Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 1

Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 1
Gjörólíkir en násaman í tónli ti Hlýleg ný lína 1. OKTÓBER 2017SUNNUDAGUR 94 ára og vinnurað nóttu sem degi Ný lína Geysissækir innblásturí málverkGuðmuAndrés-dóttur Hlátur-mild oghjartahlýSanita Brauna var móðirþriggja barna. Á Íslandi leiðhenni vel og var dáð afsamstarfsfólki. Hún saknaðibarnanna sinna í Lettlandiog talaði við þau alla daga 4 Jóhann Eyfells gerir skúlptúraá búgarði sínum í Texas 16 26 L A U G A R D A G U R 3 0. S E P T E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  230. tölublað  105. árgangur  LJÓNATEMJARI HINS ÓVÆNTA GESTUR Á RIFF HVAÐ LESA BÖRN? MÁLÞING UM BARNABÆKUR 46WERNER HERZOG 44 Baldur Arnarson Arnar Þór Ingólfsson Ný könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið bendir til að tveir af fráfarandi stjórnarflokkum, Viðreisn og Björt framtíð, muni ekki ná manni á þing í komandi þingkosningum. Þá mun nýr flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Miðflokkurinn, heldur ekki fá þingsæti. Líkt og í síðustu könnun Félags- vísindastofnunar fyrr í þessum mánuði mælist VG stærsti flokk- urinn, með 28,8% fylgi. Sjálfstæðis- flokkur kemur næstur með 24,3% fylgi. Mikil dreifing er á fylginu og eru 9 flokkar með marktækt fylgi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir það „frábæra“ niðurstöðu að framboð hans, Miðflokkurinn, skuli mælast með 4,6% fylgi. Þá í ljósi þess að könnunin hafi verið fram- kvæmd að mestu áður en flokkurinn var formlega stofnaður í fyrrdag. Um 4% aðspurðra í könnuninni töldu mjög líklegt að þau kysu Mið- flokkinn. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, segir niðurstöðuna sýna að kjósendur vilji stefnubreytingu í landsmálum. Þeir vilji að áhersla verði lögð á félagshyggju. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa mikla trú á því að flokkurinn geti sótt meiri stuðning. Sterka ríkis- stjórn þurfi til að leiða landið áfram. Um 84% aðspurðra sögðu mjög líklegt að þau myndu kjósa og 9% frekar líklegt. Hvorki Viðreisn né Björt framtíð myndu ná mönnum inn á þing  Viðreisn, Björt framtíð og Miðflokkurinn fá ekki þingmann samkvæmt könnun  VG áfram stærst  Samfylking, Framsókn og Flokkur fólksins fá 5 menn hver  Um 4% kjósenda telja mjög líklegt að þau kjósi nýjan flokk Sigmundar Davíðs Flokkur fólksins dalar » Könnunin bendir til að 6,5% kjósenda styðji Flokk fólksins, en fylgið mældist 9% í síðustu könnun Félags- vísindastofnunar fyrir Morg- unblaðið. » Þetta fylgi skilar þó Flokki fólksins áfram 5 þingmönn- um. A 4,3% B 7,0% C 4,8% D 24,3% F 6,5% M 4,6% P 11,6% S 7,5% V 28,8% Fylgi flokkanna 0 5 0 18 508 5 22 Fjöldi þingmanna samkvæmt könnun Aðrir flokkar eða framboð 0,6% MAfgerandi forysta hjá VG » 4  Thomas Fredrik Møller Olsen var í gær dæmdur í nítján ára fangelsi fyrir að hafa banað Birnu Brjáns- dóttur 14. janúar sl. Einnig var hann dæmdur fyrir stórfellt fíkni- efnalagabrot, en hann hafði í fórum sínum 23,424 kg af hassi sem hann hugðist flytja til Grænlands. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, segir að Thomas hafi með breyttum framburði sínum freistað þess að koma sök á skipsfélaga sinn. Var þetta, meðal annarra atriða, metið Thomasi til refsiþyngingar, en fangelsisrefsing hans er ein sú lengsta sem dæmd hefur verið hér á landi. »2 Dómur fallinn í máli Birnu Brjánsdóttur Dómur Refsingin er fangelsi í nítján ár.  Tveir leikmanna Íslandsmeist- araliðs UMFK Esju í íshokkí féllu á lyfjaprófi sem þeir voru boðaðir í á æfingu liðsins snemma í þessum mánuði. Um er að ræða tvo af lykil- mönnum liðsins; íslensku landsliðs- mennina Björn Róbert Sigurðarson og Steindór Ingason. Leikmennirnir urðu báðir upp- vísir að steranotkun, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, og hafa þegar gengist við sínu broti. Það er svo í höndum dómstóls ÍSÍ að dæma í málinu en hámarksrefs- ing er fjögur ár. » Íþróttir Tveir leikmenn Esju féllu á lyfjaprófi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Einangrun byggða á Mýrum og í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu um landveg verður rofin, hugsan- lega í dag og í síðasta lagi á morgun. Unnið var í gær við að fylla í skörð í vegi og varnargörðum við Hólmsá, skammt fyrir vestan Höfn, og sér fyrir endann á því verkefni og þá ætti að verða fært inn á svæðið að austan. Loftbrú við Vatnajökul Að vestan er lokað við Steinavötn, en í vatnsflóðunum síðastliðinn mið- vikudag gróf mikið undan einum af fimm stöplum brúarinnar svo hún skekktist og sprungur komu í gólf hennar. Hugsanlegt er þó að hún verði opnuð gangandi fólki fljótlega. Strax í dag verður hafist handa við að reisa bráðabirgðabrú yfir ána og væntir Hreinn Haraldsson vega- málastjóri þess að hún verði komin í gagnið eftir viku. Þá er í skoðun að smærri bílar verði ferjaðir með trukkum yfir ána, líkt og gert var þegar brúna yfir Múlakvísl á Mýr- dalssandi tók af árið 2011. Ýmsar öryggisráðstafanir þarf þó að gera, áður en farið yrði að stað. Þyrlur frá Landhelgisgæslunni hafa frá því á fimmtudag haldið uppi loftbrú inn á flóðasvæðið við Vatna- jökul, hvar eru alls 16 sveitabæir. Í fyrstu miðuðust aðgerðir hjálparliða við að koma til dæmis ferðafólki út af svæðinu, en í gær voru þyrlurnar í alls sautján ferðum notaðar til dæmis við að flytja nauðsynjar til fólks, skólabörn til síns heima og starfsmenn Vegagerðar og RARIK sem þangað þurftu að komast. Mikið tekjutap Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, og fleiri ráðamenn voru eystra í gær og kynntu sér aðstæður á vettvangi með flugi um svæðið með Gæsluþyrlu. „Flóðin ná yfir mun víðfeðmara svæði en ég hafði reiknað með. Hér sér maður líka að þessar hamfarir snerta allt mannlíf hér; búrekstur, ferðaþjónustu og skólastarf. Allt fer úr skorðum,“ sagði Bjarni í samtali við Morgun- blaðið þegar hann kom úr fluginu. Hann segir enn óljóst hver skaðinn af völdum þessara náttúruhamfara sé og hver atbeini ríkisvaldsins við uppbyggingu verði. Viðbúið sé þó til dæmis að byggja þurfi nýja brú yfir Steinavötnin. Ferðaþjónustufólk á Horna- fjarðarsvæðinu segir áhrifin af lok- un hringvegarins mikil, enda séu veitinga- og gististaðir á svæðinu nánast tómir. Áætla megi að tekju- tapið sé 50 milljónir króna á degi hverjum og mikilvægt sé því að samgöngur komist í lag aftur sem fyrst. Morgunblaðið/Eggert Flóð Ár sem falla fram í Suðursveit og á Nesjum flæmast um aura og sanda. Vegir hafa farið í sundur svo suðurleiðin austur á Hornafjörð er ófær. Það hefur valdið búsifjum þar og ferðaþjónustufólk sér fram á stórtap. Sveitir eru einangraðar  Náttúruhamfarir við Vatnajökul  Fyllt í skörð við Hólmsá og bráðabrigðabrú yfir Steinavötn í Suðursveit  Allt hefur farið úr skorðum, segir forsætisráðherra MGrunnþjónustu púslað saman »6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.