út í nafnið af því að það breytir
oft lífi fólks. Það skiptir öllu máli hvað
fyrirtækið heitir.
Ég hef hins vegar aldrei hugsað út í hvað ég
ætti annað að gera. Ef ég þyrfti að breyta
myndi ég vilja vera hrafn og fljúga út um
allt.
Hverjum líkist þú mest? Ég vil líkjast
Röggu Gísla, en er líkari Roseanne Barr.
Hvað halda margir um þig sem er alls
ekki satt? Að ég sé opin og alltaf til í að
koma í partí.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Mannleg
samskipti, krakkar í skólum eiga að fara inn
á elliheimili og aðra staði að kynna sér þá og
fá einkunnir út á mannleg samskipti. Þegar
þú ert 8–9 ára geturðu byrjað í þessu og ef
þú færð 10 í mannlegum samskiptum, þá er
þér borgið.
Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund kalli
á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu?
Apple. Það er svo auðvelt samt, ég myndi
hafa þetta milljón ef ég væri með þessa
spurningu, þetta er allt of lítil upphæð. Ef
það væri milljón færi ég í Pennann, þeir eru
með einhverjar lífsstílsvörur.
Hvað viltu að standi skrifað á legstein-
inum þínum? Burn Motherfucker Burn.
Ég ætla ekki að hafa legstein, ég ætla að
biðja dóttur mína að fara með öskuna að
Hvaleyrarvatni og það verður löngu dottið
úr tísku að setja þessa steinsteypuklumpa
á leiði. Mín skoðun er sú að eftir að ég dey
þá verði ég alls staðar og þá þarf ég ekki að
vera undir einhverjum steini.
Hvernig myndirðu lýsa litnum gulur fyrir
blindum manni? Hiti.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði
alltaf spilað um leið og þú gengir inn
í herbergi, allt þitt líf,
hvaða lag myndirðu
velja? Þemalagið
úr Dallas, það er
yfirleitt spilað í
Partíbingóinu.
Hvað var í
tísku þegar
þú varst yngri
en er það ekki
lengur? Útvíðar
buxur, græn
Millet-úlpa og allir
eins.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Yfir og
að sjálfri mér. Heimskur hlær að eigin fyndni
er mitt mottó.
Hvert er versta hrós sem þú hefur
fengið? Sigga, þú lítur svo svakalega vel
út svona sjötug, ég skil ekki hvernig þú ferð
að þessu.
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Ég heilsa þeim alltaf af því ég man
ekki hvort ég þekki þá eða ekki. Ég heilsa
öllum, brosi og segi góðan daginn. Ég ætla
ekkert að setja undir mig hausinn, mér
finnst óþægilegt þegar fólk lítur
undan þegar það hittir mann.
Og ég hrósa yfirleitt fólki í
leiðinni fyrir eitthvað. Ég er
lengi með: Gleðilegt sumar
og Gleðileg jól. Ég æfi mig í að
brosa og segja eitthvað af því
mér líður betur og það kastast
á mig aftur.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfið-
ast að hætta? Flest allt sem ég geri er
ósiður. Ég hef ekki hætt neinum ósið.
Hvað í hegðun hins kynsins ruglar þig
mest? Að karlmenn nenni að „tjatta“ á
Facebook: „Hvað ertu að gera?“ Ég hugsa
bara; Guð minn góður.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja,
þótt þú hafir aldrei hitt hann? Donald
Trump, ég veit allt um hann.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að
hafa misst af? Þegar David Bowie kom til
Íslands.
Hvað er löglegt í dag en verður það lík-
lega ekki eftir 25 ár? Skotvopnaeign.
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Að raða grænubaunadósum upp
í hillu.
Í hvaða íþróttagrein finnst þér að
keppendur ættu að taka þátt ölvaðir? Í
sem flestum.
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin? Tomma í Tomma og
Jenna.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Vera á sviði fyrir
framan tíu milljón manns.
Nú labbar mörgæs með kúrekahatt inn
um dyrnar hjá þér. Hvað segir hún og af
hverju er hún þarna? „Ég hef villst (hvar
býr hún annars?)… geturðu bent mér á hvar
norðurpóllinn er?“
Hvað er fram undan um helgina? Það er
fullt af gleðskap úti um allt sem ég er ráðin í.
Sigga Kling, spákona og gleðigjafi, spáir fyrir landsmönnum, heldur
partíbingó á Sæta svíninu öll sunnudagskvöld og er vinsæll skemmti-
kraftur og fyrirlesari. Sigga sýnir lesendum DV á sér hina hliðina. hin hliðin
Bókin á náttborði
Guðrúnar
„Ég
var að ljúka
við The Idiot eftir Elif
Batuman, sem ég mæli ein-
læglega með. Miranda July, sem er
annar höfundur sem ég hrífst mjög af,
hrósar bókinni á kápu: Og það er vitnað í
GQ sem segir þetta eina skemmtilegustu
bók sem þau hafi lesið á árinu. Ég get
tekið undir það. Í næstu viku fer ég til Ítalíu,
Tórínó, en þar verður tilkynnt um úrslit
hinna virðulegu Strega-verðlauna, sem
Auður Ava Ólafsdóttir er tilnefnd til, fyrir
skáldsögu sína Ör. Af því tilefni er ég að
lesa aftur uppáhaldskaflana mína
úr Ör – og úr Dögum höfnunar,
eftir Elenu Ferrante, til þess
að komast í ítalskan
fíling.“
Árleg Vorgleði Gullkistunnar verður á Kringlukránni
um helgina, föstudags- og laugardagskvöld. Þar
munu félagarnir í Gullkistunni stíga á svið ásamt
góðum gestum og skemmta gestum með gullaldar-
tónlist.
Þ
etta er sjöunda árið
í röð hjá okkur,“ seg-
ir Óttar Felix Hauks-
son. „Það er regla
hjá okkur að fyrstu helgina
í maí er vorgleði, þá er
páskahretið búið.“
Gullkistuna ásamt Ótt-
ari Felix skipa Gunnar
Þórðarson, Ásgeir Óskars-
son og Jonni Ólafs. Sérstakir
heiðursgestir á laugardags-
kvöld eru Magnús Kjartans-
son og Birgir Hrafnsson.
„Það eru alltaf góðir gest-
ir hjá okkur, í fyrra var Björg-
vin Halldórsson og það er
topp aðsókn hjá okkur. Fólk
á öllum aldri sem hefur gam-
an af sígildri 60´s tónlist, Bítlunum
og fleiri góðum, en það eru margir
sem heillast af þeirri tónlist.“
Magnús Kjartanson lék með
Gunnari Þórðarsyni í hljóm-
sveitinni Trúbrot og er einn af okk-
ar ástsælustu dægurlagahöfund-
um. Hann samdi meðal annars
Lítill drengur, To be grateful og My
friend and I. Birgir Hrafnsson lék
með Gunnari Þórðarsyni í Hljóm-
um sumarið 1973 auk þess að hafa
leikið með Pops, Ævintýri, Svan-
fríði og fleirum.
Árleg vorgleði Gullkistunnar
– Magnús og Birgir heiðursgestir
S
öngkonan Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir hef-
ur heillað landsmenn
frá því hún hóf að
syngja. Nú sýnir hún hæfileika
sína á nýju sviði, dansinum, í
þættinum Allir geta dansað.
DV heyrði í móður Jóhönnu,
Margréti Steindórsdóttur, og
spurði: Hvað segir mamma
um dótturina?
„Það kemur mér ekki á
óvart að Jóhönnu gangi vel
í þættinum, því hún er með
keppnisskap og gerir mikl-
ar kröfur til sín, er metnaðar-
full og gerir allt vel sem henni
er falið. Henni finnst hún oft
geta gert eitthvað „aðeins bet-
ur“ sem er gott en krefjandi
um leið. Hún er traust, hugul-
söm og úrræðagóð og gott að
eiga hana að.
Jóhanna er ákveðin í
framkomu en sanngjörn og
hikar ekki að við að segja sína
skoðun og standa með sjálfri
sér. Nokkuð sem er ómetan-
legt í þeim bransa sem hún
lifir og hrærist í.
Hún er sveitakona í sér, er
dýravinur og náttúrubarn.
Hún hefur átt hunda frá barn-
æsku og stundaði hesta-
mennsku og vann við ferða-
mennsku í hestabransanum
sem unglingur. Held að hún
hafi líkamlegan styrk sinn
meðal annars vegna þess.
Jóhanna er mikil fjöl-
skyldukona og fagurkeri,
finnst gaman að hafa heimilið
sitt fallegt og elskar falleg föt.
Hún er yndisleg móð-
ir og dóttir og við mæðgurn-
ar erum miklar vinkonur, töl-
umst við á hverjum degi og
hittumst oft í viku.“
Hvað segir
mamma Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is